Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.09.2019, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 23.09.2019, Qupperneq 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Ég er að læra félagsfræði við Háskóla Íslands og hef brennandi áhuga á öllu sem viðkemur henni,“ segir Hlédís. „Ég hef alltaf horft greinandi augum á samfélagið og námið fellur mjög vel að því, ásamt því að vera skemmtilega fjölbreytt og frjálst.“ Þá finnst henni fátt skemmtilegra en að lesa. „Ég er forfallinn bókasafnari og les mjög mikið í mínum frítíma,“ segir hún. „Ég hef einnig mjög mikinn áhuga á eldamennsku, innanhúss- hönnun, fötum og öðrum fallegum hlutum.“ Hlédís starfar hjá íslenska tískufyrirtækinu Geysi samhliða náminu. Hún hefur mikinn áhuga á tísku en segir samband sitt við fyrirbærið þó flókið og lítur hún gagnrýnum augum á það, hvort sem það er tengt framleiðslunni sjálfri eða óskrifuðum reglum um hvað megi eða megi ekki. „Ég er almennt mótfallin reglum þegar það kemur að klæðaburði og ég get ekki horft fram hjá því marg- þætta tjóni sem heimurinn ber af eltingarleikjum við ópersónulega skynditísku og trend,“ segir Hlédís hugsi. Siðferðislegt uppgjör við skynditísku Hlédís segir að það geti verið erfitt að réttlæta tískuáhugann, í ljósi skaðsemi iðnaðarins. „Ég á oft erfitt með að gera upp við sjálfa mig siðferðislegan kostnað efnis- hyggju og neysluhyggju, sem þetta tískuvesen að sjálfsögðu er.“ Hún tók því ákvörðun um að sniðganga þau fyrirtæki sem valda mestum skaða. „Hluti af mínu siðferðislega uppgjöri hefur verið að hætta að versla við skynditísku- fyrirtæki sem hámarka gróða sinn með gríðarlegu arðráni, mannrétt- indabrotunum og umhverfisspjöll- um. Neytendur geta haft áhrif á stefnu slíkra fyrirtækja með því að taka afstöðu gegn hlutum sem takmarka lífsskilyrði mannkyns og jarðar.“ Þó að Hlédís telji mörgu ábóta- vant í heimi tískunnar hefur hún engu að síður mikla ánægju af því að safna og skreyta sig fallegum hlutum. „Þrátt fyrir það hef ég hef alltaf haft mikla þörf fyrir að umkringja mig fallegum hlutum og ekki þá síst fötum.“ Samfélagið fljótt að dæma Gagnrýnin augu félagsfræði- nemans eru þó aldrei langt undan og þykir Hlédísi þannig áhuga- vert að sjá hvernig fólk bregst við klæðnaði annarra og myndar sér skoðanir á viðkomandi, eingöngu Hlédís velur gæði umfram magn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hlédís er mótfallin öllum reglum um klæðaburð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466 Opið 8-22 LEIÐSÖGUNÁM FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS, Bíldshöfða 18, sími 567 1466, Opið til kl. 22.00, Martha Jensdóttir kennari. Martha Jensdóttir kennari. Ferða álaskóli Íslands • www. enntun.is • Sí i 567 1466 pið 8-22 I FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS, Bíldshöfða 18, sími 567 1466, Opið til kl. 22.00, Martha Jensdóttir kennari. Martha Jensdóttir kennari. - Nemendur geta að námi loknu gengið í Leiðsögufélagið - LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU Opið 8-22 Magnús Jónsson fv. veðurstofustjóri Guðrún Helga Bjarnadóttir, Vestmannaeyjum Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim sem vilja læra leiðsögn erlendra og innlendra ferða- manna um Ísland. Flest stéttarfélög styrkja nemendur til náms. Námið: • Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum. • Mannleg samskipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga. • Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. • Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á sínu sviði. Boðið er upp á dag eða kvöldnám auk þess sem farið verður í fjölda vettvangsferða. Umsögn: „Fyrir nokkrum árum stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskóla Íslands. Námið stóð vel undir væntingum mínum. Fjölmargir kennarar komu að kennslunni sem áttu auðvelt með að ná til mín, auka áhuga minn á náms- efninu og ekki síst að vekja mig til umhugsunar um þá auðlind sem landið okkar er. Auk þess hvöttu þeir okkur til að virða landið okkar. Kennararnir voru mjög færir og fróðir hver á sínu sviði og áttu auðvelt með að koma efninu til skila. Námið gefur mikla atvinnumöguleika og það eru spennandi tímar framundan. LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM Í ATVINNULÍFINU Ferðamálaskóli Íslands • ww .menntun.is • Sími 5 elga Bjarnadóttir OPIÐ 8-22 legt“ sé merki um að viðkomandi sé ekki miklum gáfum gæddur. „Það er ótrúlegt hvað fólk tengir vitsmunagetu fólks, sérstaklega kvenna, við klæðaburð. Skvísumenning og hið ofur- kvenlega er oft álitið annars flokks og það getur verið áhugavert að stokka upp í því,“ útskýrir hún. „Það getur þó haft það í för með sér að fólk vanmeti mann, en ef það er rangt að klæða sig eins og Elle Woods þá einfaldlega vil ég ekki hafa rétt fyrir mér,“ segir Hlédís glettin en Elle Woods, eins og ýmsir vita, var aðalpersónan í kvikmyndinni Legally Blonde, leikin af Reese Witherspoon. Búningaleikir í barnæsku Hlédís hefur haft áhuga á fötum frá því að hún man eftir sér. „Frá því að ég var barn hef ég haft mjög gaman af búningaleikjum og sé fatastílinn minn í dag sem áfram- hald af því. Það er kannski þess vegna sem ég kaupi jafn mikið af ópraktískum flíkum og raun ber vitni,“ segir hún. Hlédís byrjaði snemma að fylgj- ast með tískuheiminum. „Áhugi á tísku sem slíkri byrjaði svo ein- hvern tíma í kringum fimmtán ára aldurinn. Ég byrjaði að lesa mikið af tískutímaritum á þessum tíma en það var í raun og veru það eina sem var í boði.“ Áður fyrr voru bara örfáar hræður sem réðu straumum og stefnum. „Tískuiðnaðurinn var mjög rótgróinn og stofnanavædd- ur á þessum tíma og takmarkaðist í raun við skoðanir mjög fámennra hópa úti í heimi.“ Lýðræðisvæðing tískunnar Hún segir margt hafa breyst með tilkomu samfélagsmiðla. Tískan sé nú orðin aðgengilegri. „Sam- félagsmiðlar á borð við Instagram hafa stuðlað að ótrúlegri lýðræðis- væðingu á sviði tísku og lista. út frá yfirborðinu. „Svo er líka gaman að sjá hvernig samfélagið tekur manni á ólíkan hátt eftir því hvernig maður er klæddur,“ segir hún. „Ég fann það til dæmis mjög sterklega þegar ég mætti í bleikum Juicy Couture galla í skólann.“ Hún telur að konur séu ekki síst oft harðlega dæmdar vegna klæða- burðar og að margir virðist líta svo á að það sem litið er á sem „kven- Þessi fyrirbæri hafa breyst mikið síðan ég var unglingur og munu án nokkurs efa halda áfram að gera það.“ Þá hefur líka margt breyst hvað varðar kauphegðun. „Verslunar- leiðirnar eru einnig mjög breyttar. Á þessum árum hafði ég kannski einhverjar hugmyndir um það hvernig ég vildi klæðast en hafði ekki hugmynd um það hvernig ég gæti nálgast það. Ég átti líka aldrei neinn pening svo ég þurfti að finna alls kyns krókaleiðir til að klæða mig eins og ég vildi. Þannig byrjaði ég að kaupa mikið vintage og neyddist í raun til þess að þróa með mér sterkan persónulegan stíl sem var ekki endilega alltaf háður lögmálum tískunnar. Hann var stundum frekar slæmur, en ég hafði allavega gaman af þessu.