Fréttablaðið - 02.11.2019, Síða 30

Fréttablaðið - 02.11.2019, Síða 30
Kynferðisofbeldi 4. hluti af 5 sem hefur alltaf verið svo ljúfur. Við þurftum að kalla til lögreglu og það þurfti að handtaka hann, þetta var skelfilega erfitt og mér þungbært. Lögregla spurði mig hvort ég vildi kæra son minn fyrir heimilisof- beldi. Ég spurði hann hvort hann væri að grínast, ég myndi vilja kæra annan mann fyrir það sem hefði gerst.“ Einblínt á fíkniefnaneyslu Hann er í kjölfarið vistaður á Stuðlum þar sem barnaverndar- starfsmaður ræðir við hann. Það er þar sem sonur þeirra ákvað að kæra Þorstein. Móðir hans seg jr að sy ni sínum haf i augljóslega verið mjög létt. „Við fundum það öll. Ég hugsa að margir hafi skakka mynd af aðstæðum. Við misstum son okkar ekki í fíkniefni. Við misstum hann í hendur barna- níðings sem tældi hann í langan tíma og braut svo ítrekað á honum, misnotkunin varð til þess að hann fór að deyfa sig,“ segir móðir hans. „Í gegnum allt þetta ferli til dagsins í dag hefur alltaf verið einblínt á fíkniefnaneyslu hans frekar en skaðann sem hann varð fyrir eftir kynferðisof beldi Þorsteins gagn- vart honum,“ segir móðir hans. „Við íhuguðum að taka málin í okkar hendur. Við skildum ekki aðgerðaleysi lögreglu, það fór ekki á milli mála að Þorsteinn braut á barninu okkar og myndi halda því áfram,“ segir faðir hans. Reyndi að slíta samskiptum Í janúar árið 2017 kom sonur þeirra heim frá Stuðlum. „Hann opnar sig fyrir okkur. Við leyfum honum að tjá sig án þess að spyrja spurninga og þá heyrum við allar þær áhyggj- ur sem hann hefur af því hvernig Þorsteinn hefur setið um hann. Þorsteinn beitti drenginn okkar miklum þrýstingi og yfirgangi til að fá að hitta hann. Hann hringdi stöðugt í hann, sendi ótal skilaboð í síma og í gegnum samskiptaforrit. Hann mætti óvænt á staði þar sem sonur okkar var að vinna til þess að krefjast kynferðismaka við hann. Sonur okkar reyndi oft að slíta við hann samskiptum en hann krafði hann þá um að greiða sér til baka peninga og gjafir,“ segir móðir hans. Þolandi sekkur í þunglyndi og foreldrar komast að því að Þor- steinn hefur aftur sett sig í samband við hann. „Karlinn lætur hann ekki í friði. Sonur okkar situr með okkur við eldhúsborðið og síminn rauðgló- andi. Í eitt skiptið tók ég símann og svaraði Þorsteini og öskraði á hann að láta hann í friði,“ segir faðir hans. Nálgunarbann sett á Þann 22. janúar hleypur faðir þol- anda út á eftir honum eitt kvöldið. Hann sér hann setjast upp í bíl hjá Þorsteini og stekkur fram fyrir bif- reiðina. „Hann keyrir næstum því yfir mig en skilaði syni mínum nokkur hundruð metrum seinna. Þarna hafði hann lofað syni okkar að greiða fyrir hann dópskuld. Móðir hans greiðir skuldina.“ Nokkrum dögum síðar er sett nálgunarbann á Þorstein. Það er gert eftir að faðir þolanda missir stjórn á skapi sínu á lögreglustöð- inni að eigin sögn eftir ítrekaðar beiðnir um hjálp. Þann 26. janúar 2017 er sonur þeirra fyrst kallaður til skýrslutöku til lögreglu. Næstu mánuðir reynast  pilt- inum erf iðir. Um vorið skrif- ar  hann  kveðjubréf til foreldra sinna og móðir hans kemur að honum meðvitundarlausum. Eftir útskrift af gjörgæslu er hann lagður beint inn á barna- og unglingageð- deild. Foreldrarnir geyma á meðan síma og tölvu sonar síns. „Og karlinn heldur áfram að hringja og senda skilaboð,“ segir faðir hans. Sonur þeirra var í framhaldinu vistaður á Stuðlum og um sumarið fóru for- eldrarnir með hann í sumarfrí til útlanda. En um leið og sonur þeirra var kominn aftur heim hafi Þor- steinn farið að sitja um hann aftur. Aðdragandi gæsluvarðhaldsins Þann 9. janúar 2018 stöðvar lögregla Þorstein í bifreið með þolanda undir miklum áhrifum fíkniefna og með nýjan síma. Hann telur sig í fullum rétti þar sem þolandi sé nú orðinn átján ára gamall og nálgunarbann útrunnið. „Þegar lögregla hefur afskipti af þeim sagði Þorsteinn þeim að þeir hefðu bara hist fyrir tilviljun. Sonur okkar var í annar- legu ástandi með nýjan síma í hönd- unum sem Þorsteinn hafði gefið honum. Lögregla leyfir Þorsteini að fara. Þótt hann sé kærður fyrir kyn- ferðisof beldið gegn syni okkar. Ég bara skil þetta ekki. Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir svo mörg skelfileg brot,“ segir móðir hans. „Og tveimur dögum síðar þá sendi sonur okkar neyðarkall á móður sína á Snapchat eftir að Þor- steinn nauðgar honum á gistiheim- ili. Það er fyrst þá sem Þorsteinn er úrskurðaður í gæsluvarðhald.