Vinnumarkaður - 01.11.1999, Síða 191
Greinargerð um aðferðir og hugtök
189
9. Greinargerð um aðferðir og hugtök
9. Synopsis of methods and concepts
í kafla 9.1 er fjallað um vinnumarkaðskannanir Hagstofun
Islands, framkvæmd þeirra, áreiðanleika talna og helstu
hugtök sem notuð eru. Þá er fjallað á svipaðan hátt um annað
talnaefni skýrslunnar í köflum 9.2- 9.5.
9.1 Vinnumarkaðskannanir Hagstofu íslands
9.1.1 Aðdragandi
Hér á landi hafa upplýsingar launagreiðenda um fjölda
vinnuvikna samkvæmt launamiðum lengi verið ein helsta
undirstaða mælinga á stærð vinnumarkaðar og fjölda ársverka
eftir atvinnugreinum, ky ni og búsetu. Þá hefur skráð atvinnuleysi
hjá opinberum vinnumiðlunum legið til grundvallar mati á
atvinnuleysi. Ymsir ágallar hafa verið á þessum gögnum.
Upplýsingamar um ij ölda vinnuvikna hafa ekki verið nákvæmar
og því ekki verið hægt að draga ályktanir af þeim um vinnutíma,
starfsstétt og fleira. Þá hafa upplýsingar um atvinnuleysi verið
ósambærilegar við gögn um atvinnuleysi erlendis og einskorðast
við talningu á skráðum atvinnulausum einstaklingum eftir
kyni og fáeinum öðrum atriðum.
í lok 9. áratugarins afréð Hagstofan því að efna til reglu-
bundinna kannana til að afla haldbærra og greinargóðra
gagna um vinnumarkaðinn hér á landi. Leitað var fyrirmynda
annars staðar á Norðurlöndum og athugaðar sambærilegar
kannanir í löndum Evrópubandalagsins.
Fyrsta könnunin fór fram í apríl 1991. Þær hafa síðan verið
gerðar í apríl og nóvember ár hvert.
9.1.2 Framkvœmd
Spurningalisti. Spurningar í vinnumarkaðskönnunum
Hagstofunnar eru byggðar á ýmsum fyrirmy ndurn úr sambæri-
legum könnunum í nágrannalöndunum, einkum á Norður-
löndunr. Þá hefur það verið haft að leiðarljósi að gögnin þarf
að senda í stöðluðu formi til Hagstofu Evrópusambandsins í
samræmi við samninga um Evrópska efnahagssvæðið.
Tímasetning og fjöldi spyrla. Þátttakendur í h verri könnun
eru spurðir um atvinnuþátttöku í tiltekinni viku, svokallaðri
viðmiðunarviku. Viðmiðunarvikan byrjar á laugardegi og er
síðasta heila vikan áður en viðtal fer fram. Þar eð hver
könnun stendur yfrr í 10-11 daga er viðmiðunarvikan færð
fram á áttunda degi fyrir þá þátttakendur sem þá eru eftir. í
fyrstu könnuninni var viðmiðunarvikan þó aðeins ein.
Venjulega er miðað við að fyrri viðmiðunarvika sé fyrsta eða
önnur vika mánaðar.
Part 9.1 of this synopsis deals with the Icelandic Labour
Force Survey (ILFS), its methods, reliability and principal
concepts. Other data sources are described in a similar
manner in parts 9.2-9.5.
9.1 The Icelandic Labour Force Survey
9.1.1. Previous labour force statistics
The principal source for labour force statistics in Iceland has
for a long tinre been information on working weeks derived
from tax returns as well as the official registration of
unemployment. These data, however, have many
shortcomings, e.g. little possibility of analysis according to
various socio-economic groups, lack of important variables
such as working hours and status in employment, and lack of
international comparability.
For these reasons Statistics Iceland (SI) decided to start its
own labour force survey in 1991 based on intemational
recommendations. The first such survey was conducted in
April 1991 and since then the survey has been conducted
twice a year, in April and November.
9.1.2. Implementation
Questionnaire. The ILFS questionnaire is based on
comparable questionnaires used in the Nordic countries. The
questionnaire has also been developed so that standardised
data can be sent to Eurostat in accordance with the EEA
agreement. Questions of particular national interest have
also been included.
Survey periods and number of interviewers. Each survey
has one reference week. As each survey is conducted for 10-
11 days, the reference week is moved forward after the
seventh day for the respondents who have not been reached
by then (Table 9.1). Usually the first reference week is the
first or second week of the interview month.
From November 1991 interviewers have been hired from
outside SI. For the most part the interviewers have had
previous experience in working with telephone surveys.
Tafla 9.1 Viðmiðunarvikur og meðalviðtalstími 1996-1998
Table 9.1 Reference weeks and mean length of interview 1996-1998
Framkvæmdatími Survey period Viðmiðunartími Reference weeks Fjöldi spyrla Number of interviewers Meðalviðtalstími Mean length ofinterview
Apríl 1996 20. apríl-2. maí 13.-26. aprfl 22 1,4 mín.
Nóvember 1996 9.-22. nóv. 2.-15. nóv. 21 6,8 mín.
Apríl 1997 12.-24. apríl 5.-18. apríl 24 6,4 mín.
Nóvember 1997 8.-19. nóv. 1.-14. nóv. 22 5,5 mín.
Apríl 1998 28. mars-8. aprfl 21. mars-3. apríl 21 5,8 mín.
Nóvember 1998 14.-26. nóv. 7.-20. nóv. 23 5,5 mín.