Fréttablaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 24
Þrír bankar í Arion appinu arionbanki.is Við opnum Arion appið og bjóðum Landsbankann og Íslandsbanka velkomna. Nú getur þú skoðað alla reikninga og kort í íslenskum bönkum í appinu. Opin og þægileg bankaþjónusta fyrir alla. Það eru ekki endilega gönguferð­ irnar sem kveikja á hugmyndum. Þær eiga það til að kvikna þegar hún er við það að festa svefn. „Þegar ég er að fara að sofa og heilinn fer að snú­ ast hægar og hægar. Eða þegar mér tekst að tæma hugann. Bestu hug­ myndirnar koma þegar hugurinn er kyrrlátur. Þá kviknar oft eitthvað. Og þá finnst mér ég stundum verða að fara á fætur og skrifa það niður.“ Heppin að lenda í kulnun Guðrúnu Evu er mikilvægi hvíldar afar hugleikið. Það er rík ástæða fyrir því. Hún komst sjálf í þrot fyrir nokkrum misserum. Eða í kulnunar ástand. Hún hélt marga fyrirlestra og pistla um mikil­ vægi hvíldar og deildi sýn sinni og reynslu. Henni finnst hún hafa verið gæfusöm að hafa lent í kulnun vegna þess að nú skilji hún að það sé ekki annað í boði en að hafa hvíldina í forgangi. Annars komi af leiðingarnar fram með ýmsum einkennum. Í hennar tilviki var það stam, málhelti, örmögnun og kvíði. „Ég var heppin að lenda í kulnun og það var nú eiginlega fyrir tilvilj­ un að um nokkurra mánaða skeið höfðu ótrúlega margir samband við mig og báðu um pistla og fyrirlestra. Ég varð við því og fannst heiðar­ legast að tala um það sem stóð mér næst. Deila nýjustu upplýsingum. Ég bjóst ekki við því að það yrði svona mikil vakning um þessi mál­ efni og ég fékk yfir mig holskeflu af skilaboðum,“ segir hún og segir fólk hafa samsamað sig reynslu hennar. Svo margir verði óvinnufærir vegna of mikils álags og of lítillar hvíldar. „Það er neyðarlegt fyrir Íslendinga að viðurkenna að þeir hafi verið í margra mánaða letikasti eins og maður myndi orða það ef maður væri rosalega dómharður á sig.“ Guðrún Eva segir að auðvitað sé best að fólk geti vaknað til með­ vitundar um mikilvægi þess að hvíla sig án þess að fara í kulnunar­ ástand. „Það er best að fólk fái þessa vakningu án þess að keyra á vegg­ inn á fullu. Þegar fólk segir mér að það sé með málstol, að það sé allt í einu farið að stama, eða segist varla kunna lengur að tala almennilega ensku. Þá veit ég að þetta sama fólk þarf nauðsynlega hvíld. Líka þegar fólk nefnir að það upplifi það nán­ ast sem of beldi bara þegar annað fólk er að tala við það. Því þá þurfi það bæði að hlusta og svo að svara! Þá segi ég stundum við fólk að það gæti verið að sigla í ákveðna átt sem það þurfi ekki endilega að fara í.“ Áhugasöm um hið fallega Er hún einhverju nær um tilvistina eftir erfiðleikana? „Ég hef alltaf verið með kórsöng í hjartanu, mér finnst hversdagsleik­ inn aldrei vera allur þar sem hann er séður. Eða eitthvað hversdags­ legur yfirhöfuð. Síðustu árin hef ég farið æ meira þangað. Mér hefur fundist það vera ákveðið mótvægi. Skáldsagnahöfundar hafa áhuga á fólki og því sem gerir okkur að manneskjum, því sem við eigum sameiginlegt. Meira og meira með árunum hef ég orðið áhugasamari um það fallegasta og heilagasta í öllum og sé það í öllum sem ég hitti svo vel. Þó heimurinn sé oft aga­ legur staður þá í staðinn fyrir að verða kaldhæðnari eða bitrari með aldrinum þá einhvern veginn finnst mér ég verða meira lamb.“ Hún segir sumum þykja þessi milda og rómantíska afstaða barna­ leg og jafnvel heimskuleg. En hún biður fólk að velta því aðeins betur fyrir sér. „Þetta þykir svolítið heimskulegt, en ég held að það sé það skynsam­ legasta í stöðunni. Ég held að með þessari afstöðu þá dragir þú frekar fram það góða frekar en ef þú býst við hinu versta. Ef þú ert með þá skoðun á fólki að það sé svo fyrirlit­ legt, þá dregur þú það fram. Ég finn að ég laða frekar fram fegurðina og það besta í fólki.