Fréttablaðið - 04.11.2019, Síða 6

Fréttablaðið - 04.11.2019, Síða 6
413,7 m2 eining 276,3 m2 eining TIL SÖLU! Upplýsingar: Baldur s. 660 6470 Flugvellir 20 Nýtt þjónustu- / iðnaðarhúsnæði nálægt Leifsstöð. (3ja mínútna akstur) Í REYKJANESBÆ Eða selt saman sem eitt húsnæði samtals 690m2. Stór lóð! Tilbúið til afhendingar, fullbúið að utan og tilbúið til innréttingar að innan með rafmagns- og hitalögnum. Halldór Freyr Sveinbjörnsson löggiltur fasteignasali Sími: 693-2916 halldor@fastgardur.is Langflestir Strandamenn búa á Hólmavík og þar segist oddvitinn þurfa að vera bjartsýnn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Kosningabaráttan í Bretlandi á fullt Jeremy Corbyn, leiðtogi breska Verkamannaf lokksins, f lytur ræðu á ráðstefnu í Háskólanum í Gloucester, um helgina. Ráðstefnan fjallaði um loftslagsmál og græna iðnbyltingu. Corbyn varði fyrstu helgi kosningabaráttunnar í suðvesturhluta Englands. Kosið verður til þings í Bretlandi þann 12. desember. Þetta verða þriðju þingkosningar Breta á fjórum og hálfu ári. NORDICPHOTOS/ EPA BYGGÐAÞRÓUN Börnum í þremur sveitarfélögum á Ströndum hefur frá aldamótum fækkað um meira en helming. Nú er svo komið að aðeins tvö börn eru búsett í Árneshreppi og enginn leikskóli er starfandi á Drangsnesi í Kaldrananeshreppi. Oddvitar sveit­ arstjórna segja vörnina erfiða og að eitthvað stórkostlegt þurfi að koma til svo að þróunin snúist við. Samanlagt búa á Ströndunum nú, í þessum þremur sveitarfélögum, um 600 manns. Langflestir þeirra búa í Hólmavík í Strandabyggð en í Strandabyggð allri búa um 450 manns. Jón Gísli Jónsson, oddviti hreppsnefndar Strandabyggðar, telur vörnina erfiða. „Þetta er vont og erfitt. Eitthvað togar nú suður á höfuðborgarsvæðið. Þar eru auðvitað íþróttamöguleikar og afþreying sem minna er um hérna í fámenninu hjá okkur. Við teljum hins vegar kosti á móti,“ segi Jón Gísli sem telur að stöðu sinnar vegna þurfi hann að vera bjartsýnn. „Ég verð að horfa á framtíðina björtum augum og halda því fram að við verðum enn þá til. En með íbúaþróunina, þá er erfitt að vita hvað verður.“ Horfurnar eru öllu svartari í Kaldrananeshreppi þar sem aðeins 19 börn bjuggu í hreppnum árið 2018. Vitað er að á síðustu vikum haf i tvær f jölskyldur f lutt úr hreppnum með börn og því er sú tala mun lægri nú. Finnur Ólafsson oddviti segir tækifæri fyrir byggðina að rísa á ný. „Ef allt gengur upp sem við erum að berjast fyrir þá verður öf lugri byggð hér og gæti skapað um hund­ rað störf á svæðinu,“ segir Finnur. Þar séu norskir og íslenskir aðilar að skoða þann möguleika að hefja fiskeldi í sveitarfélaginu með nýrri tækni þar sem ekki verður um opið sjókvíaeldi að ræða. Hins vegar er ljóst að þessi sveitar­ félög eru í nauðvörn. Ekki er ólíklegt að heilsársbúseta leggist af á næstu áratugum í Árneshreppi. Aðeins rétt rúmlega fjörutíu manns búa þar nú og þarf lítið að gerast til að byggð þar þurrkist hreinlega út. Drangsnes og Hólmavík sem tveir kjarnar gætu vissulega blómstrað en með fækkun í sveitunum í kring gæti róðurinn orðið þyngri. Bjart­ sýni virðist hins vegar ríkja meðal sveitarstjóranna. sveinn@frettabladid.is Strandabörn helmingi færri en um aldamótin Fækkun íbúa á Ströndum hefur verið viðvarandi síðustu áratugi. Börnum hefur fækkað hlutfallslega meira en öðrum íbúum á svæðinu. Endurnýjunin verður því ekki sjálfbær og útlit fyrir enn meiri fækkun í komandi framtíð. VIÐSKIPTI Tómas Már Sigurðs­ son, fyrrverandi aðstoðarforstjóri bandaríska álfyrirtækisins Alcoa, hefur verið ráðinn forstjóri HS Orku og tekur hann við starfinu um næstu áramót. Gengið var frá starfslokum fyrrverandi forstjóra HS Orku í lok ágúst síðastliðins. Áður var Tómas Már forstjóri Alcoa á Íslandi, í Evrópu og Mið­ Austurlöndum og nú síðast aðstoð­ arforstjóri Alcoa á heimsvísu. Hann er umhverfisverkfræðingur frá Háskóla Íslands með meistarapróf frá Cornell­háskóla í skipulags­ verkfræði. Hann hefur setið í fjölda stjórna og situr í stjórn Íslands­ banka. Í samtali við frettabladid.is segir Tómas að HS Orka sé frumkvöðull í jarðhitanýtingu auk nýsköpunar og þróunar sem henni tengist. „Þau tækifæri sem blasa við HS Orku eru afar spennandi og ég hlakka til að vinna að þeim með því afburðafólki sem hjá fyrirtækinu starfar,“ segir Tómas. – jþ Tómas Már nýr stjóri HS Orku +PLÚS VEIÐI „Mér sýnist á samfélags­ miðlum og af því sem ég hef heyrt að þetta hafi verið góð helgi til veiða,“ segir Áki Ármann Jónsson, for­ maður Skotvís. Hann segir að gott veður hafi átt sinn þátt í því. Hann segir að nokkuð virðist hafa verið af fugli. Erfitt sé hins vegar að segja um hvar mest veiddist þessa helgina. „Það sem maður veit er að Norð­ urlandið, Norðausturlandið, Aust­ urlandið og Vestfirðir hafi haldið þessu uppi.“ Áki segir að það sé algengt að menn fari á þessi svæði þó að þeir búi annars staðar. „Eitt­ hvað hefur verið um að menn hafi verið á fjórhjólum og sexhjólum við veiðar. Það er algerlega bannað sam­ kvæmt veiðilögum og við höfum verið að brýna það fyrir mönnum.“ Áki segir ekki meira um það í ár en endranær að landeigendur hafi lokað svæðum fyrir veiðum. „Þetta er áberandi núna því þessar til­ kynningar eru að færast inn á sam­ félagsmiðla.“ – jþ Rjúpnaveiði fyrstu helgi tímabilsins gekk vel Rjúpnaveiðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Tómas Már Sigurðsson. 4 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 4 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 5 -3 D D 0 2 4 2 5 -3 C 9 4 2 4 2 5 -3 B 5 8 2 4 2 5 -3 A 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 3 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.