Alþingiskosningar - 01.12.1993, Page 26
24
Alþingiskosningar 1991
9. Breytingar á framboðslistum
Changes in candidate lists
Samkvæmt 84. gr. kosningalaga er kjósanda heimilað að
breyta röð frambjóðenda á þeim lista, er hann kýs, með því að
rita tölustafinn 1 fyrir framan það nafn er hann vill hafa efst,
töluna 2 fyrir framan það nafn sem hann vill hafa annað í
röðinni og svoframvegis. Vilji kjósandi hafnaframbjóðanda
á þeim lista, sem hann kýs, strikar hann yfir nafn hans.
Frambjóðandinn hlýtur þá ekkert atkvæði af þeim seðli, en
þeir sem neðar standa á listanum færast upp um sæti.
12. og 3. mgr. 115. gr. segir síðan hvernig finna skal hverjir
frambjóðendur hafa náð kosningu áhverjum listaíkjördæmi.
A að reikna frambjóðendum atkvæðatölu á þennan hátt:
„Yfirkjörstjórn tekur saman þá kjörseðla þar sem engin
breyting hefur verið gerð á listanum. Þar telst efsta nafn
listans vera í fyrsta sæti, næsta nafn í öðru sæti o.s.frv. Næst
tekur yfirkjörstjórn alla þá kjörseðla þar sem kjósendur hafa
gert einh verj ar breytingar á röð frambjóðanda og telur atk væði
hvers frambjóðenda í hvert sæti listans.
Landskjörstjórn skal raða nöfnum frambjóðenda á hverjum
lista þannig að sá, sem hlotið hefur flest atkvæði í 1. sæti,
samkvæmt næstu málsgrein hér á undan, hlýtur það sæti. Sá
frambjóðandi, að þessum slepptum, sem hlotið hefur flest
atkvæði í 1. og 2. sæti samanlegt, hlýtur 2. sætið o.s.frv. uns
raðað hefur verið í sæti svo mörgum frambjóðendum listans
10. Kjörnir þingmenn
Elected Members ofthe Althing
I töflu 10 á bls. 64-66 eru taldir kjörnir þingmenn og
varamenn í hverju kjördæmi í alþingiskosningunum 1991.
Þar er sýnt hvaða stjórnmálasamtök þeir eru kjömir fyrir og
úthlutunartölur þær sem kjör þeirra byggist á og lýst er í
töflum 4-9 og í 8. og 9. kafla þessa inngangs.
Sex þingmennkjörnir í alþingiskosningunum 1987 afsöluðu
sérþingmennskuákjörtímabilinu: SverrirHermannssonl988,
AlbertGuðmundsson 1989, KjartanJóhannsson 1989,Kristín
Halldórsdóttir 1989, Guðrún Agnarsdóttir 1990 og Birgir
Isleifur Gunnarsson 1991.
Varamenn þeirra tóku sæti á Alþingi sem aðalmenn:
Kristinn Pétursson (f. 12. mars 1951), Benedikt Bogason (f.
17. september 1933), Rannveig Guðmundsdóttir (f. 15.
september 1940), Anna Olafsdóttir Björnsson (f. 4. júní
1952), Guðrún Halldórsdóttir (f. 28. febrúar 1935) og Sól veig
Pétursdóttir (f. 11. mars 1952). Benedikt Bogason lést 30.
júní 1989 og tók þá Ásgeir Hannes Eiríksson (f. 19. maí 1947)
sæti sem aðalmaður á Alþingi.
Fimm þingmenn sem setið höfðu sem aðalmenn við lok
nýliðins kjörtímabils voru ekki í framboði. Þeir voru Ásgeir
Hannes Eiríksson, Guðmundur G. Þórarinsson, Hreggviður
Jónsson, Stefán Valgeirsson og Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son. Af öðrum fráfarandi þingmönnum voru 8 svo neðarlega
á lista að þeir stefndu augljóslega ekki að endurkjöri:
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Alexander Stefánsson, Friðjón
Þórðarson, Geir Gunnarsson, Karvel Pálmason, Matthías Á.
