Fréttablaðið - 02.11.2019, Page 69

Fréttablaðið - 02.11.2019, Page 69
GUM Kids – fyrir börnin Tannburstarnir geta staðið á borði þar sem lítil sogskál er neðan á þeim. Liturinn í miðjunni á burstanum sjálfum sýnir hversu mikið magn af tannkremi á að nota. Tannkremin eru án SLS og er flúormagn í samræmi við aldur barnanna. AftaClear – gegn sárum og blöðrum AftaClear myndar verndarfilmu yfir sár, munnangur og blöðrur sem geta myndast í munninum. Það inniheldur hýalúronsýru sem má líkja við gott smurefni í munninn sem og kamillu og engifer sem róar og dregur úr bólgum. Er til bæði sem gel, sprey og munnskol. Original White – hvítari tennur GUM Original White hreinsar bletti af tönnum ásamt því að vernda bæði tennur og tannhold og tryggja að tennurnar haldi styrk sínum. Það styrkir einnig glerunginn og fyrirbyggir að nýir blettir myndist. Inniheldur ekki bleikiefni. HaliControl – gegn andremmu Andremma getur verið ansi hvimleið og oft erfitt að losna við. HaliControl vinnur gegn andremmu og óbragði í munni, einnig gegn bakteríunum sem valda andremmu og koma í veg fyrir að þær myndist aftur. Halicontrol tunguskafan hreinsar óhreinindi og bakteríur af tungunni, öðru megin er bursti og á hinni hliðinni er skafa. Það er bæði til tannkrem og munnskol. Soft-Picks tannstönglar Tannstönglar eru þarfaþing á hverju heimili en Soft-Picks eru sveigðir til að ná vel milli aftari tannanna og geta hreinsað tannstein. Þeir fást í þremur mismunandi stærðum; small, medium og large. Trav-Ler millitannburstar Það þurfa allir að passa vel upp á að þrífa vel svæðin milli tannanna. Burstarnir eru til í mörgum stærðum, eru með sveigjanlegu handfangi og er burstinn sjálfur einnig sveigjanlegur. Það má nota hvern bursta í allt að tvær vikur og jafnvel lengur þar sem hann er með klórhexidíni til að tryggja hreinlæti. Paroex – gegn tannholdsvandamálum og bólgum Paroex 0.12% munnskol og gel innihalda Klórhexidín og CPC sem er notað sem skammtímameðferð við tannholdsvandamálum og eftir aðgerðir. Þetta er öflug bakteríuvörn sem er bæði sótthreinsandi og bólguhamlandi. Einnig er til Paroex 0.06% tannkrem og munnskol sem eru fyrirbyggjandi gegn tannholdsvandamálum. Paroex inniheldur hvorki alkóhól né SLS. Hydral við munnþurrk Hydral er rakagefandi og eykur munnvatnsframleiðslu. Bæði gel og sprey líkja eftir eiginleikum munnvatns, styrkja náttúrulegar varnir og koma jafnvægi á bakteríuflóruna í munninum. Hydral tannkrem, sem hjálpar einnig gegn munnþurrki, inniheldur flúor og er með góðu mintubragði. ActiVital – kraftar náttúrunnar ActiVital tannkrem og munnskol eru sérlega frískandi og bragðgóðar vörur sem innihalda náttúruleg efni. Engifer og kamilla ásamt andoxunarefnunum Q-10 og granateplum eru bæði styrkjandi og veita langtímavörn fyrir tennur og tannhold. Góð vörn gegn tannskemmdum, án allra aukaefna. Sensivital fyrir viðkvæmar tennur Ný tvöföld virkni sem veitir langvarandi vörn gegn tannkuli. Sérstaklega þróað fyrir viðkvæmar tennur og tannhold. Hjálpar til við að koma í veg fyrir skemmdir og rótarskemmdir. Inniheldur engin aukaefni og er milt fyrir tennur og tannhold. Sensivital tannburstinn er extra mjúkur fyrir viðkvæmar tennur. Activital batterístannbursti Ný og einstök hreinsunartækni með þægilegum titring. Hárin á burstanum fjarlægja allt að 50% meira af óhreinindum milli tannanna og hreinsa 47% dýpra undir tannholdið. Það fylgja með rafhlöður. Hægt er að skipta um hausinn á tannburstanum og rafhlöður eftir þörfum. PowerCare rafmagnstannbursti Skref í átt að betri munnheilsu. Það eru tvær stillingar á hraða, dagleg burstun og burstun fyrir fólk með viðkvæmar tennur og tannhold. Ofur fínu og mjúku hárin hreinsa dýpra milli tannholds og tanna, fyrir ofan og undir tannholdslínuna þar sem tannsýkla myndast og ertir tannholdsvefinn. Þrýstingsnemi kemur í veg fyrir harkalega tannburstun, það kviknar viðvörunarljós ef burstað er of fast. Tímastillir sem gefur til kynna hversu lengi á að bursta. Hleðslutæki fylgir með. Hvítari tennur og ferskur andardráttur með GUM GUM tannvörurnar eru viðurkenndar af tannlæknum og ættu allir að geta fundið sér vörur sem henta. Þær eru fyrir alla aldurshópa og einnig fyrir þá sem kljást við ýmiss konar vandamál tengd tönnum, tannholdi og gómum. Fæst í apótekum og stórmörkuðum. 0 2 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 1 0 4 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 4 -A D 6 4 2 4 2 4 -A C 2 8 2 4 2 4 -A A E C 2 4 2 4 -A 9 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 0 4 s _ 1 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.