Fréttablaðið - 15.10.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 15.10.2019, Blaðsíða 24
Það telst ætíð til tíðinda þegar Gerður Kristný sendir frá sér ljóða-bók, enda eitt öflugasta samtímaskáld þjóðar-innar. Ný bók er ein- mitt komin út, Heimskaut. Þar er að finna náttúruljóð að hætti Gerðar, þar sem náttúran er oft óblíð, en alls kyns sögulegir atburðir verða henni einnig að yrkisefni. „Elstu ljóðin í Heimskauti eru frá árinu 2013 en þau nýjustu bættust við á þessu ári. Á þessum tíma hef ég ferðast mikið um heiminn og bókin ber þess vitni. Ég hef haft fyrir venju að sækja mér ljóð á söfn sem ég hef heimsótt. Þess vegna er eitt ljóð frá Helfararsafninu í Washington þar sem ég tók eitt sinn þátt í pall- borðsumræðum um íslenskar bók- menntir og annað úr sjóminjasafn- inu í Karlskrona í Svíþjóð þar sem ég las upp Blóðhófni úti undir beru lofti. Þaðan sótti ég ljóðið Jakobs- stafurinn en það er áhald sem eitt sinn var notað til sjós til að reikna út staðsetningar,“ segir Gerður. „Síðan orti ég líka um hús þar sem ég hef fengið að dvelja við skriftir. Þar á meðal er hús Ingmars Bergman úti á sænskunni eyjunni Fårö, þar sem hann skrifaði hugmyndirnar sínar beint á náttborðið til að þær gleymdust nú ekki um leið og hann skriði fram úr. Gler hafði verið sett yfir borðið til að varðveita krotið. Ég ákvað líka að setja undir mig hausinn og yrkja um stríð. Ég reyndi að sjá Kolbein Tumason fyrir mér þegar hann orti „Heyr, himna smið- ur, / hvers skáldið biður“ rétt áður en hann vatt sér í Víðinesbardaga. Sálmurinn er ægifagur og Kolbeinn á skilið ljóð.“ Vinurinn blíði Á bókarkápunni getur að líta ljós- mynd Franks Hurley af áhöfninni á Endurance, skipi Shackletons sem fór í leiðangur á suðurheimskautið. „Þarna leika skipverjar sér í fótbolta áður en ísinn bryður skipið í sig og þeir halda fótgangandi af stað í mikla skelfingarferð. Ég sá sýningu með myndum Hurleys í Edinborg og fannst þær og leiðangurinn sjálfur magnaður. Tilgangsleysið í hetju- skapnum heillar mig. Þess vegna yrki ég um þessa áhöfn í Heim- skauti.“ Goðafræði kemur einnig við sögu í bókinni og í ljóðinu Þökk er talað um vininn blíða. „Loki fær Höð til að kasta mistilteini að Baldri, því eina sem getur banað honum. Þegar allt í veröldinni grætur Baldur breytir Loki sér í tröllkonuna Þökk og fer þá með eitt sterkasta kvæði sem ort hefur verið á íslenska tungu og hefst á orðunum: „Þökk mun gráta / þurrum tárum …“ Svona lagað yrkir karl í konugervi. Loki er staðfastur fýr og laus við alla með- virkni. Þess vegna kemur Baldur ekki til baka og það er hann sem er vinurinn blíði. Síðan var ég líka að velta þessu sérstaka nafni „Þökk“ fyrir mér.“ Kynni af ofurhetju Lokaljóðið er bálkurinn Dauði Hjartar. Um hann segir Gerður: „Fyrir fáeinum árum útbjuggu Danir vandaða netsíðu um Íslend- inga sög u r na r. Þeir báðu nor- ræna höfunda að semja rit- gerð, bálk eða smásögu út frá völdum köf l- um úr forn- b ó k m e n n t - unum. Ég kaus að semja bálk- i n n D auð a Hjar tar um b a r d a g a br æ ð r a n n a G u n n a r s , K o l s k e g g s og Hjartar við Eystri- R a ng á . Á l e i ð i n n i l e g g s t Gunnar til svefns og d r e y m i r að úlfar drepi Hjört. Þetta er vitaskuld fyrirboði en hann kemur ekki í veg fyrir að bræðurnir haldi í bardagann, enda eru þeir hetjur og hetjur verða að standa sig. Framan af gengur bardaginn alveg prýðilega. Bræðurnir stinga auga úr einum óvinanna, kasta steini í hausinn á öðrum og höggva höfuð- ið af þeim þriðja. Þetta hefur eflaust verið eins og að skora sirkusmark í handbolta. Allt í einu er Hjörtur samt rekinn í gegn með spjóti og þar með rætist fyrirboðinn og Gunn- ar reiðir Hjört, bróður sinn, heim á skildi sínum. Mig langaði til að leiða móður þessara þremenninga fram í sviðljósið, hana Rannveigu. Ég efast um að það hafi verið gaman að eiga þessar hetjur að sonum. Það var ekki aðeins Njáls saga sem veitti bálknum innblástur, heldur líka kynni mín af ofurhetjunni Iron Man úr Marvelmyndunum. Þeir sem eru forframaðir í þeim myndum þekkja einkenni hans í kvæðinu.