Alþingiskosningar - 01.03.2002, Síða 15

Alþingiskosningar - 01.03.2002, Síða 15
Alþingiskosningar 1999 13 3. Kosningaþátttaka Participation in the elections Við kosningarnar 8. maí 1999 greiddu atkvæði alls 169.424 kjósendur eða 84.1% af öllum kjósendum á kjörskrá. Er þetta minnsta þátttaka í alþingiskosningum síðan 1942. Mest varð hún 92.1%árið 1956. Við þjóðaratkvæðagreiðsluna 20.-23. maí 1944 um niðurfellingu sambandslagasamningsins við Dani frá 1918 og stofnun lýðveldis var þátttakan 98.4%. í 2. yfirliti er sýnd kosningaþátttaka síðan 1874, íýrir kjósendur í heild svo og karla og konur sérstaklega. Við kosningamar 1999 greiddu atkvæði 83,8% karla sem voru á kjörskrá, en 84,4% kvenna. Þátttaka karla var meiri en kvenna í öllum alþingiskosningum til ársins 1991 en árið 1995 varð þátttaka kvenna meiri en karla í fyrsta skipti. Við forsetakjör 1980. 1988 og 1996 var þátttaka kvenna einnig meiri enkarla. Kosningaþátttakakvennaí alþingiskosningunum 1999 var meiri en þátttaka karla í fimm kjördæmum en minni í V esturlandskj ördæmi og N orðurlandskj ördæmunum tveimur. 16. yfirliti sést hve kosningaþátttaka var mikil í einstökum kjördæmum. Mest var kosningaþátttaka í Vesturlands- kjördæmi, 88,7%, og þar var jafnframt mest þátttaka karla, 90,1% en kvenna í Suðurlandskjördæmi, 89,2%. 1 Reykja- víkurkjördæmi var þátttakan minnst, 82,1%. Þátttaka karla og kvenna var einnig minnst þar, 81,3% og 82,8%. Hér verður þó að hafa í huga að þar eru langflestir á kjörskrá sem eiga lögheimili erlendis en nýta sér ekki kosningarrétt sinn. í töflu 1 er sýnt hve margir kjósendur greiddu atkvæði og hlutfallsleg þátttaka þeirra í hverju sveitarfélagi. Hver kjósandi er talinn í því sveitarfélagi þar sem hann stóð á kjörskrá en ekki þar sem hann greiddi atkvæði ef hann nýtti sér heimild til þess að greiða atkvæði í öðru sveitarfélagi í kjördæminu. I 7. yfirliti sést hvernig sveitarfélögin innan hvers kjördæmis og á landinu í heild skiptust eftir kosninga- þátttöku. Við alþingiskosningarnar 1999 liggja fyrir tölur um kjörsókn í 64 sveitarfélögum eftir því hvort kjósandi átti lögheimili hér á landi eða erlendis. I þessum sveitarfélögum voru kjósendur á kjörskrá 174.722, 167.470 með lögheimili á íslandi og 7.252 erlendis. Af þeim kusu 146.098 alls, þar af 144.655 með lögheimili innan lands og 1.443 utan lands. Kosningaþátttaka í þessum sveitarfélögum varð 83.6% í heild, 86,4% meðal þeirra sem áttu lögheimili hérlendis og 19,9% meðal þeirra sem áttu lögheimili erlendis. 4. Atkvæðagreiðsla á kjörfundi Voting at polling stations Heimild til þess að hafa fleiri en eina kj ördei ld í sveitarfélagi27 hefur verið notuð á ýmsum stöðum eins og sjá má í töflu 1. í Reykjavík voru 98 kjördeildir, þar af 97 í Reykjavíkur- kjördæmi og 1 í Reykjaneskjördæmi, 17 í Kópavogi, 12 í Hafnarfirði og 9 á Akureyri. Alls voru kjördeildir á landinu 325. Í 8. yfirliti sést tala kjördeilda í almennum kosningum frá því að hennar er fýrst getið í skýrslu um alþingiskosning- arnar 1931. Kjörstjóm má leyfa manni að greiða atkvæði þótt nafn hans 1. mgr. 6. gr. laga nr. 80/1987. standi ekki á kjörskrá í kjördeildinni ef hann sannar með vottorði að hann sé á kjörskrá í annarri kjördeild innan sama kjördæmis, hafi afsalað sér