Alþingiskosningar - 01.03.2002, Síða 14

Alþingiskosningar - 01.03.2002, Síða 14
12 Alþingiskosningar 1999 sjálfkrafa kosningarrétt lengdur úr fjórum árum í átta ár, talið frá 1. desember næstum fyrir kj ördag. Hafi menn átt lögheimili erlendis lengur en átta ár geta þeir áfram átt hér kosningarrétt hafi þeir sótt um það til Hagstofu íslands. Sé umsókn fullnægjandi skal umsækjandi tekinn ákjörskrá í því sveitar- félagi þar semhann átti síðast lögheimili hér á landi. Akvörðun um að einh ver sé þannig tekinn á kjörskrá gildir í ljögur ár frá 1. desember næstum eftir að umsókn var lögð fram.17 I 3. yfírliti er sýnd tala kjósenda á kjörskrá sem lögheimili áttu erlendis í kosningum frá því árið 1987. Sést þar að þeir sem áttu lögheimili erlendis við alþingiskosningar 1999 voru 7.984 eða4,0%kjósendatölunnarogsvararþaðtil2,9%afíbúatölunni. Þessum kjósendum fjölgaði frá alþingiskosningunum 8. apríl 1995 um 1.653 eða 26%. Kjósendum með lögheimili á íslandi fjölgaði á sama tímabili um 7.854 eða 4,2%. Breytingar á hlutfalli kjósenda af íbúafjölda hafa að hluta ráðist af íbúaskráningu námsmanna. Þeir sem fara utan til náms halda yfirleitt lögheimili sínu og kosningarrétti á Islandi. í lögum um lögheimili segir: „Sá sem dvelst erlendis við nám eða vegna veikinda, getur áfram átt lögheimili hér á landi hjá skyldfólki sínu eða venslafólki eða í því sveitarfélagi þar sem hann átti lögheimili er hann fór af landi brott enda sé hann ekki skráður með fasta búsetu erlendis.“18 Hliðstætt ákvæði var í lögheimilislögum frá 1960.19 Island gerðist aðili aðNorðurlandasamningi um almannaskráningu í febrúar 1969 er tók gildi 1. október saiua ár.20 Núverandi samningur um þetta efni er frá árinu 1990.21 Samningurinn felur það meðal annars í sér að sérhver einstaklingur, sem tekinn er á íbúaskrá í einu aðildarríki, skal um leið felldur af skrá í því landi sem hann flytur frá. Til þess að leysa þann vanda um ákvörðun kosningarréttar sem myndaðist vegna þessa, var sá háttur hafður árin 1971-1983 að fólk innan tiltekins aldurs (28 ára og yngra) sem flust hafði til annarra Norðurlanda var tekið á kjörskrárstofna. Sveitarstjórnir felldu þá af kjörskrárstofhum sem ekki voru námsmenn. Námsmenn sem voru yfir aldurs- markinu voru teknir á kjörskrá bæru þeir fram ósk um það. Islensku námsfólki á hinum Norðurlöndunum fj ölgaði mikið á árunum 1968-1983, ogþar sem það komfram í kjósendatölunni en ekkimannfjöldatölunni hækkaði kjósendahlutfallið umfram það sem annars hefði orðið. Með breytingum þeim á kosningalögum sem komu til framkvæmda árin 1987 og 1991 og fyrr var getið eiga allir þeir sem flust hafa af landi brott kosningarrétt tiltekinn áraljölda að öðrum lagaskilyrðum fullnægðum. Þar með er fallin niður hin sérstaka aðferð þjóðskrár til þess að koma námsmönnum annars staðar á N orðurlöndum á kj örskrárstofn fyrir alþingis- og forsetakosningar. Samkvæmt eldri kosningalögum skyldu menn vera á kj ör- skráí því sveitarfélagi þarsem þeiráttu lögheimili 1. desember næst áundan þeim tíma er kjörskrár skyldu lagðar fram. Við forsetakjör 25. júní 1988 áttu menn því kosningarrétt þar sem lögheimili þeirra var 1. desember 1987. Árið 1991 breyttust kosningalög þannig að þá skyldi taka menn á kjörskrá í því 17 1. og 4. gr. laga nr. 10/1991. '* l.mgr. 9. gr.laganr. 21/1990. 15 1. mgr. 10. gr. laganr. 35/1960. 20 Auglýsing nr. 2/1969 í C-deild Stjórnartíðinda. 21 Auglýsingnr. 