“ Syni þeirra tókst einnig að opna fyrir stillingu á símanum sínum í Google Maps þannig að það var hægt að staðsetja símann. Þegar lögregla kom á vettvang hafi hann komið grátandi út af gistiheimilinu og hafi síðan verið færður til rann- sóknar á neyðarmóttöku kynferðis- brota, segja þau. Degi síðar eða þann 12. janúar er Þorsteinn handtekinn og 15. janúar er hann ákærður fyrir nauðgun. Um þremur mánuðum síðar eru mál gegn Þorsteini sem varða brot gegn syni þeirra sameinuð í eitt og dóm- tekin. Og þann 18. maí þetta sama ár er Þorsteinn dæmdur í sjö ára fangelsi. Rúmu ári seinna er dómur- inn styttur í fimm ár í Landsrétti. Þarf að sækja bætur Sonur þeirra á rétt á um það bil þremur og hálfri milljón króna í miskabætur frá Þorsteini. Ríkið sækir bætur að hámarki þremur milljónum. Faðir hans segir það skjóta skökku við að hann þurfi sjálfur að sækja til hans þær bætur sem eru umfram þrjár milljónir. „Þorsteinn sem hefur tælt son minn með peningagjöfum fær þarna aðgang að honum aftur. Á sonur minn að sækja bætur til níðingsins. Ég mun auðvitað ganga eftir þessu en ekki hann en hvað með þolendur sem hafa ekki bakland? Hvernig á kerfið eiginlega að virka?“ spyr faðir hans. Þau gagnrýna hversu svifaseint kerfið er og segja ríka ástæðu til að endurskoða viðbrögð lögreglu og barnaverndar þegar rökstuddur grunur er um kynferðisof beldi gegn barni. Í langan tíma hafi þau talið að lögregla væri að gera eitt- hvað í málinu. Svo hafi ekki verið. Sá tími sem hafi liðið í aðgerðaleysi hafi verið þeim dýrkeyptur. Þá hafi í öllu viðmóti verið einblínt á fíkni- vanda sonar þeirra en ekki kyn- ferðisof beldið og afleiðingar þess. „Það þarf að taka þetta allt í gegn. Það skortir allan skilning á eðli kynferðisof beldis í gegnum allt þetta kerfi og ferli. Frá upphafi til enda.“ Afplánar í opnu fangelsi Foreldrarnir hafa fengið staðfest að Þorsteinn afpláni refsingu sína í opnu fangelsi, Sogni, og  Fang- elsismálastofnun hefur  boðið þeim að þau verði látin vita um frekari tilhögun afplánunar hans, til dæmis þegar hann fer í dags- leyfi, fær ökklaband og reynslu- lausn. Þá fengu þau staðfest að hann hafi aðgang að tölvu og geti til dæmis sent tölvupóst. „Við spurðum hvort það hefði ekk- ert að segja að gefin hefur verið ákæra á hendur honum fyrir brot gegn öðru barni. Og hvort ekki sé óeðlilegt að maður sem er dæmdur fyrir alvarleg kynferðisbrot fari í opið úrræði meðan málsmeð- ferð er í gangi í óskyldu máli gegn öðru barni. Þorsteinn braut ítrekað gegn nálgunarbanni og stór hluti brotanna sem hann var dæmdur fyrir voru framin eftir að hann var kærður. Ég spyr mig hvort þau hafi yfirhöfuð lesið dóminn yfir honum þegar það var ákveðið að hann færi í opið úrræði,“ segir faðirinn og móð- irin bætir við: „Mér finnst réttmæt spurning vera, í ljósi reynslu okkar: Er kerfið meðvirkt með gerendum frá upphafi til enda?“ Framhald af síðu 28 „VIð spurðum hvort ekki sé óeðlilegt að maður sem er dæmdur fyrir alvarleg kynferðisbrot fari í opið úrræði meðan málsmeðferð er í gangi í óskyldu máli gegn öðru barni.“ FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA HANN ER GÓÐUR VIÐ SYSTKINI SÍN, BÓNGÓÐUR, MIKILL DÝRAVINUR, ÁTTI KÆRUSTU OG VAR ÁGÆTUR NÁMSMAÐUR. Föngum ætlað að stunda vinnu eða nám Saga Sogns sem opins fangelsis hófst vorið 2012. Fram til þess hafði verið starfrækt þar réttar- geðdeild en ákveðið var að sú starfsemi skyldi flutt á Klepps- spítala. Nokkrar breytingar þurfti að gera á húsnæðinu svo það hentaði fyrir starfsemi opins fangelsis. Minnka þurfti herbergi og fjölga þeim þannig að vista mætti fleiri þar en áður var. Opið fangelsi var áður í Birtu í Flóa- hreppi og var starfsemi þar hætt samhliða breyttu hlutverki Sogns. Nokkur styr stóð um þessar breytingar þegar þær voru gerðar og voru þær meðal annars ræddar í sölum Alþingis. Bæði deildu menn þar um hversu skyn- samlegt það væri að færa rétt- argeðdeildina og eins að fangar yrðu hafðir í opnu úrræði þar eins og varð. Sogn er í Ölfusi, skammt austan Hveragerðis, og er þar rúm fyrir 22 fanga. Engar girðingar eða múrar afmarka fangelsið en fangar þurfa að fara að skýrum reglum. Þeim er ætlað að stunda vinnu eða nám og vera tilbúnir að taka þátt í þeirri starfsemi sem fram fer í fangelsinu á hverjum tíma, að því er fram kemur á vef Fangelsismálastofnunar. 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 1 0 4 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 4 -6 3 5 4 2 4 2 4 -6 2 1 8 2 4 2 4 -6 0 D C 2 4 2 4 -5 F A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 0 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.