kosningarrétti þar og vottorðið sé gefíð út af undirkjörstjóm þeirrar kjördeildar.28 Mikilvægi þessa ákvæðis, sem hefur gilt ffá því 1916,29 hefúr farið síminnkandi frá þjóðaratkvæðagreiðslunni 1918, er 2,9% kjósenda neyttu þessa réttar. Þá og allt til sumarkosninga árið 1959 voru þessi atkvæði að hluta aðsend atkvæði sem fýrirséð var að kæmust ekki í heimakj ördeild kj ósenda áður en kj örfundi lyki. Við alþingiskosningar 1999 greiddu aðeins 5 kjósendur atkvæði á kjördegi í öðru sveitarfélagi en þar sem þeir stóðu á kjörskrá. Heimild 82. gr. kosningalaga nær einnig til atkvæða- greiðslu í annarri kjördeild innan sama sveitarfélags. Við kosningarnar 1999notfærðu 83 kjósendur sér þessaheimild. I Reykjavík hefur hún einkum verið notuð af kjósendum sem nýttu sér gott aðgengi fýrir fatlaða í húsi Sjálfsbjargar, en þar var kjördeild í öllum kosningum á árunum 1978-1998. Við alþingiskosningarnar 1999 var ekki talin þörf fýrir kjördeild þar því að aðgengi væri gott á öllum kjörstöðum í kjördæminu. I 9. yfirliti er sýnd tala þeirra karla og kvenna sem kusu í hverju kjördæmi samkvæmt útgefnu vottorði, og í 6. yfirliti sést hlutfallstala þessara atkvæða af heildartölunni. 5. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar Absentee voting Kjósandi sem gerir ráð fýrir því að hann geti ekki vegna fjarveru eða af öðrum ástæðum sótt kjörfúnd á kjördegi á þeim stað þar sem hann er á kjörskrá, hefúr heimild til að greiða atkvæði utan kjörfundar.30 Skilyrði þess að mega greiða atkvæði utan kj örfundar hafa verið rýmkuð á síðari árum. Við kosningarnar árið 1916, er slík atkvæðagreiðsla fór fýrst fram samkvæmt lögum frá árinu 1914, og lengi síðan var heimildin bundin við sjómenn og aðra, sem staddir yrðu utan þess hrepps eða kaupstaðar þar sem þeir stóðu á kjörskrá þá er kosning færi fram, og neyttu ekki hins almenna réttar til þess að greiða atkvæði á öðrum kjörstað í samakjördæmi (sbr. 4. kaflahéráundan).31 Arið 1974 var heimildin látin ná til þeirra sem samkvæmt læknisvottorði var ráðgert að dveljast myndu á sjúkrahúsi á kjördegi svo og barnshafandi kvenna sem ætla mátti að ekki gætu sótt kjörfund á kjördegi.32 Frá árinu 1983 máttu þeir einnig greiða atkvæði utan kjörfundar sem gátu ekki sótt kjörfund á kjördegi af trúar- ástæðum.33 Með nýjum kosningalögum árið 1987 er kjósanda, sem greiðir atkvæði utan kjörfundar, ekki lengur gert að tilgreina ástæðu þess að hann muni ekki geta sótt kjörfund á kjördegi. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur farið fram hjá 2' 1. mgr. 82. gr. laga nr. 80/1987. 29 32. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 28/1915. 30 62. gr. laganr. 80/1987. 31 1. gr. laga nr. 47/1914. Um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar giltu sérstðk lög sem voru ekki hluti laga um kosningar til Alþingis. Með nýjum kosningalögum árið 1934 voru ákvæði um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar felld inn i lög um alþingiskosningar. 32 2. gr. laganr. 15/1974. 33 2. gr. laga nr. 4/1983. 27
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Alþingiskosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþingiskosningar
https://timarit.is/publication/1387

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.