Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.11.2019, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 02.11.2019, Qupperneq 32
Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, löggiltur fast­eignasali hjá Fasteignasölu Reykjavíkur og einn eigenda „HÁS Sköpunarseturs“ mælir heilshugar með nýju KOLLAGEN húðvör­ unum frá Colway og segir þær hafa gert kraftaverk fyrir húð sína. Hera Björk hefur alltaf mörg járn í eldinum og er að fást við ótrúlega spennandi og skemmtilega hluti þessa dagana. „Ég er það sem flokk­ ast víst undir að vera nett ofvirk en ég vill sjálf meina að það sé bara svo margt gaman sem þarf að gera og þetta gerir sig víst ekki sjálft. Þessa dagana stend ég í flutningum með fjölskyldunni og er að stússa í því samfara því sem ég aðstoða fólk við að selja og velja sér nýtt húsnæði. Ég finn mikinn mun á húðinni minni þegar það er smá streita í stelpunni og þá má eiginlega segja að ég sofi með COLWAY meira en manninum mínum,“ segir Hera Björk og skelli­ hlær. Vakna endurnærð „Það er fátt eins gott og að koma heim eftir langan vinnudag og mögulega eitt gigg og maka á sig þessu töframeðali og vera þess fullviss að vakna endurnærð næsta morgun. Síðan er ég svolítið gjörn á að fá varaþurrk þegar ég stend í svona framkvæmdum og þá dugar augnkremið frá COLWAY best á minn munn. Einnig á ég það til að maka þessu á eiginmanninn, honum til mismikillar ánægju en ég sannfæri hann í hvert skipti um að þetta sé honum fyrir bestu ætli hann sér að halda í við mig og halda hrukkupúkanum í skefjum í lengstu lög,“ segir Hera kankvís. KOLLAGENIÐ gerir gæfumuninn Hera Björk kynntist hreina KOLLAGENINU frá Colway fyrir rúmum 10 árum og hefur notað það síðan þá. „Þegar nýja húð­ vöru línan kom á markaðinn hér á landi fyrir rúmum tveimur árum stökk ég hæð mína af gleði og byrjaði strax að nota hana og ég elska hana í ræmur. Þetta eru bestu húðvörur sem ég hef notað og það er KOLLAGENIÐ sem gerir gæfu­ muninn,“ segir Hera Björk. „Elín Reynisdóttir, förðunar­ meistari Íslands, sem farðar mig alltaf þegar mikið stendur til hefur oft haft orð á því hversu góð húðin mín sé og ég þakka KOLLAGEN húðvörunum fyrir það allan daginn, kannski íslenska hreina fjallavindinum líka. Góð heilsa og heilbrigt útlit skiptir mig miklu máli. Í nokkur ár var ég ekki alveg að standa með sjálfri mér í þeim efnum en hef alveg áttað mig á því að það kemur ekki að sjálfu sér og kostar heilmikla sjálfsvinnu, bæði að innan og utan. Sú vinna marg­ borgar sig enda eigum við bara eitt líf, eina sál og einn líkama. Ég legg því mikla áherslu á að nota hreinar, hágæða vörur sem virka vel á húðina mína. Það gera KOLLAGEN húðvörurnar frá Colway svo sannarlega og ekki síst þegar húðin er að skreppa saman þegar maður fer svona hratt aftur í fermingarstærðina,“ segir söng­ konan glaðhlakkalega. Hágæða vatnsbundið kollagen tryggir virknina Allar húðvörurnar frá COLWAY eru unnar úr hágæða hráefni, einkaleyfisvarðar og hannaðar af lífefnafræðingum eftir margra ára rannsóknir og tilraunir. Þær innihalda VATNSBUNDIÐ kollagen sem er náttúrulegt pró­ tein og unnið úr roði ferskfisks. Allt kollagenið í vörum þeirra er VATNSBUNDIÐ því aðeins þann­ ig er hægt að tryggja virkni þess niður í öll þrjú lög