Smári - 01.06.1929, Blaðsíða 7

Smári - 01.06.1929, Blaðsíða 7
S M Á R I 23 að hann mætir drottningunni. Hann hefir engin umsvif með það, heldur tekur í hár drottningar — hún hafði ekki snoðkoll — og dregur hana á því inn í saumastofuna, til þess að hún greiddi saumastúlkunni kaupið og bæði hana fyrirgefningar. Eins og nærri má geta, tók drottningin held- ur betur til að hljóða, og þegar kon- ungurinn heyrði þau óhljóð og öll ólætin, þaut hann sem brendur væri, ásamt öllu hirðfólkinu, til að komast eftir því, hvað á gengi. „Hver ósköp- in ganga nú á?“ kallaði konungur með öndina í hálsinum. „Nei, hvað gerir þú, þinn langi, ólánlegi mál- verkaþurkari? Dregurðu hennar há- tign á hárinu?" — „Já, það geri jeg, herra!“ mælti Langur og ljet sjer hvergi bregða. „Sú, er meö nálum stingur, má þola að veröa dregin á hárinu. Lát nú mig og saumastúlk- una fá árskaup okkar, sem við eig- um með rjettu, og munum við þá bæði fara leiðar okkar, því hvorugt okkar vill hjer lengur vera“. „Laun skulu þið bæði fá“, hrópaði konung- urinn, þrútinn af reiði. „Hirðmenn, færið þau bæði í fangelsið í hallar- turninum". — Var nú Langur og saumastúlkan tekin og sett sitt . í hvorn fangaklefann, en þó var að- eins þunnur veggur milli klefanna, en geðillur og grimmur hermaður var settur á vörð við klefadyr þeirra. „Nú var jeg of-bráður á mjer“, sagði Langur við sjálfan sig. „Heimskulega fórst mjer og mun mjer sjálfum í koll koma. En vesalings stúlkuna verð jeg að reyna að hugga“. — Svo tók hann til að blístra, og það gerði hann svo vel, að innan stundar hafði saumastúlkan gleymt hörmum sínum, Enda átti Langur engan sinn jafningja í blísturslistinni. Þá varð konungi að orði: „Ojæja, blístri hann og blístri ! Þarna skal hann hýrast, þangað til annan hávaxnari mann ber að garði, en þess mun langt að bíða“. Og auðvitað sagði alt hirðfólkið hiðsama. Heima í kotinu hjá karli gekk alt sinn vanagang. Geitin hálfsvalt eins og áður og mjólkaði því ógerðarlega lítið. Einn dag sagði Lengri við föð- ur sinn, að nú vildi hann fara út í heiminn og freista gæfunnar. Kvaðst hann brátt mundu koma heim aftur og færa karli fullan poka gulls. En nú var karl sínu tregari en áður. Ljet hann þó tilleiðast, og gaf leyfi sitt til fararinnar. Heldur þá Lengri að heiman og fer af tilviljun sömu leið og Langur hafði farið. Eftir sjö vikur hafði hann farið um þrjú kon- ungsríki og var þá kominn að höll- inni fögru, þar sem Langur bróðir hans hafði fengið vist. |jFrh.] Verðlaunaupphöf Fyrir 2 bestu botnana, sinn við hvort vísu-upphafið, er heitið verð- launum, 2 krónur fyrir hvorn botn- inn. Dómnefnd: Kennararnir Steinn Jónsson, Jónas Guðmundsson og Þorvarður Sigurðsson á Norðfirði.— Botnar frá kaupendum „Smára" koma aðeins til greina. I. Vín að drekka, vindling reykja veldur rekkum þungu fári. II. Yndislegur vetur var. Vorið köldu hótar. Botnarnir sendist ábyrgðarmanni Smára fyrir 1. júlí n. k. Verðlauna- botnarnir verða birtir í „Smára“ í sumar. <sVa/Ue>t ■CjóU ozdúzayd!

x

Smári

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Smári
https://timarit.is/publication/1371

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.