Jólatíðindin - 01.12.1927, Blaðsíða 2

Jólatíðindin - 01.12.1927, Blaðsíða 2
2 jólatíðindiN Desember 1027 ►f N ►I ,. N ►i » Frá HjáIpræðishernnm á Akureyri. N N N M Jólatíðindin. Hjálpræðisherinn hjer á landi hefir um margra ára skeið gefið út jólablað með iíku fyrir- komulagi og því, sem blað það, er hjer með kemur fyrir almenningssjónir hjer norðanlands. Um tilgang blaðsins þarf ekki að fjölyrða; nafn þess og efni ber það með sjer. Auglýsinga bálkur blaðsins ætti að geta verið hand- hægur leiðarvísir fyrir hina mörgu lesendur þess, þegar jólakaupin verða gerð og framvegis. — Útgefandinn væntir þess, að blaðið eigi gott erindi til manna, og biður þess, að blessun Drottins fylgi því úr garði. Jólatíðindin óska öllum lesendum sínum, nær og fjær, gleðilegrar jólahátíðar. Skrautlýst jólatrje lætur Hjálpræðisherinn á Ak- ureyri, að fengnu leyfi stjórnar kaupsfaðarins, setja upp á götum bæjarins fyrir og um hátíðirnar. í sambandi við jólatrjeð, sem verður 10 álna hátt með 120 mislitum ljósum, verður söfnunarbaukur; alt, sem í hann kemur, fer til jólaglaðningar barna og gamalmenna og annara, sem fátækir eru og; erfitt eiga með það, án hjálpar annarstaðar frá, að gera sjer glaða stund um jólin. Kostnaður við uppsetningu á skrautlýstu jólatrje er talsverður í byrjun, þar sem alt verður að kaupa, en sá góði kostur fylgir þessu fyrirkomulagi, að ljóskúlur og margt annað má nota frá ári til árs. Enginn vafi er á því, að mörgum mun þykja vænt um þessa nýbreytni, og hið fallega og ásjálega, upp- Ijómaða jólatrje, mun verða til þess, að margur stansar hjá því, jafnt gestkomandi sem bæjarmenn og leggur ríf legri skerf en áður í söfnunarbaukinn, jafnframt því sem hann eða hún minnist þess, að þessi nýbreytni og aukni tilkostnaður er einungis til þess gerður, að auka gleði annara. Auk jólahátíðanna fyrir gamalmenni og börn er til- ætlunin sú, að keypt sjeu kol, matur og föt fyrir það sem inn kemur með þessu móti, og þótt hjer sje engin eymd, þá er þó til fátækt hjer, svo að jafnvel yrði lítið um jólagleði sumstaðar, ef ekkert væri að gert, en ef eitthvað verulegt á að gera á þessu sviði, þá kostar það talsvert fje. Hverjum eyri, sem inn kemur, skulum vjer verja vel, og gera skilagrein fyrir opinberlega síðar. Pess má geta, að jólasöfnun með svona lög- uðu fyrirkomulagi tíðkast nú mjög á Norðurlöndum. Verslunarhúsið »Magasin du Nord« hefir meðal annars um mörg undanfarandi ár reist raflýst jólatrje á »Kongens Nytorv«, fyrir utan kauphöll sína, og gefið alt, sem inn safnaðist við trjeð, til jólasöfnunar Hjálp- ræðishersins. Petta væri gott til eftirbreytni. Vjer gefum vinnu vora, fyrir- og umhyggju, og lát- um einkis ófreistað, til þess að árangurinn geti orðið sem mestur og víðtækastur, og vjer gefum sjálf það, sem oss er unt, en þó myndum vjer, sem erum fá, ná skamt, ef ekki þjer, hinir mörgu, hjálpuðuð oss í starfinu, með því að gefa yðar skerf. Guð elskar glaðan gjafara. En besta og hreinasta jólagleðin er sú, að geta glatt aðra. u m m 'MMírnM Jólavörur Sí m m með Jólaverði íoHH bestar í HAMBORG mm á SIGLUFIRÐI. ML ¥1 QiedUeg jó(! UFavsœít Uomandi áv! Þökk fyrir viðskiftin. Vers/un V. j. Hjartarsonar, Siglufirði. Gleðileg ]ól! óskar öllum viðskiftavinum sínum RYELS VERSLUN, SIGLUFIRÐI. á~‘ (Ejfediíegva jóta og nýjávs óska jeg ötlum viðskiftavinum. Halldór Guðmundsson, Siglufirði. in O < K M w s GLEÐIUEG JÓL! a ts H W Alt til Rafljósa svo ódýrt sem mögulegt er. Innlagningar jafnt í skip sem hús. Hringið í síma 85. Kr. Dýrfjörð, Siglufirði. W M w H G O T T N Y T T A R ! Gleðileg jól! Goit komandi ár! óskar öllum viðskiftavinum sínum nœr og fjœr Hertevigs-bakarí, Siglufirði. á~~ (Ej[ediíeg jo( og nýtt áv (Ejíedieg jó(! (Sjott nýtt áv ! óskar matsöluhúsið „A“ öllum við- skiftavinum sínum nœr og fjœr. með þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu. Sig. /. Fanndal, Siglufirði. „Dorkasfjelagið*. Hjáplræðisherinn hefir víðast hvar, þar sem hann sfarfar erlendis, margskonar líknar- starfsemi með höndum. Gamalmennaheimili, barna- heimili, sjúkrahús, dagheimili