Fréttablaðið - 12.10.2019, Side 88

Fréttablaðið - 12.10.2019, Side 88
Yfirlitssýning á verkum Jóhönnu K r ist ínar Yngvadóttur verður opnuð í Listasafni Íslands í dag, laugar­daginn 12. október. Yfirskrift sýningarinnar er Eintal og hún stendur fram í janúar 2020. Í tengslum við sýninguna kemur út bók frá bókaforlaginu Dimmu um Jóhönnu Kristínu eftir Ásdísi Ólafs­ dóttur listfræðing. „Jóhanna Kristín kom eins og stormsveipur inn í íslenskan mynd­ listarheim, vakti mikla athygli og var dáð. Hún átti stuttan feril og lést fyrir aldur fram,“ segir Harpa Þórs­ dóttir, safnstjóri Listasafns Íslands. „Verkin á sýningunni eru unnin á rétt tæpum áratug og stílbrögðin eru í stöðugri þróun.“ Harpa segir að verkin á sýn­ ingunni komi mjög víða að. „Við treystum á velvild fólks og það var gaman að geta safnað þessum fjölda verka saman,“ segir hún. Bersögli sálarinnar Um feril Jóhönnu Kristínar segir Harpa: „Hún lærði í Hollandi, kom heim og vakti fyrst athygli á sýning­ unni Gullströndin andar árið 1983 í JL húsinu. Fyrsta einkasýningin hennar var í Nýlistasafninu sama ár og hlaut einróma lof. Hún kom strax fram sem nánast fullskapaður og einstakur listamaður. Þegar hún kom fram á sjónar­ sviðið var eins og eldri kynslóð listamanna væri létt því þarna voru kraftmikil f ígúratíf mál­ verk af öðrum meiði en nýja mál­ verkið og konseptlistin víðs fjarri. Jóhanna Kristín og nýja málverkið eru stundum spyrt saman en það er ekki þannig. Hún er expressjónisti, tekur sitt frá expressjónismanum, við sjáum djúpstæðar tilfinningar á striga. Verk hennar eru mjög ólík því sem aðrir listamenn voru að gera á þessum tíma. Hún var gríðarlega fær, öf lugur teiknari, og það sést í skissum og pári hversu næm hún var. Hún var mjög einlægur lista­ maður, bersögli sálarinnar er það sem við sjáum. Fjölskylda og vinir segja að hún hafi verið glaðlynd manneskja en um leið dramatísk og það endurspeglast í verkunum.“ Heimildarmynd um listakonuna Myndir Jóhönnu Kristínar eru mest­ an hluta af fólki og þar eru konur mjög fyrirferðarmiklar. Dökkir litir eru áberandi í verkunum. „Litapall­ ettan er kröftug, ekki bara strokurn­ ar og pensilskriftin heldur líka lit­ irnir. Hún var mikið spurð um litina í viðtölum en við tengjum ósjálfrátt dökka litinn við vonleysi og sálarvíl, en hún tók nú ekki undir það. Hún sagði til dæmis í viðtali að Bragi Ásgeirsson, hennar gamli kenn­ ari, hefði litið verk hennar öðrum augum þegar hann hafði áttað sig á að í Japan væri svartur litur gleð­ innar. Hún átti fulla samleið með litnum og hélt sínu striki,“ segir Harpa. „Hún málaði sjálfa sig og sitt fólk, dóttur, systur, vinkonur og for­ eldra, en faðir hennar lést þegar hún var ung. Í sumum myndum vottar fyrir lífinu að handan. Í einu þekkt­ asta verki hennar Á ögurstundu eru trúartákn.“ Á sý ning unni verður sý nd heimildarmynd um listakonuna. „Frænka hennar, Guðrún Atladóttir, gerði þessa mynd fyrir nokkrum árum og hún var sýnd á sýningu í Gerðarsafni 2013. Þetta er minn­ ingarsaga fjölskyldunnar, þar er mikið af kvikmyndabrotum þar sem Jóhanna Kristín kemur fyrir og viðtöl við fólk sem þekkti hana mjög vel, studdi hana og hvatti.“ Djúpstæðar tilfinningar og bersögli sálarinnar á striga Í Listasafni Íslands er yfirlitssýning á verkum Jóhönnu Krist- ínar Yngvadóttur. Bók eftir Ásdísi Ólafsdóttur listfræðing um þessa stórmerku listakonu kemur út samhliða sýningunni. Varð fræg á einni nóttu Bókaútgáfan Dimma gefur út veglega bók um Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur (1953- 1991). Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur er höfundur en auk hennar skrifar Oddný Eir Ævarsdóttir hugleiðingar um listakonuna. Texti bókarinnar er bæði á íslensku og ensku. „Ég skrifa um líf hennar og list. List Jóhönnu Kristínar er svo samofin lífi hennar. Hún var skapmikil, ástríðufull og sérstakur persónuleiki. Hún átti við heilsubrest að stríða, var með öndunarfærasjúk- dóm sem dró hana til dauða þegar hún var einungis 37 ára,“ segir Ásdís. „Í bókinni fer ég í gegnum feril hennar. Hún var af þessari svo- kölluðu túlipanakynslóð sem lærði bæði á Íslandi og Hollandi. Með fyrstu einkasýningu sinni í Ný- listasafninu 1983 varð hún fræg á einni nóttu í íslensku listalífi. Hún kom strax fram sem þroskaður og mótaður myndlistarmaður og ferill hennar spannar aðeins um tíu ár. Hún var öflugur lista- maður fram á síðustu stundu og hefði gert stórkostlega hluti hefði henni auðnast lengra líf.“ Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Litapallettan er kröftug, ekki bara strokurnar og pensilskriftin, heldur líka litirnir, segir Harpa Þórsdóttir. Jóhanna Kristín Yngvadóttir. MYND/ÍVAR VALGARÐSSON 1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R48 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 1 2 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :5 3 F B 1 0 4 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 1 -A 8 2 0 2 4 0 1 -A 6 E 4 2 4 0 1 -A 5 A 8 2 4 0 1 -A 4 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 0 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.