Fréttablaðið - 12.10.2019, Blaðsíða 68
Þótt ítalskt biscotti sé ekkert endilega jólasmákaka þá eru þessar kökur ótrúlega góðar
og passa árið um kring. Margir
baka alltaf biscotti fyrir jólin.
Ítalir dýfa kökunum í kaffi eða
sætt vín.
Biscotti með súkkulaði
og möndlum
Ótrúlega góð uppskrift og ekki
svo f lókin.
150 g smjör
300 g sykur
Rifinn börkur af 1 appelsínu
3 egg
159 g möndlur
100 g dökkt súkkulaði
6 dl hveiti
3 tsk. vanillusykur
2 tsk. lyftiduft
Uppskriftin ætti að duga í 40
kökur.
Hrærið vel saman smjör og
sykur. Blandið því næst öllu öðru
saman við. Setjið meira hveiti ef
deigið verður mjög blautt. Skiptið
deiginu í fjóra parta og hnoðið
rúllur. Leggið þær á bökunarplötu
og þrýstið á lengjuna þannig að
hún f letjist aðeins út.
Bakið í 180°C heitum ofni í 25
mínútur. Takið úr ofninum
og látið aðeins kólna áður en
deigið er skorið niður í jafnstórar
sneiðar. Raðið þeim á bökunar-
pappír á bökunarplötu og setið
aftur í ofninn í 10 mínútur eða þar
til þær verða gullinbrúnar. Setjið
á rist og kælið. Kökurnar eiga að
vera þurrar og stökkar.
Það má breyta til með þessar
kökur með hnetum í staðinn fyrir
möndlur. Einnig má nota trönuber.
Jólasúkkulaðikökur
Hér er uppskrift að ekta brownies
sem hægt er að skreyta á mismun-
andi jólalegan hátt og taka með
sér í vinnuna. Hægt er að skera
kökurnar eins og jólatré, setja
ferska ávexti á þær eða jafnvel
blöndu af þurrkuðum ávöxtum.
Fallegar súkkulaðikökur búa til
skemmtilega jólastemmingu.
Uppskriftin ætti að gefa 12 kökur.
200 g dökkt súkkulaði, 70%
200 g smjör
4 egg
3 dl sykur
4 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
Til skreytingar:
Kakóduft
Þurrkaðar apríkósur, trönuber,
pekanhnetur, pistasíur
3 msk. hunang
½ tsk. kanill
Hitið ofninn í 150°C. Skerið
súkkulaðið smátt og setjið í skál
ásamt smjöri. Bræðið súkkulaðið
og smjörið yfir smávegis af heitu
vatni. Þegar súkkulaðið er bráðið
eru eggin hrærð saman við og þar á
eftir er sykrinum bætt saman við.
Þá er hveitið og lyftiduftið hrært út
í. Deigið á að vera kekkjalaust.
Klæðið form sem er 25x35 cm með
bökunarpappír. Hellið deiginu
yfir þannig að yfirborðið verði
slétt og fínt.
Bakið í 20 mínútur og kælið síðan
áður en kakan er skorin í jafnstóra
bita. Blandið saman hnetum,
þurrkuðum ávöxtum, hunangi og
kanil í skál. Setjið blöndu ofan á
hverja köku áður en hún er borin
fram.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
ER ALLT KLÁRT
fyrir jólahlaðborðin?
Með fallegar kökur í vinnuna
Það er huggulegt að bjóða vinnufélögunum upp á smá sætindi í desember. Það lífgar upp á
skammdegið. Vinsælt er að taka með sér piparkökur en það eru til aðrar tegundir sem eru góðar.
Ítalskar biscotti eru frábærar kökur. Góðar með kaffi eða sætu víni.
Súkkulaðikökur er hægt að skreyta
á margvíslegan máta.
8 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RJÓLAHLAÐBORÐ
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
2
-1
4
C
0
2
4
0
2
-1
3
8
4
2
4
0
2
-1
2
4
8
2
4
0
2
-1
1
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K