Fréttablaðið - 23.09.2019, Page 10
2 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
HETJA HELGARINNAR
Trent Alexander-
Arnold
Er fæddur þann 7. október árið
1998 í West Derby hverfinu í
Liverpool, spottakorn frá Melwo-
od-æfingasvæðinu. Hann gekk
í raðir félagsins þegar hann var
aðeins sex ára. Hann hefur spilað
níu leiki á tímabilinu og markið
gegn Chelsea var það fyrsta sem
hann gerir á þessu tímabili.
Trent er mjög þrosk-
aður miðað við aldur.
Ég lít ekki á hann sem tvítugan
pilt heldur 25-26 ára en ég þakka
Guði fyrir að hann sé aðeins tví-
tugur. Hann er mjög þroskaður
miðað við aldur, miklu meira en
þegar ég var tvítugur.
Jurgen Klopp
Knattspyrnustjóri
Liverpool
Fimmtán sigrar sýnir
hvernig lið við erum.
Við höfum unnið alls konar leiki
á þessari vegferð. Átján stig af
átján mögulegum er mjög gott
og vonandi getum við haldið
áfram þessu góða gengi.
Trent Alexander-Arnold
FÓTBOLTI Það er kannski skrýtið
að velja hetju helgarinnar sem var
með 56 prósent sendingarhlut-
fall og fékk gult spjald fyrir töf á
57. mínútu. En Trent Alexander-
Arnold er bara svo ótrúlega góður
og búinn að vera það svo lengi að
þó að hann hafi ekki verið neitt
sérstaklega stórkostlegur í þessum
leik þá hefur hann sett viðmiðið
svo hátt að það er ekkert hægt
annað en að velja hann.
Alexander-Arnold skoraði fyrra
mark Liverpool í sigrinum á Chel-
sea í gær og kom að aukaspyrnunni
sem Roberto Firmino stangaði í
netið. Firmino og Mo Salah hafa nú
þegar skorað þrjú og lagt upp þrjú
og eru einu leikmennirnir sem hafa
náð þeim áfanga. Liverpool hefur
nú unnið fimmtán deildarleiki í
röð.
Hann virðist líka vera einn af
góðu gæjunum, sem er nú ekki
mikið af í fótboltanum. Þó að
hann sé rétt rúmlega tvítugur
er Alexander-Arnold með báða
fætur á jörðinni og sinnir þeim
sem minna mega sín með bros á
vör. Þegar hann var að alast upp í
Liverpool sór hann þess eið, ásamt
þáverandi liðsfélaga sínum, að þeir
myndu sinna góðgerðarstarfsemi.
Mamma hans hafði kynnt fyrir
þeim An hour for others, sem eru
góðgerðarsamtök í Liverpool og er
Alexander-Arnold mikið þar.
Þegar hann skrifaði undir einn
stærsta skósamning á Englandi við
Under Armour lét hann hafa eftir
sér að hann ætlaði að kaupa land í
Liverpool til að byggja fótboltavelli
svo að allir gætu spilað fótbolta.
Skósamningurinn er sagður hljóða
upp á 6,4 milljónir punda, sem
nemur milljarði íslenskra króna.
Ætlunin er að hefjast handa við að
byggja strax næsta sumar.
Þá hefur hann gaman af því
að tef la og fékk tækifæri til að
tef la við sjálfan Magnus Carlson,
heimsmeistara í skák. Hann tapaði
þeirri viðureign í 17 leikjum. Hann
tef lir reglulega við annað ungstirni
Liverpool, Ben Woodburn.
Þegar hann meiddist í desember
í fyrra og Liverpool spilaði við
Úlfana á Molinoux skellti hann sér
með félögum sínum og studdi liðið
úr stúkunni. Svona mætti trúlega
lengi telja.
