Alþingiskosningar - 01.12.1993, Side 5
Formáli
Kosningaskýrslur voru fyrst gefnar út hér á landi árið 1882 og
tóku þær til alþingiskosninga árið 1880 og aukakosninga árið
1881. Árið 1912 var í Landshagsskýrslum birt skýrsla
Klemensar Jónssonar um allar almennar þingkosningar árin
1874-1911. Eftir þetta tóku við kosningaskýrslur Hag-
stofunnar og náðu hinar fyrstu til alþingiskosninga árin
1908-1914. Hagstofan hefur frá upphafi gefið út skýrslur
sínar um alþingiskosningar, forsetakosningar og þjóðar-
atkvæðagreiðslur í röðinni Hagskýrslur Islands og hefur þar
birst 31 rit um þessar kosningar. Þá hefur Hagstofan tekið
saman skýrslur um sveitarstjórnarkosningar frá árinu 1930
og lengst af birt í Hagtíðindum. En frá og með sveitar-
stjómarkosningum 1990 em þær gefnar út sérstaklega sem
hluti af Hagskýrslum Islands.
Árið 1988 gaf Hagstofan út í tveimur bindum allar skýrslur
sem gerðar höfðu verið um kosningar til alþingis og
sveitarstjórna, forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslur
tímabilið 1874-1987. Þessar skýrslur voru alls 43 að tölu, en
síðan hafa komið út skýrslur um forsetakjörið 1988,
sveitarstjórnarkosningar 1990 og nú alþingiskosningar 1991.
Þess má geta að á þeim hartnær 47 árum, sem liðu frá stofnun
lýðveldisins til síðustu alþingiskosninga, hefur verið kosið
15 sinnum til Alþingis. Fyrstu alþingiskosningarnar eftir
stofnun lýðveldisins fóru fram á árinu 1946 og frá því hafa að
meðaltali liðið 3 ár og 2 mánuðir milli alþingiskosninga.
Sú skýrsla, sem hér birtist um alþingiskosningarnar 1991,
er 46. kosningaskýrslan frá upphafi. Skýrslur um alþingis-
kosningar hafa breyst talsvert í áranna rás þótt skýrsluefnið
hafi verið hið sama. Hafa breytingamar ráðist fyrst og fremst
af breytingum ákosningalögum og kjördæmaskipan. Skýrslur
um alþingiskosningar breyttust verulega með þeirri skýrslu
sem tók til kosninganna 1987, og stafaði það af breytingum
á stjórnskipunarlögum árið 1984 og á kosningalögum það ár
og árið 1987. Meginbreytingin var sú að hinar flóknu reglur
um úthlutun þingsæta, sem fyrst vom í gildi í kosningunum
1987, gerðu það nauðsynlegt að fram kæmi í kosningaskýrslu
hvernig þingsætum væri ráðstafað og endanleg úrslit fengin.
Þessu er og fylgt í þeirri skýrslu sem hér birtist, og er hún með
svipuðu sniði og skýrslan um kosningarnar 1987.
Heimildir þær um alþingiskosningarnar 20. apríl 1991,
sem þessi skýrsla byggist á, eru eftirfarandi:
1. Tölur um kjósendur á kjörskrá og greidd atkvæði eru
eftirskýrslumundirkjörstjóma, semþærgeraáeyðublöð
og Hagstofan lætur í té.
2. Upplýsingar um framboðslista, þ.m.t. nöfn, starfsheiti
og heimilisföng frambjóðenda, eru eftir auglýsingum
yfirkjörstjórna þar að lútandi, en þær hafa verið
samræmdar. Þar sem upplýsingaratriði hefur vantað í
auglýsingu hefur þeim verið bætt í eftir öðrum
heimildum, svo sem eftir upplýsingum frambjóðenda
eða starfsmanna framboðsaðila. Fullt heimilisfang er
ritað ef það er í strjálbýli, en annars er aðeins getið
þéttbýlisstaðar.
3. Tölur um kosningaúrslit og úthlutun þingsæta em
fengnarúrskýrslumyfirkjörstjórnatillandskjörstjórnar
og úr skýrslum landskjörstjórnar til Hagstofunnar, en
hún hefur sjálf skipulagt framsetningu efnisins.
Á Hagstofunni hefur Guðni Baldursson séð um gagna-
söfnun, úrvinnslu og gerð þessarar skýrslu, en Sigurborg
Steingrímsdóttir annast umbrot ritsins.
Hagstofu Islands í desember 1993
Hallgrímur Snorrason