Fréttablaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 104
Sirrýjar
Hallgrímsdóttur
BAKÞANKAR
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Hversu oft höfum við ekki heyrt þá fullyrðingu að þjóðin hafi samþykkt
nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs
í kosningu? Oft. Svo oft að fullt
af fólki er farið að trúa þessu. En
þessi fullyrðing er röng og sérstakt
rannsóknarefni er hvers vegna
fólk sem á að vita betur, heldur
þessu statt og stöðugt fram.
Spurningin sem Jóhönnu-
stjórnin lagði fyrir kjósendur var
nefnilega svona: „Vilt þú að til-
lögur stjórnlagaráðs verði lagðar
til grundvallar frumvarpi að nýrri
stjórnarskrá?“ Allir sem eru búnir
með tíu ára bekk átta sig á því að
hér er ekki verið að kjósa með eða
á móti tillögu stjórnlagaráðs. Ef
það væri tilgangurinn þá hefði
spurningin á atkvæðaseðlinum til
dæmis hljóðað svona: „Vilt þú að
Alþingi samþykki tillögu stjórn-
lagaráðs að nýrri stjórnarskrá sem
nýja stjórnarskrá fyrir Ísland?“
eða eitthvert slíkt orðalag sem
hefði með afgerandi hætti lagt
tillögu stjórnlagaráðsins fram til
samþykkis eða synjunar.
En það var ekki gert. Í staðinn
kom hið veiklulega og hjárænu-
lega orðalag „lagðar til grund-
vallar“. Opið í alla enda og ekki
með nokkru móti hægt að túlka
sem svo að þjóðin hafi þar með
endanlega samþykkt þessar 115
tillögur stjórnlagaráðsins.
Samt er þrástagast á því að þjóð-
in hafi samþykkt þessar tillögur
að nýrri stjórnarskrá og síðan hafi
andstyggilegt fólk á Alþingi (aðal-
lega í Sjálfstæðis- og Framsóknar-
f lokki) komið í veg fyrir að vilji
þjóðarinnar gengi eftir.
Væri ekki snjallt hjá einhverjum
blaðamanni að senda Jóhönnu
Sigurðardóttur spurningu um
hvers vegna hún lagði ekki tillögur
stjórnlagaráðsins fram sem nýja
stjórnarskrá til samþykktar eða
synjunar? Það væri fróðlegt að
heyra svarið.
Svikin?
DAG HVERN LESA
96.000
ÍSLENDINGAR
FRÉTTABLAÐIÐ
AÐ MEÐALTALI
HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP APR-JÚN 2019, 12-80 ÁRA,
ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019
- MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINSFRÉTTABLAÐIÐ
0
2
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
2
4
-4
5
B
4
2
4
2
4
-4
4
7
8
2
4
2
4
-4
3
3
C
2
4
2
4
-4
2
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
0
4
s
_
1
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K