Alexander-Arnold er fæddur
1998 og verður 21 árs þann 7. októ-
ber. Hann hefur spilað um 100 leiki
fyrir Liverpool þar sem hann er
uppalinn. Hann varð fyrirliði U16
og U18 ára liðsins og kom fyrst við
sögu undir stjórn Brendans Rod-
gers í lokaleik undirbúningstíma-
bilsins 2015-2016. Í október 2016
kom svo fyrsti alvöru leikurinn
gegn Tottenham í deildarbikarn-
um. Skömmu síðar skrifaði hann
undir nýjan samning við Liver-
pool. Í desember kom svo fyrsti
leikurinn í deildinni. Alls lék hann
tólf leiki og var valinn besti ungi
leikmaður Liverpool.
Síðan hefur hann gert urmul
mistaka en alltaf lært af þeim og
er orðinn einn besti hægri bak-
vörður heims. Stöðugleikinn í
varnarleiknum og ógnin af honum
sóknarlega er ógurleg. Hann lagði
upp meira en tug marka á síðasta
tímabili og er þegar búinn að skora
sitt fyrsta mark á tímabilinu. Enda
segist hann hafa stúderað Dani
Alves og Phillip Lahm þegar hann
var að læra á bakvörðinn. Hann
byrjaði sem djúpur miðjumaður
en sá að í bakverðinum gat hann
fengið meiri spilatíma.
„Trent hefur mikinn hraða en
það sem skiptir meira máli er
að hann er of boðslega f ljótur að
hugsa. Bakvörður sem getur eignað
sér allan vænginn en hefur einnig
getuna til að senda á framherjana,
sendingar sem þeir vilja fá,“ sagði
fyrrverandi þjálfari hans, Pepijn
Lijnders, árið 2017.
Þegar helsta hetja Liverpool
síðari ára, Steven Gerrard, gaf út
bókina sína My Story, minntist
hann á Alexander-Arnold sem
þá var aðeins 16 ára. „Hann hefur
möguleika á að ná langt. Hann er
innfæddur og alveg eins og ég, sem
vildi verða John Barnes eða Steve
McMahon, ólst hann upp við að
vilja vera ég þegar hann lék sér
á leikvöllunum við Merseyside,“
skrifaði Gerrard.
Eftir að Alexander-Arnold færði
sig af miðjunni og í bakvörðinn
hefur hann blómstrað svo um
munar. Merkilegt nokk þá fær
hann alveg að dúndra í boltann úr
aukaspyrnum þrátt fyrir margir
af fremstu fótboltamönnum sam-
tímans leiki með Liverpool. Fyrsta
markið hans fyrir Liverpool var
einmitt úr aukaspyrnu og þá hefur
hann smellt einni gegn Watford.
Í gær rúllaði Mo Salah boltanum
af mikilli nákvæmni til Alexand-
er-Arnold og þetta var svokölluð
þrumudúndra, svo fast fór boltinn
fram hjá markverði Chelsea, Kepa
Arrizabalaga.
Í viðtölum eftir leikinn þá sagði
guttinn að þetta hefði komið beint
af æfingarsvæðinu. „Þetta ruglaði
markvörðinn aðeins og ég náði sem
betur fer að koma boltanum í netið.
Það var gott að horfa á eftir bolt-
anum.“ benediktboas@frettabladid.is
Einn sá besti í
sinni stöðu
Trent Alexander-Arnold skoraði fyrra mark Liver-
pool í 2-1 sigri liðsins á Chelsea á Stamford Bridge.
Trent, sem er uppalinn hjá Liverpool, er orðinn
einn besti hægri bakvörður veraldar, er góður í
skák og sinnir samfélagsvinnu með bros á vör.
Alexander-Arnold er
yngsti leikmaðurinn í
sögunni sem hefur byrjað
tvo úrslitaleiki í röð í
Meistaradeildinni. Hann er
þriðji yngsti markaskorari
Liverpool í Evrópukeppni á
eftir Michael Owen og
David Fairclough. Þá er
hann yngsti leikmaðurinn
sem hefur gefið þrjár stoð-
sendingar í einum og sama
leiknum.
2
3
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:4
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
6
-F
8
3
4
2
3
D
6
-F
6
F
8
2
3
D
6
-F
5
B
C
2
3
D
6
-F
4
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K