Fréttablaðið - 15.10.2019, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.10.2019, Blaðsíða 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Sighvatur Arnmundsson sighvatur@frettabladid.is Það er afar einkennileg staða sem upp er komin innan NATO þegar eitt aðildarríkj- anna hagar sér með þessum hætti. xxxxxxx Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á eð Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is lakaðu á eð lö g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, ki pir og spe na g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartslá tur g Kvíði g Streita g Pi ringur Einke i agnesí skorts i t.i Árið 2011 var örlagaríkt ár. Árið sem ég varð móðir og árið sem ég missti barn.Að fara tómhent af fæðingardeild var eitthvað sem ég hefði ekki getað ímyndað mér að væri hægt, áður en ég upplifði það. Þessi tilfinning, að vera móðir án barns, finna fyrir kærleikanum en geta ekki beint honum í „náttúrulegan“ farveg, varð kveikjan að starfi Gleym mér ei – styrktarfélags þeirra sem missa á meðgöngu eða rétt eftir fæðingu. Við fundum kröftum okkar farveg, þrjár mæður sem áttum þessa sameiginlegu lífsreynslu og vildum gera okkar besta til þess að þeir for- eldrar sem þyrftu að upplifa svona missi myndu fá fræðslu, fá tíma til þess að kveðja börnin og finna styrk hvert í öðru. Vitneskjan um að aðrir skilji hvað þú ert að ganga í gegnum, meðal annars í gegnum stuðningshópinn sem Gleym mér ei heldur úti, gefur okkur styrk í sorginni. Það fundum við Þórunn og Hrafnhildur strax árið 2013 þegar við héldum fyrstu minningar- stundina. Samúð og samkennd Það getur verið erfitt fyrir aðstandendur þeirra sem missa á meðgöngu að vita hvernig á að bregðast við, hvað er „hjálplegt“ að segja eða gera. Samúð og samkennd eru grunnur að samskiptum í sorg, en það er líka skiljanlegt að fólk finni fyrir minnimáttarkennd þegar „hið ómögulega“ gerist, að barn deyi á undan foreldrum, þá eru engin rétt viðbrögð nema kærleikur. Í kvöld klukkan 20 í Fríkirkjunni er sjöunda minningarstundin um börnin sem við fáum ekki að sjá útskrifast, ekki að sjá vaxa úr grasi og fylgjumst ekki með læra að takast á við sorgir og gleði í lífinu. Í sjöunda skipti kveikjum við á kertum fyrir lítil ljós, njótum þess að elska þau og minnast, og við aðstandendur fáum að vera saman. Samvera í kærleik hjálpar okkur að læra að lifa með sorginni. Þegar gleðin breytist í sorg Anna Lísa Björnsdóttir formaður Gleym mér ei Verstu af leiðingar ákvörðunar Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að draga bandarískt herlið frá norður-hluta Sýrlands virðast því miður ætla að raungerast. Fréttir hafa borist af því að fjöldi liðsmanna Íslamska ríkisins hafi sloppið úr fangabúðum þar sem her- sveitir Kúrda hafa gætt þeirra. Kúrdar hafa þurft að færa hersveitir sem gæta liðsmanna Íslamska ríkisins til að mæta innrás Tyrkja. Það hefur svo aukið enn á glundroðann á svæðinu að Kúrdar hafa samþykkt aðstoð sýrlenska stjórnarhersins við að verjast innrásinni. Stríðsátök bitna alltaf verst á óbreyttum borgur- um og þau átök sem nú eru hafin eru engin undan- tekning. Íbúar á þessu svæði hafa þurft að þola nóg á síðustu árum og vonin um varanlegan frið fjarlægist enn. Fregnir af falli óbreyttra borgara eru þegar farnar að berast og á annað hundrað þúsund hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Baráttan gegn