“ Í klaustri í miðjum frumskógi Guðrún Eva er nýkomin úr vist í nokkurs konar klaustri á Indlandi í miðjum frumskógi. „Mér var boðið til Indlands. Ég er búin að vera í smá kunnings­ skap við dásamlegt fólk í Lótushúsi í Garðabæ. Ég hef stundum verið þeim innan handar og ég hef líka farið á dagsnámskeið hjá þeim, jógahugleiðslu sem þau bjóða upp á fólki að kostnaðarlausu. Ég fékk einn daginn ómótstæði­ legan tölvupóst frá þeim. Þau væru að fara til Indlands, hvort ég vildi ekki fara með? Það er svo miklu skemmtilegra að segja já þegar það kemur svona uppástunga. Ferða­ lagið reyndist magnað. Aldursfor­ setinn í þessum andlega háskóla á Indlandi er 104 ára gömul, hún var eiginlega alveg hætt að nenna að tala og notaði handabendingar. Ég hef lengi hugleitt og finnst það rosalega öflugt tæki til að komast í tengsl við sig og umheiminn. Ég hef stundað jóga alveg síðan fyrir tvítugt og hugleiðslan er mér mjög mikilvæg. Þegar ég fór í kulnun þá var hugleiðsla það eina sem sló á einkennin. Ég kalla þetta klaustur því þarna voru svokallaðir brahmar sem til­ einka líf sitt því að iðka jóga og hug­ leiðslu. Þeir eru skírlífir og borða bara vissar tegundir af mat. Þegar ég kom í þorpið upplifði ég að þetta væri helgur staður, þar gengu allir hægt um hvítklæddir.“ Flutti oft í æsku Henni finnst gott að búa í Hvera­ gerði og vill hvergi annars staðar vera. Þörf Guðrúnar Evu fyrir að vera umkringd náttúru er sprottin úr barnæsku. Hún er fædd í Reykjavík og bjó fyrstu árin í Vesturbænum í Reykjavík. „Ég bjó á Ásvallagötu og Bræðraborgarstíg en svo f luttum við í Mosfellssveit þegar ég var sex ára og mér fannst það eftirminni­ lega góð skipti. Mamma er tónlistar­ kennari og það var ekki stöðugleiki í því starfi þannig að við f luttum mikið á milli að eltast við tónlistar­ skólastöður úti á landi. „Ég ólst því upp á hinum ýmsu krummaskuðum úti á landi. Best leið mér á Kirkjubæjarklaustri, mögulega af því ég var á því sem Þórarinn Eldjárn kallar hamingju­ sama aldrinum. Tíu til tólf ára gömul, þegar maður getur allt, kann allt og hefur öðlast sjálfstæði en hormónarnir ekki komnir til að brjóta mann niður. Það getur vel verið að ég sé hér í Hveragerði af því það er margt í umhverfinu sem minnir mig á Kirkjubæjarklaustur.“ Hvött til að gerast droppát Þegar Guðrún Eva varð átján ára flutti hún til Reykjavíkur, þar hófst rithöfundarferillinn. Hún bjó í Reykjavík allt þar til örlögin tóku í taumana á fullorðinsárum. „Ég f lutti á slaginu átján. Ég fór að vinna á Kaffi París og þykir enn rosalega vænt um þessi hjón sem ráku staðinn og reka nú Spænska barinn. Þetta er gott fólk og ótrú­ lega mikill lærdómur fyrir mig að vera þarna og sjá hvernig fullorð­ insheimurinn virkaði, án filters og smá hömlulaus. Þarna kynntist ég prófarkalesaranum mínum sem var það svo alla tíð, Hildi Finnsdóttur. Hún las fyrstu skáldsöguna mína án þess að fá borgað fyrir það. Það draup af henni rauða blekið, og hún sagði, þetta er ekki eins slæmt og þetta lítur út fyrir að vera. Svo kom mesta hvatning sem ég hef fengið, viltu ekki bara taka þér frí frá menntaskóla og klára þetta? Að fá ráð frá fullorðinni manneskju um að gerast droppát er mjög áhrifarík hvatning. En mér datt það reyndar ekki í hug, ég hætti hins vegar í háskólanámi og ákvað bara að sofa minna á næturnar. Ég sá nefnilega háskólann í hillingum. Ég ímyndaði mér að það væri samfélag þar sem fólk kæmi saman til að mennta sig, verða frótt og viturt. En svo var það ekki alveg þannig, mætingarskylda og svona,“ segir hún og glottir og leiðir hugann aftur að því hvernig það er að vera í borg og hvernig það er að búa í dreif býli. Hormónarnir réðu „Við Matti tókum eftir því að við vorum að hætt að tolla í íbúðinni okkar í Reykjavík. Vorum alltaf að fá lánaða bústaði til að dvelja í. Þá vorum við barnlaus og höfðum ekk­ ert betra að gera en að láta okkur dreyma um að eignast bústað. Svo gerðist það að fasteignasalinn vildi endilega sýna okkur þetta hús. Ég var barnshafandi þegar við keyptum húsið, hormónarnir réðu. Ég horfði bara á þetta klifurtré og auðvitað óskaði ég barninu mínu þess að alast upp við sama frelsi og ég úti á landi.“ Hveragerði er mik il l ist a­ mannanýlenda, fyrr og nú. Það er samofið sögu bæjarins. „Þetta er svo skemmtilegt og gott samfélag. Bæjarfélagið er vel rekið og mikil mannúðarstefna í gangi. Hér er fullkomið umburðarlyndi fyrir sérvisku og mjög hlýlega tekið á móti listamönnum. Sem er ekki alls staðar. Það er gott að finna að maður tilheyrir og að vera velkom­ inn. Ég sé nákvæmlega ekkert að því að búa hér og margt gott sem ég sá ekki fyrir.“ AÐ FÁ RÁÐ FRÁ FULLORÐ- INNI MANNESKJU UM AÐ GERAST DROPPÁT ER MJÖG ÁHRIFARÍK HVATNING. Hversdagsleikinn er ekki hversdagslegur, segir Guðrún Eva. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 4 -8 F C 4 2 4 2 4 -8 E 8 8 2 4 2 4 -8 D 4 C 2 4 2 4 -8 C 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.