13/1990 í C-deild Stjórnartíðinda. sveitarfélagi þar sem þeir voru skráðir með lögheimili samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár sjö vikum fyrir kjördag.22 Árið 1995 var viðmiðunartíma kjörskrár breytt úr sjö vikum í þrjár vikur fý’rir kjördag.23 Samkvæmt því skal taka menn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eru skráðir með lögheimili þremur vikum fýrir kjördag. Kjörskrá fyrir alþingiskosningar var því miðuð við skráð lögheimili 17. apríl 1999 samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár. Hagstofa Islands lætur sveitarstjórnum í té stofn að kjörskrá24 sem þær gera síðan svo úr garði að úr verður gild kjörskrá. Hana skal leggja fram eigi síðar en 10 dögum fyrir kjördag.25 Sveitarstjórn ber að leiðrétta kjörskrá fram á kjördag berist henni vitneskja um andlát eða að einhver hafi öðlast íslenskt ríkisfang eða misst það, svo og vegna athugasemda sem við hana eru gerðar efvið á. Hins vegar er óheimilt er að breyta kjörskrá vegna flutninga sem hafa ekki verið tilkynntir þjóðskrá fyrir viðmiðunardag kjörskrár þremur vikum fyrir kjördag.26 Með þessum ákvæðum féll niður hin sérstaka kærumeðferð hjá sveitarstjórn eða fyrir dómi sem var í gildi samkvæmt eldri lagafyrirmælum. Fjöldi einstaklinga á kjörskrárstofni hefur ævinlega verið hærri enáendanlegrikjörskrá, enfráárinu 1991 hefurmunað sáralitlu. Stafar það fýrst og fremst af því að ekki eru lengur teknir ákjörskrárstofn aðrir en þeir sem náð hafa kosningaaldri á kjördegi. Aðrar ástæðureru styttri framlagningarfresturen áðurogafnám kjörskrárkæra. Flestarbreytingarfrákjörskrár- stofni til endanlegrar kjörskrár verða nú vegna dauðsfalla en ríkisfangsbreytingar geta einnig skipt máli. I 4. yfirliti er sýndur fjöldi einstaklinga á kjörskrá og kjörskrárstofni eftir kjördæmum við alþingiskosningar 1999. Lögheimili erlendis áttu 7.984 manns eða 4,0% af öllum einstaklingumákjörskrá.Kjósendurákjörskrámeðlögheimili erlendis voru tiltölulega flestir í Reykjavík, 4,9% af öllum á kjörskrá þar, en fæstir í Norðurlandskjördæmi vestra. 1,9% af kjósendum á kjörskrá. Kjósendur sem á sínum tíma hefðu ekki getað tekið þátt í alþingiskosnum 1995 (ekki orðnir 18 ára á kjördag) voru 17.668 eða 8.8% þeirra sem voru á kjörskrá nú. Tafla 1 á bls. 34-38 sýnir fjölda kjósenda á kjörskrá eftir kyni í hverju kjördæmi, í hverju sveitarfélagi og á hverjum kjörstað þegar þeir eru fleiri en einn. I 5. yfírliti er sýnd tala kjósenda á hvern þingmann í hverju kjördæmi í alþingis- kosningum 1983-1999. í töflu 2 á bls. 39-41 sést einnig fjöldi kjósenda á kjörskrá í hverju kjördæmi og sveitarfélagi sem lögheimili áttu hér á landi og erlendis. Á skýrslum þeim til Hagstofunnar sem undirkjörstjórnir gera um kosninguna, ber að tilgreina tölu kjósenda sem lögheimili eiga erlendis. Nokkur misbrestur hefur orðið á því að þessu væri sinnt sem skyldi. Hér eru birtar tölur þessara kjósenda samkvæmt kjörskrárstofnum Hagstofunnar, enda mun fátítt að sveitarstj órnir geri breyting- ar á kjörskrá varðandi þá. 22 4. gr. laga nr. 10/1991. 23 6. gr. laga nr. 9/1995. 24 14. gr. laga nr. 80/1987, sbr. 3. gr. laga nr. 10/1991. 25 1. mgr. 19. gr. laga nr. 80/1987, sbr. 8. gr. laga nr. 9/1995. 26 1. mgr. 21. gr. laga nr. 80/1987, sbr. 10. gr. laga nr. 9/1995.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Alþingiskosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþingiskosningar
https://timarit.is/publication/1387

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.