Fréttablaðið - 02.11.2019, Síða 20

Fréttablaðið - 02.11.2019, Síða 20
Í Úkraínu búa um 46 millj-ónir manna en þar er mikið at v innuleysi og fát ækt . Í slen sk u skókö s s u nu m er meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra foreldra sem búa við sára fátækt. Megintilgangur verkefnisins Jól í skókassa er að gleðja börn sem sum fengju annars ekki jólagjöf. Síðustu ár hafa safnast um 5.000 kassar. Gríma Katrín, Ingibjörg Lóreley og Anna Lovísa eru meðal sjálf- boðaliða verkefnisins. Þær, eins og margir, geta ekki beðið, enda sé verkefnið besti tími ársins. „Ballið er byrjað! Skókassarnir eru nú þegar farnir að streyma til okkar en skiladagar úti á landi eru f lestir liðnir og því slatti kominn í hús. Núna á sunnudaginn breytum Ólýsanlegt þakklæti barna Verkefnið Jól í skókassa felst í því að Íslendingar senda börnum í Úkraínu sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfið- leika litlar gjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og pakkað inn. Í þeim eru til dæmis leikföng, sælgæti og föt. Gríma Katrín, Ingibjörg Lóreley og Anna Lovísa eru meðal fjölmargra sjálfboðaliða Jól í skókassa. Þær fóru til Úkraínu 2017-18 og hjálpuðu til við að dreifa gjöfunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Réttu handtökin Að stoppa í sokka Hvernig á að búa til kassa? 1 Pakkið tómum skókassa inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig að hægt sé að opna kassann án þess að skemma pappírinn. 2 Ákveðið fyrir hvaða aldur og kyn pakkinn sé. Aldurshóparnir eru eftirfarandi; (3-6), (7-10), (11-14) og (15-18). Skrifið kyn og aldur á miða og límið ofan á kassana. 3 Setjið 500 - 1.000 krónur í umslag og leggið efst í kassann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu. 4 Lokið kassanum með því að setja teygju utan um hann. við Holtaveginum í verkstæði jóla- sveinsins. Svo hefjumst við handa við að gera kassana klára fyrir gám- inn sem fer út um miðjan nóvember. Skipið endar í Hollandi en flutning- ur þaðan til Úkraínu getur tekið þó nokkurn tíma. Stærsti kostnaðar- liður verkefnisins er einmitt þessi f lutningur. Við fylgdum verkefninu út áramótin 2017-18 en jólin þar í landi eru 7. janúar og vorum við dagana fyrir að dreifa gjöfunum til barna. Það geislar ólýsanlegt þakklæti og gleði úr augum þeirra. Þau hafa sum aldrei fengið gjafir og skilja hreinlega ekki af hverju fólk einhvers staðar á Íslandi sé að gefa þeim gjafir. Aðstandendur barnanna eru líka mjög þakklátir, eiga ekki til orð og trúa þessu varla. Við lifum lengi á þessum brosum,“ segir Gríma Katrín. Þetta má fara í kassana Til þess að allir kassarnir séu svip- aðir skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna flokka: Föt: T.d. húfu, vettlinga, sokka, trefil, bol, peysu. Leikföng: T.d. litla bíla, bolta, dúkku, púsl, bangsa, jó-jó. Athugið að láta auka rafhlöður fylgja raf- knúnum leikföngum. Skóladót: T.d. penna, blýanta, yddara, strokleður, skrifbækur, liti, litabækur, pennaveski, skæri, vasareikni. Hreinlætisvörur: Óskað er eftir því að allir setji í kassann tann- bursta, tannkrem, sápustykki. Svo má setja greiðu, snyrtitösku, þvottapoka, hárskraut og fleira. Sælgæti: T.d. sleikjó, brjóstsykur, pez, tyggjó, karamellur. Það sem má ekki fara í kassana Mikið notaðir eða illa farnir hlutir. Matvara og drykkir, t.d. kex, svala- drykkir. Stríðsdót, t.d. leikfangabyssur, leikfangahermenn eða hnífar. Vökvar, t.d. sjampó, krem eða sápukúlur. Lyf, t.d. vítamín, hálsbrjóstsyk- ur eða smyrsl. Brothættir hlutir, t.d. speglar eða postulínsdúkkur. Spila- stokkar. Þar sem spilastokkar eru tengdir fjárhættuspilum í Úkraínu, óskum við eftir að þeir séu ekki gefnir í skókassana. Kristín Gunnlaugsdóttir, prjóna- kona hjá Handprjónasambandinu, kann réttu og öruggu handtökin við að stoppa í sokka. „Það þarf að eiga stoppunál. Sú nál er með ágætlega stóru gati og ekki með oddi. Og svo þarf bara að eiga garn eða spotta og þolinmæði,“ segir Kristín. Hún segir að ungt fólk þyrfti nauðsynlega að kunna að gera við gæðafatnað og ullarflíkur. Of- neysla á fatnaði í heiminum geri slíka kunnáttu þarfa. Það sé algjör synd að henda götóttum gæða- flíkum og kaupa nýtt. Það auki á neyslu. „Það ætti alls ekki að henda góðum og fallegum sokkum af því Einar Már Guðmundsson les upp úr nýrri ljóðabók sinni, Til þeirra sem málið varðar, í liðnum Upplestur sem er að finna á frettabladid.is. Þeim sem vilja læra handtökin vel er bent á kennslumyndband á vefnum. það er komið á þá gat því það er mjög létt verk að gera við þá. Meira að segja krakkar geta stoppað í sokka og þeim finnst það meira að segja flestum mjög skemmti- legt. Sérstaklega ef þeir fá að nota marglitt garn og gera sokkana svolítið litríka og sérstaka,“ segir Kristín og segir fyrirtaks hugmynd fyrir foreldra að finna til götóttan sokk og setjast niður með börnum sínum og kenna þeim listina að stoppa í sokka. -kbg Myndband með leiðbeiningum um hvernig á að stoppa í sokka er að finna á frettabladid.is. 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN Einar Már les ljóð 0 2 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 1 0 4 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 4 -6 8 4 4 2 4 2 4 -6 7 0 8 2 4 2 4 -6 5 C C 2 4 2 4 -6 4 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.