Gistiskýrslur - 01.08.2000, Blaðsíða 15
Gistiskýrslur 1999
13
samdrátt upp á 1,7%. Minni er hlutfallslega aukningin yfir
sumarmánuðina og þá sérstaklega í júlí (3,5%) og ágúst
(2,9%). Þegar allt tímabilið 1996-1999 er skoðað, kemur
sama mynstur í ljós, þá fjölgaði gistinóttum um 36% og var
hlutfallslega aukningin mikil yfir vetrarmánuðina og þá
sérstaklega í febrúar (55,1 %), en minni yfir sumarmánuðina
og rak júlí restina með 26,2% aukningu yfir tímabilið. Á
tímabilinu 1996 til 1999 var mesta heildaraukningin á milli
áranna 1997 og 1998, nærri 18%. Hlutfall útlendinga af
þeim sem gista á hótelum og gistiheimilum á höfuðborgar-
svæðinu jókst á milli áranna 1998 og 1999, fór úr 83,4% í
85,7%. Það sama gildir um alla mánuði ársins en mesta
aukningin var í október, þá hækkaði þetta hlutfallið um 7,2
prósentustig, fór í 80,2. Þegar litið er til alls tímabilsins,
sem sýnt er í 4. yfirliti, hefur hlutfall útlendinga aukist,
bæði þegar litið er á heildina sem og einstaka mánuði nema
apríl og júlí, en þar lækkaði hlutfallið lítillega.
Yfirlit 5 sýnir þróun fjölda gistinátta á hótelum og gisti-
heimilum utan höfuðborgarsvæðisins. Þar sést að hlutfallsleg
aukning gistinátta á milli áranna 1998 og 1999 er 7,3%,
örlítið minni en á höfuðborgarsvæðinu. Þegar dreifing
aukningarinnar á milli mánaða er skoðuð, kemur hins vegar
í ljós allt annað, og nánast þveröfugt, mynstur við það sem
sést í yfirliti 4. Hér er hlutfallslega aukningin mikil yfir vor,
sumar og haustmánuðina, með júní (17,5%) og september
(18,6%) í fararbroddi. Undantekning frá þessu er þó ágúst
þar sem aukningin var 1,5%. Fjóra vetrarmánuði var hins
vegar samdráttur og sýnu mestur í febrúar, eða 17%. Þróunin
6. yfirlit. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum eftir landsvæðum 1996-1999
Summary 6. Ovemight stays at hotels and guesthouses by region 1996-1999
Gistinætur alls, þús. Overnight stays, thous. Hlutfallsleg breyting milli ára Change between years, % Hlutfall útlendinga, % Foreigners, percent oftotal
1996 1997 1998 1999 1998- 1999 1996- 1999 1996 1997 1998 1999
Alls Total 896.0 991,7 1.100,7 1.183,7 7,5 32,1 71,0 70,7 71,9 72,9 Total
Höfuðborgarsvæði 470,2 504,3 593,7 639,3 7,7 36,0 83,6 82,5 83,4 85,7 Capital region
Suðurnes 25,4 28,4 31,8 32,6 2,5 28,3 81,9 78,5 70,4 67,0 Southwest
Vesturland 48,9 58,2 57,4 62,8 9,3 28,3 52,4 53,6 57,0 52,6 West
Vestfirðir 23,0 24,2 24,2 27,2 12,5 18,4 23,0 37,2 26,4 27,7 Westfjords
Norðurland vestra 25,7 28,0 29,6 32,6 10,3 26,9 49,8 50,4 53,3 52,0 Northwest
Norðurland eystra 115,6 124,2 138,1 145,5 5,4 25,9 58,7 60,1 61.8 58,9 Northeast
Austurland 74,0 101,2 89,8 99,6 10,9 34,5 59,3 63,2 61,2 62,3 East
Suðurland 113,0 123,0 136,3 144,1 5,7 27,5 58,8 57,2 57,6 60,9 South
Mynd 6. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum eftir mánuðum árin 1996 og 1999
Figure 6. Overnight stays in hotels and guesthouses by month 1996 and 1999
1996
1999