Vinnumarkaður - 01.11.1999, Blaðsíða 114
112
Atvinnuleysi
3. Atvinnuleysi
3. Unemployment
Yfirlit
I þessum kafla eru birtar töflur um atvinnulaust fólk. Töflunum
er skipt í 3 undirkafla. I fyrsta töflukaflanum er atvinnuleysi
sett fram eins og það er mælt í vinnumarkaðskönnun
Hagstofunnar. I öðrum hluta eru birtar töflur um skráð
atvinnuleysi. Þriðji undirkaflinn er aðeins ein tafla þar sem
borið er saman atvinnuleysi á Islandi og öðrum OECD-
löndum. Hér á eftir verður stiklað á því helsta sem fram
kemur í kaflanum. Þá verður gerð grein fyrir hugtökum og
aðferðum sem varða sérstaklega töflur í þessum kafla.
Atvinnuleysi á árinu 1998 var 2,7% miðað við 3,9% árið
1997. Það svarar til þess að 4.200 manns hafi að jafnaði verið
atvinnulausir á árinu miðað við 5.700 manns árið 1997. Á
árunum 1991-1998 var atvinnuleysi hlutfallslega mest á
árunum 1993-94 eða 5,3%. Árið 1998 voru heldur fleiri
konur en karlar atvinnulausar, eða 2.300 konur á móti 1.800
körlum. Atvinnuleysi var einnig hlutfallslega meira meðal
kvenna en karla, eða 3,3% á móti 2,3%. Atvinnuleysi var
meira á höfuðborgarsvæðinu en utan þess eða 3,2% á móti
2,1% á árinu 1998.
Synopsis
This chapter presents tables about the unemployed. Tables are
di vided into three sections. The fxrst presents unemployment as
it is measured in the Statistics Iceland labour market surveys.
Section two contains tables on registered unemployment. The
third section comprises a single table comparing unemployment
in Iceland with other OECD countries. The following is a
description of some of the highlights of this chapter. The
principle concepts and methodology relating to the tables in
this chapter are also outlined.
Unemploymentran at 2.7% in 1998, compared with 3.9% in
1997. This is equivalent to 4,200 people having been
unemployed on average throughout the year, compared with
5,700 the previous year. Over the period 1991-1998
unemployment was proportionally highest in 1993-94, at
5.3%. Unemployment in 1998 was higher among women than
men, with 2,300 women and 1,800 men without work.
Unemployment was also proportionally higher among women
than men, at 3.3% of the female labour force as against 2.3%
of the male component. Unemployment in 1998 ran higher in
the capital area than outside it, at 3.2% compared with 2.1%.
Mynd 3.1 Atvinnuleysi 1991-1998
Figure 3.1 Unemployment rates 1991-1998
%
..... Karlar
Males
Konur
Females
Atvinnuleysi er nokkuð misskipt eftir aldri. Árin 1991-
1998 hefur það jafnan verið mest í aldurshópnum 16-24 ára.
Árið 1998 var atvinnuleysi 6% í þeimaldurshópi samanborið
við 7,7% ári áður. Munur er á atvinnuleysi eftir menntun.
Atvinnuleysi er mun meira meðal þeirra sem aðeins hafa
lokið grunnmenntun miðað við þá sem hafa lokið menntun á
háskólastigi. Árið 1998 var atvinnuley si í fyrri hópnum 6,0%
en innan við 1% hjá þeim seinni.
Unemployment varies considerably according to age.
Over the period 1991-1998 it has consistently been highest
in the age group 16-24. Within this group the unemployment
rate was 6% in 1998 compared with 7.7% the year before.
There is also a difference in unemployment according to
educational background. Unemployment is much higher
among those who have only completed compulsory education,
compared with those who are university-educated. In 1998
unemployment was 6.0% and less than 1%, respectively.