Fréttablaðið - 15.10.2019, Blaðsíða 32
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Hauks Arnar
Birgissonar
BAKÞANKAR
Frá vöggu til grafar gjöldum við ríkinu það sem ríkinu ber. Allt frá fyrstu bleyju-
kaupum foreldra okkar til síðustu
ráðstafana barna okkar vegna
andlátsins – skal greiddur skattur
af því. Skatturinn fer aldrei í frí.
Erfðafjárskattur er með ógeð-
felldari tekjuöf lunartækjum
ríkissjóðs en með honum þurfa
erfingjar okkar, sem í langf lestum
tilvikum eru börn og eftirlifandi
makar, að greiða skatt af því sem
við eftirlátum þeim á dánarbeð-
inum. Tíu prósent eigna okkar,
hvorki meira né minna.
Þeir, sem auðnast að skilja eftir
einhverjar veraldlegar eigur fyrir
af komendur sína, hafa auðvitað
margsinnis á lífsleiðinni greitt
skatta af þessum sömu eigum.
Það er ekki nóg, að mati ríkisins.
„Við skulum klípa 10% í viðbót
af líkinu,“ segir í lögunum – ef ég
leyfi mér að umorða lagatextann
örlítið.
Nú stendur loksins til að færa
skattprósentuna suður á bóginn,
í þrepum þó. Það kemur ekki á
óvart að hinir skattsjúku skuli
leggjast gegn lækkuninni. Þeir
segja engin rök hafa verið færð
fram fyrir henni, án þess að hafa
sjálfir reynt að réttlæta þennan
ömurlega skatt til að byrja með.
Lækkunin mun „kosta“ ríkissjóð
tvo milljarða á ári, segja þeir.
Þetta er mjög undarleg nálgun en
á sama tíma klassísk. Það er engu
líkara en að laun vinnandi fólks
tilheyri fyrst ríkinu og síðan þeim
sem strita fyrir þeim. Að stjórn-
málamennirnir hafi það hlutverk
að útdeila laununum til fólksins,
eftir að ríkið hefur tekið sitt. Ef
einhverjum dettur í hug að lækka
skatta þá líta hinir svo á að ríkið sé
að gefa eftir sína fjármuni! Þessu
er vitaskuld þveröfugt farið.
Út yfir
gröf og dauða
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Frettabladid.is færir þér
nýjustu fréttir dagsins og
ítarlega umöllun um
málefni líðandi stundar.
1
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
6
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
4
-1
0
1
4
2
4
0
4
-0
E
D
8
2
4
0
4
-0
D
9
C
2
4
0
4
-0
C
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
1
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K