“ Síbreytilegur stíll Þegar Hlédís er spurð hvernig hún myndi lýsa stílnum sínum segir hún hann mismunandi. „Stíllinn minn er frekar fjölbreytilegur frá degi til dags. Þessa dagana hef ég verið að flökta mikið á milli „chic“ ömmustíls og neutral mínímal- isma, eða bara eitthvað allt annað og frekar skrítið.“ „Einn daginn get ég verið hefðar- frú í silki og perlum og næsta dag klætt mig í síðerma bol með mynd af Marilyn Manson á klósettinu. Almennt reyni ég bara að hafa gaman af þessu og taka sjálfa mig ekki of alvarlega í þessum bún- ingaleik sjálfsins, eða hvað maður á að kalla það,“ segir Hlédís, létt í bragði. Hún fær innblástur víða. „Ég sæki mikinn innblástur í dægur- menningu uppvaxtaráranna, rokkmenningu frá ólíkum tíma- bilum, minningar, nostalgíu og menningarlegt umhverfi mitt.“ Gæði umfram magn Hlédís segist leggja mikla áherslu á að fjárfesta í vönduðu vörum, ef hún geri það á annað borð. „Ég veit ekki hvort það sé meiri veikleiki eða styrkleiki en ég hef alltaf bara viljað það besta af öllu, að öðrum kosti vil ég frekar ekkert.“ Þá sækir hún í náttúruleg efni og notaðar gæðavörur. „Ég er mikill töskufíkill, en kaupi mér nánast eingöngu vintage designer töskur. Ég vil helst vera í náttúrulegum efnum og vel föt oftast með það sjónarmið í huga. Upp á síðkastið hef ég sankað að mér miklu af silkiflíkum, sérstaklega skyrtum og slæðum (viðbrögð Daisy Buc- hanan úr The Great Gatsby við silkiskyrtum eru mér oft hugstæð, en ég er kannski ekki alveg á sama stigi og hún).“ Hjartahálsmen í prófalestri Hlédís segir sama eiga við um skart og fylgihluti. „Ef þetta er ekki almennilegt þá sleppi ég því frekar. Helst geng ég með perlur eða silkislæður þessa dagana, því ég er í hjarta mínu bara algjör langamma.“ Hún segir hálsmen sem hún keypti síðasta vetur vera í miklu uppáhaldi. „Ég held einnig mikið upp á Tiffany & Co. hjartaháls- menið sem ég keypti eftir þrjú rauðvínsglös og Legally Blonde í prófalestri síðasta vetur.“ Þá er hún sérstaklega hrifin af danska hönnuðinum Stine Goya. „Ég er mjög hrifin af nýjustu línu Stine Goya, en hún er ótrúlega klassísk og afturhverf og vekur í mér mjög sterkar nostalgíu- tilfinningar frá sumri þegar ég var 17 ára í Bandaríkjunum og hlustaði allt of mikið á the Zom- bies, Kinks og Stranglers.“ Heimspekilegar vangaveltur Hlédís telur að áhugi mannsins á fatnaði og klæðaburði sé marg- þættur og sprottinn frá bæði sköp- unarhvötinni og sjálfsmyndinni. „Ég hallast að þeirri viðleitni að sjálfið sé sköpun mannlegs hugvits og að klæðaburður sé leið til að gera sjálfssköpun og sjálfsskoðun sína að hlutlægum veruleika,“ segir hún. „Mér finnst allavega mjög áhugavert að hugsa um það á þann hátt.“ Hlédís segir tískuna takmarka- lausa þegar kemur að tjáningu. „Mér finnst gaman að geta verið milljón ólíkar og mótsagnakennd- ar útgáfur af sjálfri mér.“ Ef það er rangt að klæða sig eins og Elle Woods þá einfald- lega vil ég ekki hafa rétt fyrir mér. Hlédís sækir innblástur víða. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U R 2 3 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 D 6 -F 3 4 4 2 3 D 6 -F 2 0 8 2 3 D 6 -F 0 C C 2 3 D 6 -E F 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.