Gistiskýrslur - 01.08.2000, Blaðsíða 18
16
Gistiskýrslur 1999
fjölgað um tvær frá árinu 1998 en 8 frá árinu 1997. Fjöldi
rúma í orlofshúsabyggðunum var 910 árið 1999 og hafði
þeim fjölgað um 88 (11%) frá 1998 en um 265 (41%) frá
árinu 1997 (sjá yfirlit 9).
Gistinætur í orlofshúsabyggðum voru um 44 þús. árið 1999
og hafði þeim fjölgað um 18% frá árinu 1998 en um 51%
frá árinu 1997. Hlutfall gistinátta Islendinga í orlofshúsa-
byggðum var á bilinu 62-67% á landinu öllu árin 1997-
1999. Sé landinu hins vegar skipt upp í þrjú svæði, eins og
gert er í yfirliti 10, sést að meira en þrír fjórðu hlutar gisti-
nátta, frá höfuðborgarsvæðinu vestur um landið til Norður-
lands eystra og að því meðtöldu, eru vegna Islendinga. Á
Austurlandi og Suðurlandi, þar sem mest er um gistinætur í
orlofshúsabyggðum, var aðeins um helmingur gistinátta
vegna íslendinga, árin 1997-1999. Eins og sést í yfirliti 10
voru rúmlega 20 þús. gistinætur í orlofshúsum á Austurlandi
og Suðurlandi eða um 46% af heildinni, en tæplega 16
þúsund (36%) á Norðurlandi og tæplega 8 þús (18%) á
höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi og Vestfjörðum. Mest var
aukningin á milli áranna 1998 og 1999 á höfuðborgar-
svæðinu, Vesturlandi og Vestfjörðum (20%) þá á Austurlandi
og Suðurlandi (19%) en minnst á Norðurlandi (16%). Ef
hins vegar er litið til breytingarinnar yfir tveggja ára tímabil,
snýst röðin við. Þá er aukningin mest á Norðurlandi (61%),
þá á Austurlandi og Suðurlandi (49%) og minnst á höfuð-
borgarsvæðinu, Vesturlandi og Vestfjörðum (40%).
10. yfirlit. Gistinætur í orlofshúsabyggðum eftir landsvæðum 1997-1999
Summary 10. Ovemight stays in holiday centres hy region 1997-1999
Landið allt Total Höfuðborgarsvæði og Vesturland Capital region and West Norðurland vestra og Norðurland eystra Northwest and Northeast Austurland og Suðurland East and South
Fjöldi Number Hlutfall, % Percent Fjöldi Number Hlutfall, % Percent Fjöldi Number Hlutfall, % Percent Fjöldi Number Hlutfall, % Percent
1997 29,2 100,0 5,6 100,0 9,9 100,0 13,7 100,0
Islendingar Icelanders 19,6 66,9 4,2 74,5 8,2 82,4 7,2 52.6
Utlendingar Foreigners 9,7 33,1 1,4 25,5 1,7 17,6 6,5 47,4
1998 37,4 100,0 6,5 100,0 13,8 100,0 17,1 100,0
Islendingar Icelanders 23,4 62,5 4,8 74,3 11,4 82.4 7,2 42,0
Utlendingar Foreigners 14,0 37,5 1,7 25,7 2,4 17,6 9,9 58,0
1999 44,2 100,0 7,9 100,0 15,9 100,0 20,4 100,0
Islendingar lcelanders 29,1 65,8 6,0 75,9 12,4 78,1 10,7 52,4
Utlendingar Foreigners 15,1 34,2 1,9 24,1 3,5 21,9 9,7 47,6
Með orlofshúsabyggðum er átt við húsaþyrpingu með a.m.k. þremur húsum sem eru leigð út gegn gjaldi. Notes: Holiday centres refers to clusters of at least
three summer houses or cabins (for hire).
Svefnpokagististaðir. Með svefnpokagistingu er átt við
legurými á dýnum á gólfi, yfirleitt í stórum vistarverum, t.d.
í skólum og félagsheimilum. Víða er boðið upp á svefnpoka-
gistingu í tengslum við niðjamót, skólaferðalög og
íþróttamót. Þegar um niðjamót er að ræða er gjaldtaka
sjaldnast í beinum tengslum við fjölda gesta heldur eru húsin/
salirnir leigðir út gegn föstu gjaldi og geta gestir þá valið
um hvort þeir gista inni eða í tjaldi. í þessum tilvikum hefur
verið gefinn upp fjöldi gesta á mótinu þannig að tjaldgisting
í tengslum við ættarmót er innifalin í svefnpokagistingunni.
Þetta á sérstaklega við um Suðurland þar sem mikið er um
ættarsamkomur. Mikilvægt er að hafa í huga að gistinátta-
talningin nær einungis til gistingar þar sem greiðslu er krafist.
Gisting skólabarna í skólum og íþróttahúsum yfir veturinn
fellur því sjaldnast undir svefnpokagistingu.
Skráðir svefnpokagististaðir voru 75 árið 1999. Eins og
sést í 11. yfirliti voru gistinætur á svefnpokagististöðum
rúmlega 27 þúsund árið 1997 en fækkaði í tæplega 20 þúsund
árið 1998. Þeim fjölgaði svo aftur í tæplega 23 þúsund árið
1999. Fjöldi gistinátta á svefnpokagististöðum hefur sveiflast
töluvert milli ára í hverjum landshluta fyrir sig en þó hafa
þær verið flestar á Suðurlandi (34-36% af heildinni) öll þrjú
árin frá 1997-1999 og fæstar á Austurlandi (4-6%). Einnig
hefur hlutfall gistinátta útlendinga af heildarfjölda gistinátta
á svefnpokagististöðum verið afar misjafnt bæði milli ára
og eftir landsvæðum.