fyrir börn, sumarbúsfaði fyrir fátæk börn og gamalmenni, hjúkrun sjúkra og margt fleira, svo sem björgunarheimili fyrir konur og karla, ódýr gistihús og matsölustaði. Hjer á landi starfar hann á þessu sviði eftir mætti, en erfiðleikarnir hafa oft reynst nokkuð margir, og er því margt komið skemra áleiðist, en vjer gjarnan hefðum viljað. »Dorkasfjelagið« er einn þáturinn í starfsemi Hjálp- ræðishersins hjer á íslandi og erlendis. Nafnið og hugmyndin er komið frá Postulasögunni, 9. kap. 36—42, en tilgangurinn er sá, að sauma föt úr nýju og notuðu efni, skjólgóðar flíkur, og gefa það fátæku fólki, helst börnum og gamalmennum. Jeg skal hjer með leyfa mjer að mælast til þess, og heita á konur og karla, að senda okkur notuð föt, afganga af fataefnum og efni í ný föt, sem hægt væri að sauma úr föt, eins og áður er sagt. Ennfremur skal jeg hjer með leyfa mjer að mælast til þess, að konur og stúlkur, sem gætu sjeð af einum eða tveim- ur tímum í viku, og sem kynnu að hafa löngun til þess að taka þátt í saumastörfum, svo að hægt yrði að gera föt úr því efni, sem kynni að koma, Ijetu mig vita það sem fyrst. Hafi þess gerst þörf í Joppe á þeim tímum, er Postulasagan varð til, að sauma »kyrtla og yfirhafnir« og gefa það fátækum, býst jeg við, að erfitt muni vera að koma með þá staðhæfingu, bygða á sannleika og mannúð, að þess gerist ekki þörf hjer hjá oss. Orð Jesú Krists eru sönn: Fátæka hafið þjer jafnan hjá yður. Vjer látum sækja notuð föt og fataefni heim til yðar; hringið í síma nr. 49 eða sendið tilkynningu til Hjálp- ræðishersins á Akureyri, munnlega eða skriflega, og færum vjer yður hjer með bestu þakkir fyrir væntan- lega þátt töku yðar, sem verður þegin með þökkum, hvort heldur hún kemur fram í orði eða verki eða hvorttveggju. Heimilasambandið, Heimilasambandið er einn þátturinn í starfsemi vorri. Hefir þeirri hreyfingu vaxið mjög fylgi á síðari árum um allan heim. Pað hefir stundum verið fundið sitthvað að starfsemi Hjálp- ræðishersins, einkanlega af þeim, sem ávalt eru í útá- setninga- og aðfinsluhug, en sem oft hafa átt erfitt með það sjálfir að leysa bau störf af hendi, sem heimta verulega sjálfsfórn. Peim hefir t. d. stundum þótt Hjálpræðisherinn slá of fast á stóru trommuna, hafa of hátt um sig. Hefðu þessar persónur komið á eina samkomu í Heimilasambandinu, myndu þær B. Guðmundsson, Siglufirði. r / Gleðjið vini yðar á jólunum \ með góðri bók. jj / Bókaverslun Hannesar Jónassonar, \ Siglufirði. Gleðileg jól og farsœlt nýjár með þökk fyrir viðskiftin á árinu sem er að líða. Siglufirði, 1. des. 1927. NJevsíun Sd. (Ffaffiðasonav. ---------------“------------------— — “? Qfeðiíeg jóí og fœvsœít nýtt áv óskar áJevsíun SMavgvjetav jfónsdóttuv, Siglufirði, öllum viðskifta vinum sínum nœr og fjœr. fafnframt minnir verslunin heiðraða bœjarhúa á, að BESTU innkaupin til jólanna gera menn þar- ---------------------------------------------^ brátt hafa sannfærst um, að innan vjebenda Hjálp- ræðishersins eru líka haldnar samkomur, þar sem kyrðin ríkir; þar sem róleg íhugun, samfara ánægju- legri, kurteisri framkomu er drotnandi. Slíkar stundir geta verið næsta nytsamlegar, og samkomur þessarar tegundar munu vafalaust treysta samhygðarböndin milli hjartnanna og heimilanna. Hugsjón Heimilasam- bandsins er háleit, starf þess yfirgripsmikið og vanda- samt, en blessun Guðs fylgir ávalt göfugum áformum og fórnfúsri viðleitni. Pað skiftir ekki mestu, að hópurinn sje fjölmennur^ hitt skiftir meiru, að hann starfi í hinum rjetta anda. Pá mun margt gott eiga rót sína að rekja til þess og kyrru, blessunarríku stundanna, sem heimilissambands- systurnar koma saman. Pað góða, sem blessar og göfgar mannssálina mest, og sem gerir mennina hæfa til þess að þjóna hinum lifanda Guði, er eins og hveitikornið, sem sáð er í ak- urinn, það þroskast og dafnar best í kytðinni.

x

Jólatíðindin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólatíðindin
https://timarit.is/publication/1369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.