húðarinnar. Sé það vatnsrofið nær kollagenið ein­ göngu niður í efsta lag húðarinnar sem gerir lítið sem ekkert gagn. Frábærar vörur í jólapakkann Það er fátt skemmtilegra en að fá jólagjöf sem maður getur notað fyrir sjálfan sig og lætur manni líða vel og líta betur út. KOLLAGEN húðvörurnar eru allar tilvaldar í jólapakkann bæði einar og sér, tvær eða þrjár saman eða glæsilega hvíta snyrtitaskan full af KOLLA­ GEN húðvörum. Hægt er að velja hvaða vörur sem er í töskuna. Hárþykkingarvörur og hágæða bætiefni COLWAY framleiðir sérstaka hárþykkingarlínu fyrir þá sem eru að glíma við lélegan hárvöxt, KOLLAGEN húðvörurnar eru allar til- valdar í jóla- pakkann bæði einar sér, tvær eða þrjá saman eða glæsilega hvíta snyrti- taskan full af KOLLAGEN húðvörum. Colway býður upp á heila húðvörulínu og innhalda allar vörurnar KOLLAGEN. Framhald af forsíðu ➛ Hera leggur mikla áherslu á að nota hreinar, hágæða vörur sem virka vel á húð hennar. MYND/GASSI Blue Diamond línan frá Colway er tilvalin jólagjöf. Eftir langan vinnu- dag og mögulega eitt gigg er fátt betra en maka á sig þessu töfra- meðali sem KOLLAGEN húðvörurnar frá COLWAY eru. KOLLAGEN – það besta fyrir húðina Eitt það besta sem við getum gert fyrir húð okkar er að bera á hana KOLLAGEN. Ástæðan fyrir því er sú að KOLLAGEN er það efni sem líkaminn fram- leiðir sjálfur en minnkar fram- leiðslu á því upp úr 25 ára aldri og því fara þessar fínu línur og hrukkur að myndast ásamt því að húðin fer einnig að missa stinnleika sinn. Einn- ig gerir KOLLAGENIÐ húðina mjúka og fallega. BERÐU KOLLAGENIÐ BEINT Á HÚÐINA Þegar KOLLAGENIÐ er borið- beint á húðina á þá staði sem okkur finnast vera farnir að láta á sjá, náum við að vinna gegn þessari náttúrulegu öldrun húðarinnar sem fylgir aldrinum og minnkandi framleiðslu kollagensins í líkamanum. Kollagenið hægir á öldrun húðarinnar, gerir húðina stinn- ari, fallegri og teygjalegri, gefur henni góða næringu og raka og vinnur gegn fínum línum og hrukkum. Rannsóknir sýna að hægt er að bæta sér upp minnkandi kollagenframleiðslu líkamans með því að bera kolla- genið beint á húðina. Einnig mæli ég með inntöku á KOLLA- GENI, það hjálpar heilmikið til ásamt því að það vinnur gegn stirðleika og liðverkjum. Sigrún Kjartansdóttir, heilsuráðgjafi hárlos, lélegt og slitið hár og einnig hágæða bætiefni sem styðja við húð, hár og neglur. Bætiefnin sem seld eru hér á landi frá COLWAY eru kollagen­ hylki sem heita COLVITA og Astaxanthin sem heitir AXANTA. Það inniheldur einnig öll B­víta­ mínin og peperin sem unnið er úr svörtum pipar. Sölustaðir: Apótek Garðabæjar, Apótek MOS, Apótekarinn í Mjódd, Apótekið, Heilsuhúsið, Heilsuver, Lyf og heilsa, Lyfja, Lyfjaver, Lyfsalinn í Glæsibæ, Urðarapótek, lyfja.is og heilsanheim.is. KOLLAGEN húð- vörurnar frá COLWAY eru bestu húðvörur sem ég hef notað og það er KOLLA- GENIÐ sem er í þeim öllum sem gerir gæfu- muninn. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 0 2 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 1 0 4 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 4 -4 F 9 4 2 4 2 4 -4 E 5 8 2 4 2 4 -4 D 1 C 2 4 2 4 -4 B E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 0 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.