“ Fjör á Mön Ljóðabækur Gerðar hafa vakið mikla athygli erlendis og hún er mikið á upplestrarferðalögum. „Ég var á bókamessunni í Turku þar sem Drápa var að koma út í f innskri þýðingu Tapio K o i v u k a r i . Sálumessa er nýkomin út í D a n m ö r k u í þýðingu Eriks S k y u m - N i e l - sen. Það er líka von á norsk r i S á lu me s su og spænskum Blóð- hófni.“ G e r ð u r v a r nýlega á sérstakri bókmenntahátíð á dönsku eyjunni Mön. Spurð um þá hátíð segir hún: „Þangað er einum h ö f u n d i b o ð i ð árlega. Byrjað var á að bjóða Günther Grass en þá var Haruki Murakami boðið og þriðja árið var hátíðin helguð verkum Karls Oves Knausgaard. Kim Leine og Kerstin Ekman hafa líka verið á meðal gesta. Nú var það ég sem hélt uppi fjörinu. Ég var svo heppin að ALDAorchestra kom með mér ásamt tónskáldinu Helga Rafni Ingvarssyni. Hann samdi tónverk við Drápu að beiðni Poet in the City í London. Við f luttum verkið einmitt þar í borg fyrir fullu húsi nú í september. Þá las ég á ensku en á Mön tók ég fram dönsku þýð- inguna. Rétt eina ferðina breiddi djöfullinn í kvæðinu út vængina og leið að ljósi í risi í bárujárnshúsi í Reykjavík.“ Heimskaut Gerðar Kristnýjar Skáldkonan kemur víða við í nýrri ljóðabók. Yrkir meðal annars um náttúru, sögulega atburði og magnaðan leiðangur. „Á þessum tíma hef ég ferðast mikið um heiminn og bókin ber þess vitni.“ FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Hvað? Hvenær? Hvar? Þriðjudagur hvar@frettabladid.is 15. OKTÓBER Tónlist Hvað? Minningarstund um Ingólf Guðbrandsson Hvenær? 19.00 Hvar? Iðnó. Tónleikar og kaffiveitingar. Fjöldi þekkra tónlistarmanna kemur fram. Miðaverð 2.000 kr. Hvað? Jazzkvöld Hvenær? 20.30 Hvar? Kex hostel Kvartett gítarleikarans Andrésar Þórs Gunnlaugssonar skemmtir. Aðgangur ókeypis. Hvað? Jazz í Salnum Hvenær? 20.00 Hvar? Salurinn Kópavogi Jazzpíanistinn Gwilym Simcock leikur. Miðaverð 5.900 kr. Hvað? Milonga Hvenær? 20.30 Hvar? Iðnó Argentínskur tangó dunar. Dj er Lára og gestgjafi er Svanhildur Óskars. Aðgangur 1.000 kr. en frítt fyrir 30 ára og yngri. Hvað? Afmælistónleikar Hvenær? 21.00 Hvar? Forsæti í Flóahreppi Dagskrá í tilefni af 75 ára afmæli sr. Gunnars Björnssonar. Fram koma, ásamt afmælisbarninu, sem leikur á selló, Agnes Löve, píanó- leikari og fyrrverandi tónlistar- skólastjóri, og Haukur Guðlaugs- son, organleikari og fyrrverandi söngmálastjóri þjóðkirkjunnar. Myndlist Hvað? Listasafnið og Akureyri Hvenær? 17.00 Hvar? Á listasafninu Arndís Bergsdóttir safnafræðingur heldur fyrirlestur. Hvað? Tónverk, myndlist og vídeó- verk Hvenær? 20.00 Hvar? Alþýðuhúsið á Siglufirði Rafnar, Dušana og Framfari halda litríkan fögnuð. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÞAÐ VAR EKKI AÐEINS NJÁLSSAGA SEM VEITTI BÁLKNUM INNBLÁSTUR, HELDUR LÍKA KYNNI MÍN AF OFURHETJUNNI IRON MAN ÚR MARVELMYNDUNUM. Ingólfur Guðbrandsson. 1 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 1 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :3 6 F B 0 3 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 4 -1 9 F 4 2 4 0 4 -1 8 B 8 2 4 0 4 -1 7 7 C 2 4 0 4 -1 6 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 3 2 s _ 1 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.