Mathiesen. Ragnhildur Helgadóttir og Skúli Alexandersson.
Aðrir 4 þingmenn tóku sæti neðar á lista en nægði til kjörs í
að ljóst sé hverjir teljast þingmenn hans í kjördæminu og
hverjir varaþingmenn."
Reglur þessar eru allt aðrar en þær sem giltu frá hausti 1959
til 1983. Samkvæmtþeimreglumskyldireiknaframbjóðanda
atkvæðatölu að tveim þriðju hlutum eins og engin breyting
hefði verið gerð á listanum, en að einum þriðja hluta eftir
listanum að teknu tilliti til breytinga. Fyrsta sæti á lista hlaut
atkvæðatölu listans, en hvert sæti er á eftir fór hlaut það brot
af þessari atkvæðatölu að í teljara væri tala þeirra þingmanna
og varaþingmanna sem kjósa átti, að frádreginni tölu þeirra
sæta sem á undan voru á listanum og í nefnara tala þeirra
þingmanna og varaþingmanna sem kjósa átti.
Framtilsumars 1959 varatkvæðatalaframbjóðendareiknuð
á sama hátt nema að hún fór að öllu leyti eftir listanum eins
og hann var eftir breytingar.
Samkvæmt þeim reglum sem gilda nú skipta frambjóðendur
um sæti ef meiri hluti kjósenda færir þann sem ofar er niður
fyrir hinn með því að strika yfir nafn hans eða lækka hann á
lista með nýrri tölusetningu.
í aftasta dálki í töflu 10 á bls. 64-66 sést atkvæðatala sem
hver þingmaður hlaut í sitt sæti á lista eða ofar. Breytingar á
listum breyttu engu um röð manna á þeim í alþingis-
kosningunum 1991.
kosningunum 1987: Guðmundur H. Garðarsson var í 11.
sæti á lista, en listinn hafði haft 6 þingmenn í kjördæminu,
Kristinn Pétursson var í 3. sæti á lista sem hafði haft 2
þingmenn í kjördæminu og Guðrún Halldórsdóttir og
Þórhildur Þorleifsdóttir voru í 4. og 6. sæti á lista, en listinn
hafði haft 3 þingmenn í kjördæminu.
Átta hinna 46 þingmanna, sem sóttust eftir endurkjöri,
náðu ekki kosningu: Árni Gunnarsson, Danfríður Kristín
Skarphéðinsdóttir, GuðmundurÁgústsson. Jóhann Einvarðs-
son, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Júlíus Sólnes, Málmfríður
Sigurðardóttir og Óli Þ. Guðbjartsson.
Náðu því kjöri 38 af fráfarandi þingmönnum en nýkosnir
þingmenn voru 25: Árni R. Árnason, Árni Johnsen, Árni M.
Mathiesen, Björn Bjarnason, Davíð Oddsson, Einar K.
Guðfinnsson, Finnur Ingólfsson, Guðjón Guðmundsson,
Guðmundur Hallvarðsson, Gunnlaugur Stefánsson, Ingibjörg
SólrúnGísladóttir.IngibjörgPálmadóttir, JóhannÁrsælsson,
JóhannesGeirSigurgeirsson.JónaValgerðurKristjánsdóttir,
Kristinn H. Gunnarsson, Kristín Ástgeirsdóttir, Lára Margrét
Ragnarsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson, Sigbjörn Gunnars-
son, Sigríður A. Þórðardóttir, Sturla Böðvarsson, Tómas Ingi
Olrich, Vilhjálmur Egilsson og Össur Skarphéðinsson.
Þrír þessarajúngmanna höfðu verið kjörnir sem aðalmenn
á þing áður: Arni Johnsen (1983), Gunnlaugur Stefánsson
(1978) og Ólafur Ragnar Grímsson (1978 og 1979). Árniog
Ólafur Ragnar höfðu einnig tekið sæti á Alþingi sem varamenn.
Það höfðu einnig þau Einar K. Guðfinnsson, Finnur Ingólfs-
son, Jóhann Ársælsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Kristín