Alþingiskosningar - 01.03.2002, Page 13
Alþingiskosningar 1999
þurrabúðarmenn og aukaútsvarsgreiðslan var lækkuð niður
í 4 krónur. Afram hélst það skilyrði að menn væru ekki háðir
öðrum sem hjú.11 Arin 1908-1914 var kjósendatalan 14-
15% af íbúatölunni.
Konur og hjú fengu takmarkaðan kosningarrétt með
breytinguástjómarskránniárið 1915. Lágmarksaldurþeirra
var 40 ár en skyldi lækka um eitt ár árlega næstu 15 ár uns
aldursmark þeirra yrði 25 ár, eins og þeirra sem höfðu
kosningarrétt fyrir. Jafnframt var 4 króna aukaútsvarsgreiðsla
felld niður sem skilyrði fyrir kosningarrétti. En við kosningar-
réttarskilyrðin var því bætt að kjósandinn yrði að vera
fæddur hér á landi eða hafa átt hér lögheimili síðastliðin 5
ár.12 Við þetta komst kjósendatalan upp yfir 30% af mann-
fjölda og smáhækkaði síðan eftir því sem aldursmark nýju
kjósendanna lækkaði.
Með nýrri stjómarskrá árið 1920 var hið sérstaka aldurs-
marknýjukjósendannafelltniður. Þáféllniðurþaðskilyrðiað
kjósandi yrði að vera fæddur á íslandi en í stað þess kom að
hann ætti ríkisborgararétt hér á landi og hefði verið búsettur á
landinu síðustu fimm árin fyrir kosningar.13 Hækkaði nú
kjósendatalan svo að hún varð um 45% íbúatölunnar.
Með stjómarskrárbreytingu árið 1934 var aldursmark
allrakjósendalækkaðí21 ár. Sveitarstyrkþegaröðluðustnú
kosningarrétt. Þá féll niður það skilyrði að kjósandi þyrfti að
hafa átt lögheimili í kjördæmi sínu eitt ár hið minnsta.14 Urðu
kjósendur þá meiri hluti þjóðarinnar, um 56%. Fæðingum
fækkaði nokkuð á ljórða tug aldarinnar og óx því hlutdeild
fólks á kosningaaldri í íbúatölunni og komst í um 60% í
byrjun fimmta áratugarins. A sjötta áratugnum fjölgaði
bömum mjög en árgangar þeirra, sem náðu kosningaaldri,
vorufámennir. Hlutfallkjósendaákjörskráafíbúaljöldafór
því lækkandi allt til ársins 1967 þegar það var um 54%. Eftir
að farið var að byggj a kj örskrá á kj örskrárstofnum þj óðskrár,
frá og með árinu 1956, munu nákvæmari tölur um kjósendur
eiga nokkum þátt í að lækka hlutfallið, því líkur á að menn
séu ákjörskrá í fleiri en einni kjördeild hafaminnkað stórlega
við þetta. Frá þeim tíma eiga heldur ekki að vera með í
kjósendatölunni þeir sem náðu kosningaaldri eftir kjördag á
kosningarárinu, en samkvæmt þágildandi kosningalögum
voru þeir á kjörskrá þótt þeir fengju ekki kosningarrétt fyrr
en eftir kj ördag. Ekki eiga heldur að vera á kj örskrá þeir sem
dánir eru þegar kosning fer fram.
Kosningaaldur var lækkaður í 20 ár með stjómarskrár-
breytingu árið 196815 og af þeim sökum hækkaði kjósenda-
hlutfallið við forsetakjörið það ár. Jafnframt féllu niður þau
skilyrði að kjósendur skyldu hafa verið búsettir hér á landi
síðustu fimm árin fýrir kosningar og væru fjárráðir, heidur
nægði nú að eiga lögheimili á Islandi og vera eigi sviptur
lögræði. Síðan hefúr hlutfallið farið síhækkandi þar sem öll
fólksljölgun á landinu hefur orðið meðal þeirra sem eru á
kosningaaldri. Hlutfall kjósenda af íbúatölu landsins var
komið í 64% í alþingiskosningunum 1983.
Arið 1984 var kosningaaldur lækkaður í 18 ár með
stjómarskrárbreytingu og hafði það fyrst áhrif í alþingis-
kosningunum árið 1987. Kosningarréttur var að auki rýmkaður.
Annars vegar var lögræðissvipting ekki lengur látin valda
missi kosningarréttar og óflekkað mannorð varð ekki lengur
skilyrði fyrir kosningarrétti. Hins vegar skyldi taka á kjörskrá
þá sem fúllnægðu skilyrðum kosningarréttar og höfðu átt
lögheimili hér á landi á síðustu fjómm ámm talið frá 1.
desember næstum fyrir kjördag.16 Hlutfall kjósenda af íbúa-
tölunni hækkaði í 70% árið 1987.
Með breytingu á lögum um kosningar til Alþingis árið
1991 var tími sá sem brottfluttir íslenskir ríkisborgarar eiga
5. yflrlit. Kjósendur á kjörskrá á hvern þingmann í alþingiskosningum 1983-1999'
Summary 5. Voters on the electoral roll per each Member of the Althingi in general elections 1983—19991
Kjósendur á hvert þingsæti sem ráðstafað er til kjördæmis fýrir kosningar Voters per constituency seat allocated prior to the elections Kjósendur á hvert þingsæti að með- töldum sætum sem ráðstafað er eftir kosningar Voters per seat including seats allocated after the elections
1983 1987 1991 1995 1999 1983 1987 1991
Allt landið Iceland 3.081 2.765 2.948 3.047 3.196 2.516 2.721 2.901
Reykjavíkurkjördæmi 4.924 3.744 4.072 4.081 4.335 3.692 3.744 4.072
Reykjaneskjördæmi 6.624 3.578 4.033 4.047 4.557 3.680 3.578 4.033
Vesturlandskjördæmi 1.843 2.002 1.974 1.970 1.935 1.536 1,668 1.974
Vestfj arðakj ördæmi 1.280 1.362 1.313 1.267 1.139 1.280 1.362 1.094
Norðurlandskjördæmi vestra 1.347 1.459 1.438 1.439 1.368 1.347 1.459 1.438
Norðurlandskjördæmi eystra 2.685 2.560 2.631 3.162 3.169 2.301 2.560 2.631
Austurlandskjördæmi 1.616 1.804 1.822 1.807 1.730 1.347 1.804 1.822
Suðurlandskjördæmi 2.038 2.268 2.326 2.415 2.408 2.038 2.268 2.326
í kosningunum 1995 og 1999 var öllum þingsætum ráðstafað fyrir kosningar. In the 1995 and 1999 elections all the constituency seats were allocatedprior
to the elections.
11 1. mgr. 6. gr. stjómarskipunarlaga nr. 16/1903. 15 1. mgr. 1. gr. stjórnarskipunarlaga nr. 9/1968.
12 1. mgr. 10. gr. stjómarskipunarlaga nr. 12/1915. 16 1. mgr. 2. gr. stjómarskipunarlaganr. 65/1984, sbr. 1. gr. laganr. 66/1984.
13 1. mgr. 29. gr. stjómarskrár konungsríkisins íslands nr. 9/1920.
14 1. mgr. 4. gr. stjómarskipunarlaga nr. 22/1934.