Fréttablaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 16
Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is,
MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Sameinaður
Eyjafjörður
auðveldar
mönnum að
standa saman
að uppbygg-
ingu atvinnu
og þjónustu
enda er
svæðið eitt í
þeim skiln-
ingi.
Davíð
Stefánsson
david@frettabladid.is
Árið 2016 tilkynnti morgunkornsframleiðand-inn Kellogg’s að fyrirtækið hygðist hætta að auglýsa á vefmiðlinum Breitbart. Breitbart er
vinsæll fréttamiðill meðal öfgahægrimanna í Banda-
ríkjunum. Vefsíðan sem tengdist Donald Trump
nánum böndum hafði lengi verið sökuð um kynþátta-
hatur, kvenfyrirlitningu og andúð á múslimum. Á
miðlinum mátti lesa fyrirsagnir á borð við: „Pólitísk
rétthugsun verndar nauðgunarmenningu múslima.“
Viðskiptavinum Kellogg’s misbauð að morgunkorns-
framleiðandinn auglýsti á Breitbart. Þeir kvörtuðu og
Kellogg’s brást við með fyrrgreindum hætti.
Konur, Kína, kolefnisfótspor
Nýverið fór Íslandsbanki í naflaskoðun. Í kjölfarið
ákvað bankinn að tileinka sér samfélagsábyrgð. „Í dag
þurfa umhverfismál líkt og jafnréttismál að vera mál-
efni sem eru rædd eins og hver önnur viðskipti inni á
borði framkvæmdastjórnar,“ sagði Edda Hermanns-
dóttir, markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka,
í blaðagrein. Fyrirtækið hugðist hætta að flytja inn
plastsparibauka frá Kína, hætta að prenta skýrslur
á pappír og kveðja „auglýsingar hjá fjölmiðlum sem
bjóða upp á afgerandi kynjahalla“.
Í kjölfar greinarinnar ætlaði allt um koll að keyra.
Það var þó ekki kolefnisfótsporið og plastbaukarnir
frá Kína sem fóru fyrir brjóstið á fólki. Heldur kon-
urnar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Miðflokksins, spurði hvort það væri ekki „óhugnan-
legt“ þegar „banki ætlar að fara að hlutast til um það
hvernig fjölmiðlar eru reknir?“. Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra sagði að uppátækið kæmi sér
„spánskt fyrir sjónir“. Hjálmar Jónsson, formaður
Blaðamannafélagsins, sagði í viðtali að Íslandsbanki
ætti „að sjá sóma sinn í því að biðjast afsökunar“.
Fræg er tilvitnun um tjáningarfrelsið sem gjarnan
er eignuð heimspekingnum Voltaire: „Ég fyrirlít það
sem þú hefur að segja en ég léti lífið til að verja rétt
þinn til að segja það.“
Tilvitnunin hér að framan endurspeglar viðhorf
undirritaðrar til tjáningarfrelsisins. Ég hef varið rétt
óvinsælla einstaklinga til að segja óvinsæla hluti, rétt
Jyllands-Posten til að birta Múhameðs-teikningarnar,
rétt breska íhaldsmannsins Douglas Murray til að tala
á Íslandi. Ég skrifaði einu sinni heilan pistil til varnar
Sigmundi Davíð eftir að hann sagði lélegan brandara
á Snapchat. Ég á mér fáar sannfæringar í lífinu – en trú
mín á mikilvægi tjáningar- og prentfrelsis er ein sú
sterkasta.
Það er því huggulegt að fá liðsauka í baráttunni,
heilan karlakór sem syngur af nýfundinni ástríðu um
tjáningarfrelsið. Aðeins einn galli er á gjöf Njarðar:
Íslandsbankamálið hefur ekkert með kúgun á
tjáningarfrelsinu að gera.
Voltaire sagði ekki: „Ég léti lífið til að verja rétt þinn
til auglýsingatekna.“ Fyrirtækjum er frjálst að velja
hvar þau auglýsa. Fjölmiðlum er á sama tíma frjálst
að segja það sem þeim sýnist innan ramma laganna.
Fólki er frjálst að gagnrýna það. Fólki er frjálst að
gagnrýna fyrirtæki sem auglýsa hjá fjölmiðli sem því
mislíkar: Það kallast tjáningarfrelsi. Því tjáningar-
frelsi er ekki bara fjölmiðla; það er allra.
Ef íslenskur fjölmiðill birti grein um „nauðgunar-
menningu múslima“ og Íslandsbanki hætti að auglýsa
hjá viðkomandi miðli í kjölfarið, stæði samfélagið
á öndinni? Ég leyfi mér að efast um það. En ef málið
snýst um konur horfir það öðruvísi við. Því eins og
John Lennon orti: „Woman is the nigger of the world.“
Það var reyndar Yoko Ono sem á heiðurinn af
umræddri ljóðlínu sem annar tveggja höfunda
textans. Og það var heldur ekki Voltaire sem ritaði
hin f leygu orð: „Ég fyrirlít það sem þú hefur að segja
en ég léti lífið til að verja rétt þinn til að segja það.“
Það var kona að nafni Evelyn Beatrice Hall. En við
erum öll búin að gleyma því. Því karlar eiga veröld-
ina, orðið og auðinn og þeir syngja nú af fullri raust
því þeir vilja halda áfram að eiga veröldina, orðið og
auðinn.
