Neyslukönnun - 01.07.1993, Qupperneq 14
12
Neyslukönnun 1990
Tafla 3. Meðalstærð heimila og barnafjöldi eftir heimilisgerð og búsetu í neyslukönnun 1990
Table 3. Average size of household and children per household by type and residence in the 1990 expenditure survey
Fjöldi bama Fjöldi alls Fjöldi heimila
Number of Size of Number of
children household households
Heimilisstærð eftir heimilisgerð Size of household by type of household
Hjón/sambýlisfóik með böm 19 ára og yngri 2,3: 4,33 465 Couples with children 0-19 years
Hjón/sambýlisfólk án bama 2,00 95 Couples without children
Einstæðir foreldrar 1,31 2,31 32 Single-parent households
Einhleypingar 1,00 24 One-person households
Aðrar heimilisgerðir 1,21 4,38 174 Other households
Allir 1,54 3,63 790 All households
Heimilisstærð eftir búsetu Size of household by residence
Höfuðborgarsvæði 1,47 3,49 422 Capital area
Kaupstaðir utan höfuðborgarsvæðis 1,63 3,72 232 Towns outside Capital area
Önnur sveitarfélög 1,61 3,95 136 Other communes
Allt landið 1,54 3,63 790 Whole country
4.2 Heimilisgerð
Heimilum í neyslukönnuninni var skipt f fimm flokka eftir
fjölda einstaklinga á heimilum, aldri og innbyrðis tengslum
þeirra. Flokkamir voru þessir:
1) Hjón og sambýlisfólk ásamt bömum. Með barni er hér átt
við einstakling 19 ára og yngri enda sé hann sonur eða
dóttir húsráðenda, búi hjá þeim og hafi ekki eigin
fjölskyldu á framfæri sínu. Til að fjölskylda lendi í
þessum flokki má elsta bam ekki vera eldra en 19 ára. Sé
eitt eða fleiri barnanna yfir 19 ára aldri flokkast heimili
sem aðrar heimilisgerðir í flokki 5.
2) Hjón og sambýlisfólk án barna.
3) Einstœðirforeldrar ásamt börnum.
4) Einhleypir.
5) Aðrar heimilisgerðir. Hér eru t.d. talin heimili þar sem
eru börn eldri en 19 ára, heimili þar sem fleiri en tveir
ættliðir búa saman, og systkini, frændfólk eða vinir deila
húsnæði.
Sem fyrr segir reyndist hlutfall hjóna og sambýlisfólks
ásamt bömum of hátt miðað við það sem er í þjóðskrá en
hlutfall einhleypra og einstæðra foreldra var að sama skapi of
lágt. Því var vægi hjóna/sambýlisfólks með börn lækkað en
vægi einhleypra og einstæðra foreldra hækkað. Endanlegar
niðurstöður urðu þær að við útreikninga meðalgilda var
hlutfall heimila hjóna og sambýlisfólks með börn 67%, hjóna
og sambýlisfólks án barna 12%, einstæðra foreldra 7%,
einhleypra 9% og annarra heimilisgerða 5%.
4.3 Aldur
Á mynd 1 er borin saman aldurssamsetning þjóðarinnar og
allra þátttakenda í neyslukönnun árið 1990. Hlutfallslega
fleiri eru í yngri aldurshópum og færri í þeim eldri í
neyslukönnuninni en hjáþjóðinni í heild. Aldurshópamir 20-
24 ára og 25-29 ára skera sig þó nokkuð úr, en fremur
erfiðlega gekk að ná í fólk í þessum aldurshópum. Auk þess
vildi það síður taka þátt í könnuninni en fólk á miðjum aldri
og hið sama má segja um fólk í eldri aldursflokkunum, 55 ára
og eldri. Aldursdreifingin staðfestir að þeir sem helst vildu
taka þátt í neyslukönnuninni, vom hjón og sambýlisfólk með
börn og að hlutfall þeirra var of hátt í samanburði við
þjóðskrá.