Alþingiskosningar - 01.12.1993, Page 5

Alþingiskosningar - 01.12.1993, Page 5
Formáli Kosningaskýrslur voru fyrst gefnar út hér á landi árið 1882 og tóku þær til alþingiskosninga árið 1880 og aukakosninga árið 1881. Árið 1912 var í Landshagsskýrslum birt skýrsla Klemensar Jónssonar um allar almennar þingkosningar árin 1874-1911. Eftir þetta tóku við kosningaskýrslur Hag- stofunnar og náðu hinar fyrstu til alþingiskosninga árin 1908-1914. Hagstofan hefur frá upphafi gefið út skýrslur sínar um alþingiskosningar, forsetakosningar og þjóðar- atkvæðagreiðslur í röðinni Hagskýrslur Islands og hefur þar birst 31 rit um þessar kosningar. Þá hefur Hagstofan tekið saman skýrslur um sveitarstjórnarkosningar frá árinu 1930 og lengst af birt í Hagtíðindum. En frá og með sveitar- stjómarkosningum 1990 em þær gefnar út sérstaklega sem hluti af Hagskýrslum Islands. Árið 1988 gaf Hagstofan út í tveimur bindum allar skýrslur sem gerðar höfðu verið um kosningar til alþingis og sveitarstjórna, forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslur tímabilið 1874-1987. Þessar skýrslur voru alls 43 að tölu, en síðan hafa komið út skýrslur um forsetakjörið 1988, sveitarstjórnarkosningar 1990 og nú alþingiskosningar 1991. Þess má geta að á þeim hartnær 47 árum, sem liðu frá stofnun lýðveldisins til síðustu alþingiskosninga, hefur verið kosið 15 sinnum til Alþingis. Fyrstu alþingiskosningarnar eftir stofnun lýðveldisins fóru fram á árinu 1946 og frá því hafa að meðaltali liðið 3 ár og 2 mánuðir milli alþingiskosninga. Sú skýrsla, sem hér birtist um alþingiskosningarnar 1991, er 46. kosningaskýrslan frá upphafi. Skýrslur um alþingis- kosningar hafa breyst talsvert í áranna rás þótt skýrsluefnið hafi verið hið sama. Hafa breytingamar ráðist fyrst og fremst af breytingum ákosningalögum og kjördæmaskipan. Skýrslur um alþingiskosningar breyttust verulega með þeirri skýrslu sem tók til kosninganna 1987, og stafaði það af breytingum á stjórnskipunarlögum árið 1984 og á kosningalögum það ár og árið 1987. Meginbreytingin var sú að hinar flóknu reglur um úthlutun þingsæta, sem fyrst vom í gildi í kosningunum 1987, gerðu það nauðsynlegt að fram kæmi í kosningaskýrslu hvernig þingsætum væri ráðstafað og endanleg úrslit fengin. Þessu er og fylgt í þeirri skýrslu sem hér birtist, og er hún með svipuðu sniði og skýrslan um kosningarnar 1987. Heimildir þær um alþingiskosningarnar 20. apríl 1991, sem þessi skýrsla byggist á, eru eftirfarandi: 1. Tölur um kjósendur á kjörskrá og greidd atkvæði eru eftirskýrslumundirkjörstjóma, semþærgeraáeyðublöð og Hagstofan lætur í té. 2. Upplýsingar um framboðslista, þ.m.t. nöfn, starfsheiti og heimilisföng frambjóðenda, eru eftir auglýsingum yfirkjörstjórna þar að lútandi, en þær hafa verið samræmdar. Þar sem upplýsingaratriði hefur vantað í auglýsingu hefur þeim verið bætt í eftir öðrum heimildum, svo sem eftir upplýsingum frambjóðenda eða starfsmanna framboðsaðila. Fullt heimilisfang er ritað ef það er í strjálbýli, en annars er aðeins getið þéttbýlisstaðar. 3. Tölur um kosningaúrslit og úthlutun þingsæta em fengnarúrskýrslumyfirkjörstjórnatillandskjörstjórnar og úr skýrslum landskjörstjórnar til Hagstofunnar, en hún hefur sjálf skipulagt framsetningu efnisins. Á Hagstofunni hefur Guðni Baldursson séð um gagna- söfnun, úrvinnslu og gerð þessarar skýrslu, en Sigurborg Steingrímsdóttir annast umbrot ritsins. Hagstofu Islands í desember 1993 Hallgrímur Snorrason

x

Alþingiskosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþingiskosningar
https://timarit.is/publication/1387

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.