Íslamska ríkinu kostaði margra ára blóðug átök. Þar gegndu hersveitir Kúrda lykilhlut- verki og nutu aðstoðar Bandaríkjahers. Stjórnvöld þess sama ríkis hafa nú stefnt þeim ávinningi í voða. Þegar Íslamska ríkið stóð á hátindi sínum réð það yfir tæplega 90 þúsund ferkílómetra landsvæði en síðasta vígi þess féll í mars á þessu ári. Enn starfa þó hópar sem kenna sig við Íslamska ríkið víða um heim og atburðirnir nú gætu orðið til þess að ef la þá. Alþjóðasamfélagið hefur frá því að síðasta vígi Íslamska ríkisins í Sýrlandi féll brugðist Kúrdum með því að veita ekki aðstoð með hina fangelsuðu vígamenn. Hafa ýmis ríki neitað að taka við ríkis- borgurum sínum sem eru í haldi Kúrda. Aðgerðir Tyrkja og yfirlýsingar Erdogans forseta hafa vakið hörð viðbrögð alþjóðasamfélagsins. Trump hefur boðað viðskiptaþvinganir en óvíst er að þær hafi einhver áhrif. Íslensk stjórnvöld geta og eiga að fordæma innrás Tyrkja með skýrari hætti en gert hefur verið eins og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fyrsti varaformaður utanríkismálanefndar, sagði í gær. Það er afar einkennileg staða sem upp er komin innan NATO þegar eitt aðildarríkjanna hagar sér með þessum hætti. Þótt Tyrkir sjálfir beri auðvitað höfuðsökina er ekki hægt að horfa fram hjá þætti Bandaríkjafor- seta í þeirri stöðu sem upp er komin. Hann hefur sagst vilja koma Bandaríkjunum út úr endalausum stríðsátökum. Staðreyndin er sú að í Sýrlandi voru staðsettir um eitt þúsund bandarískir hermenn. Hlutverk þeirra hefur fyrst og fremst verið að þjálfa og aðstoða bandamenn sína en ekki að taka þátt í beinum hernaðaraðgerðum. Það voru sveitir Kúrda sem báru hitann og þungann af baráttunni gegn Íslamska ríkinu. Trump verður að átta sig á af leið- ingum þess að snúa baki við bandamönnum sínum. Gjörðir hafa afleiðingar Fylltu magann, ekki tankinn Veitingastaðnum Matstöðinni í gamla biðskýlinu á Kársnesi í Kópavogi verður senn lokað. Ástæðan er sú að Atlantsolía, sem á húsið og lóðina, hafði sagt upp leigusamningnum. Van- goldin leiga hugsuðu margir. Nei, ástæðan var frumlegri. Veitingastaðnum gekk allt of vel. Vandamálið var að viðskipta- vinirnir fylltu allir magann en ekki tankinn. Þegar var hvatt til sniðgöngu á eldsneytisfyrir- tækinu. Stjórnendur þess þurfa þó varla að hafa áhyggjur. Reiði Íslendinga gagnvart fyrirtækjum varir ekki lengi. Ég man það á ársfresti að ég er brjálaður út í Mjólkursamsöluna en man ómögulega hvers vegna. Það er þó von Vonir Íslands um sæti á EM fölnuðu eftir úrslit gærdagsins. Ekki eru allir sáttir við að missa kannski af lokakeppninni. Upp er að vaxa kynslóð ungs fólks sem er hreinlega vant því að Íslendingar séu í hópi bestu knattspyrnuliða. Á árum áður hefði maður gefið mikið fyrir að eiga smá von í slíkum undankeppnum. Hinir eldri eiga nefnilega enn erfitt með að trúa velgengni síðustu ára enda er rúmlega áratugur síðan við töpuðum sannfærandi fyrir Liechtenstein, þrjú núll. Slík niðurlæging heldur manni á jörð- inni og lætur mann njóta góðu stundanna! bjorn@frettabladid.is 1 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 1 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :3 6 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 4 -1 0 1 4 2 4 0 4 -0 E D 8 2 4 0 4 -0 D 9 C 2 4 0 4 -0 C 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 1 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.