Evelyn Beatrice Hall. Ha, hver?
NEYSLUBREYTINGAR OG ÁHRIF
Á MATVÆLAFRAMLEIÐSLU
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Á BONDI.IS
Matvælalandið Ísland og Landbúnaðarklasinn standa
fyrir opinni ráðstefnu á Hótel Sögu um neyslubreytingar
og áhrif þeirra á matvælaframleiðslu þriðjudaginn
5. nóvember kl. 13.00-16.00.
M
AT
VÆLALANDIÐ
ÍSLAND
FJÁRSJÓÐUR
FRAMTÍÐAR LANDBÚNAÐAR
K L A S I N N
LANDBÚNAÐAR
K L A S I N N
Íbúar fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi kusu nýverið að sameina sveitarfélögin. Niðurstaðan var afgerandi og þátttaka góð. Þetta er ánægju-legt fyrir margra hluta sakir.Íbúarnir geta nú sameinast um betri þjónustu og rödd þeirra verður sterkari.
Þeir fagna sem vilja sjá landsbyggðina blómstra með
sterkari sjálfbærari sveitarfélögum. Þau gegna lykil-
hlutverki með því að bjóða annan búsetuvalkost en
Reykjavík eða jafnvel höfuðborgarsvæðið frá Hvítá í
Borgarfirði til Hvítár í Árnessýslu.
Það þarf líka að efla sveitarstjórnarstigið sem mikil-
vægan hluta íslensks lýðræðis og samfélagsþátttöku.
Með öflugum sveitarfélögum getum við fært fleiri
verkefni frá ríkinu þannig að þjónusta við fólk sé nálæg.
Sú hugmyndafræði sem liggur að baki sameining-
unni á Austfjörðum lýtur að sameiningu stjórnsýslu en
ekki byggða. Þrátt fyrir aukna samvinnu byggðanna
þurfa séreinkennin ekki að tapast þótt breytt sé um
nafn sveitarfélagsins. Áfram halda Seyðisfjörður og
Egilsstaðir sínum sérkennum og sjálfsmynd. „Heima-
stjórnum“ verður komið á sem munu auka áhrif heima-
manna á þjónustu í nærumhverfi sínu.
Með þetta í huga er sérstakt að ekkert heyrist af hug-
myndum um sameiningu sveitarfélaganna við Eyja-
fjörð. Byggð sem þarf nauðsynlega að efla samkennd og
samstöðu íbúa til að gæta hagsmuna sinna betur.
Í Sóknaráætlun Norðurlands eystra til ársins 2024 er
sagt að íbúar ættu að hætta „að beita gömlum meðulum
í heimi sem breytist hratt“. Jafnframt verði að sporna
við því „að gera sömu hlutina á tveimur stöðum“. Samt
er sameining sveitarfélaganna ekki nefnd á nafn.
Sameinaður Eyjafjörður auðveldar mönnum að
standa saman að uppbyggingu atvinnu og þjónustu
enda er svæðið eitt í þeim skilningi.
Sameinað getur svæðið staðið vörð um eigin hags-
muni og síður verður gengið fram hjá því.
Sameinað er Eyjafjarðarsvæðið og Akureyri sterkari
búsetuvalkostur fyrir landsmenn.
Ein Eyjafjarðarbyggð þýðir að hægt er að taka rök-
réttari ákvarðanir í skipulagsmálum sérstaklega þegar
stærsta sveitarfélagið, Akureyri, skortir meira land.
Aukin hagkvæmni í stjórnsýslu leiðir til sparnaðar
sem má nýta til betri þjónustu og uppbyggingar inn-
viða líkt og reyndin hefur verið í öðrum sameiningum.
Og þótt það sé í raun aukaatriði, liðkar Jöfnunar-
sjóður sveitarfélaga til fyrir sameiningum sveitarfélaga.
Það þýðir að á næstu sjö árum rynnu alls 1.649 milljónir
króna til Eyjafjarðar til uppbyggingar, ásamt stuðningi
við undirbúning sameiningar, kynningarmál og fram-
kvæmd sameiningar. Að auki býður sjóðurinn sérstök
framlög komi til skerðingar á jöfnunarframlögum í
fjögur ár eftir sameiningu.
Koma svo, Eyfirðingar!
Sameinaður
Eyjafjörður
2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
0
2
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
4
-4
5
B
4
2
4
2
4
-4
4
7
8
2
4
2
4
-4
3
3
C
2
4
2
4
-4
2
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
0
4
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K