Fréttablaðið - 04.11.2019, Side 12

Fréttablaðið - 04.11.2019, Side 12
Við höfum brennandi áhuga á nýsköpun og norrænum lífsstíl. Þar stendur Fibo undir nafni og sameinar hið náttúrulega og stílhreina,“ segir Sváfnir Hermannsson, sölumaður hjá Þ. Þorgrímssyni, um norska gæðamerkið Fibo sem býður hag- kvæmar og snjallar lausnir með nútímalegri hönnun. „Fjölbreytt hönnun, litir og form einkenna Fibo og þar hefur áhersla á nýsköpun verið helsti drif krafturinn. Hjá fyrirtækinu er lögð aðaláhersla á að finna bestu lausnirnar fyrir erfiðustu verkefnin, eins og votrými, þar sem engin mistök má gera, og þess vegna er Fibo oft valið þar sem mestu kröfur eru gerðar,“ upplýsir Sváfnir. Ný, norræn hönnun Hjá Þ. Þorgrímssyni er leikur einn að fá nýjar og skapandi hugmynd- ir til að innrétta heimkynnin samkvæmt því nýjasta í norrænni hönnun. „Fibo vinnur að stöðugri vöru- þróun og leggur mikla áherslu á að laga framleiðsluna að óskum og þörfum viðskiptavina til framtíðar litið. Hægt er að blanda saman einingum að vild og þar haldast í hendur framúrskarandi hönnun og gæði,“ segir Sváfnir um veggjakerfi Fibo sem er vottað í samræmi við viðmið um votrými og með fimmtán ára ábyrgð. „Því þarf ekki lengur að hugsa um að leggja gifs, rakasperru eða f lísar. Þiljurnar eru skrúfaðar eða límdar beint á vegg eða grind sem fyrir er. Jafnframt er einfalt að sníða þær til og fella þær að vegg eftir óskum. Allar þiljur Fibo eru af hentar með sérstöku Aqua- lock-kerfi sem er mjög auðvelt í uppsetningu. Yfirborðið er slétt og sterkt, þolir bæði miklar hita- sveif lur og að vatni sé sprautað á þær. Það er f ljótlegt að þurrka af þeim og auðvelt að halda þeim hreinum, og sé farið eftir ein- földum leiðbeiningum um upp- setningu má treysta því að kerfið haldi um ókomna tíð,“ upplýsir Sváfnir. Umhverfisvænn kostur Viðmið Fibo um sjálf bærni slær f lestum f lísum við. „Eigendur Fibo eru sann- færðir um að skynsamlegt sé að stunda viðskipti á ábyrgum og sjálf bærum grundvelli. Þess vegna er miðað við sem allra minnstu losun í umhverfið og þess vandlega gætt að birgjar Fibo hlíti ströngum kröfum á öllum þrepum,“ upplýsir Sváfnir um veggþiljur Fibo sem eru PEFC- vottaðar í samræmi við markmið um sjálf bæra nýtingu skóga. „Tré geyma kolefni sótt í gufuhvolfið allan sinn líftíma en það er mikilvægur kostur þess að nota timburvörur,“ segir Sváfnir. Mæta mismunandi smekk Vörulínur Fibo eru heillandi, fjöl- breyttar og mæta ólíkum smekk og þörfum viðskiptavina. „Marcato er stærsta og fjöl- breyttasta vörulína Fibo. Þar má finna viðaráferð, marmara- og steinsteypuyfirborð og margs konar áhrifaríka áferð. Í Marc- ato er einnig að finna þiljur með margvíslegum útlitseinkennum sem nota má til að fá fjölbreytni í rýmið,“ útskýrir Sváfnir um Marcato sem fæst í ýmsum f lísa- stærðum og með mismunandi mynstrum og yfirborðsáferð. „Hægt er að velja um náttúru- tóna sem sóttir eru í við, mold og grjót og á fibo.no er hægt að notfæra sér Fibo Visulizer sem gefur færi á að prófa öll blæbrigði og mismunandi samsetningar til að finna hvaða þiljur henta best,“ upplýsir Sváfnir. Dæmi um Marcato-þiljur er nútímalegur marmari. „Marmari fer aldrei úr tísku og hægt er að velja úr fjórum tilbrigðum með óhefðbundnu marmaramynstri sem og mynst- urþiljur án fúgu eða með stórum fræstum mynstrum í samræmi við það sem er vinsælast í baðher- bergjum,“ segir Sváfnir. Í Marcato-línunni er einnig hægt að velja hrjúfa steinsteypu- áferð. „Cracked Cement selst eins og heitar lummur og passar við f lest og fyrir f lesta. Hægt er að velja úr miklu úrvali blæbrigða og mynstra sem geta endurspeglað persónulegan stíl hvers og eins, og það er gaman að segja frá því að Marcato-þiljurnar fást í lengri lengdum fyrir húsnæði þar sem hátt er til lofts,“ upplýsir Sváfnir. Helstu einkenni norræna stílsins hafa alltaf verið stórir f letir og hreinar línur. „Fibo færir norræna náttúru inn með því að nota þiljur með viðaráferð sem veita algjört frelsi við val á innréttingum og einstakt að geta mótað þægilegt andrými með mjúkum litatónum og ljósum þiljum,“ segir Sváfnir. Hið einstaka Crescendo Crescendo-vörulínan er einstök á alla lund. „Með Crescendo-vörulínunni er hægt að móta notalegt umhverfi á baðherbergjum með mynstur- þiljum en þar er einnig að finna það sem við erum stoltust af: 100 prósent þrívíddarþiljur,“ segir Sváfnir. Yfirborð Crescendo er sumsé með þrívíddarmynstri. „Baðherbergi geta fengið ein- staka áferð með skrautlegum mynsturþiljum sem hægt er að setja saman með 600 mm breiðum þiljum til að móta alveg nýtt útlit. Crescendo-þiljurnar hafa mis- munandi yfirborð hvað varðar hæð og áferð og yfirbragðið er náttúrulegt. Crescendo er svo sér- hannað fyrir mjög náttúrulegar fúgur en þær eru ekki fræstar heldur hluti samræmds yfirborðs þiljanna,“ útskýrir Sváfnir. Litir gleðja og fegra Það er auðvelt að fegra heimilið með litum frá Colour Collection. „Við vitum að litir gleðja og bjóðum upp á fjölbreytt úrval nýtískulegra lita með ýmist háglans eða mattri áferð. Þann- ig verður úr mörgu að velja og margir samsetningarkostir bjóð- ast. Nýkomnir eru þrír nýir litir til viðbótar við litaf lóru Colour Collection: Dusty Blue og Smokey Blue með mjög möttu yfirborði sem færa öllum rýmum notalegan blæ. Nýjasti háglans liturinn er svo Midnight Blue en skapandi fólk sem þorir að tjá sig kröftug- lega heillast af háglans litum,“ segir Sváfnir og bendir enn og aftur á Fibo Visulizer á fibo.no til að prófa öll mynstrin í raunveru- legu baðherbergi eða eldhúsi til að sjá hvernig hinar ýmsu þiljur virka saman. Virðulegt og sígilt Vörulínan Fortissimo er sígildur og stílhreinn kostur sem kemur vel út á f lestum heimilum. „Í boði er fjölbreytt úrval mynstra og hægt að velja úr mis- munandi breidd og litum á fúgum. Mörg Fortissimo-munstur fást einnig á sérlega löngum þiljum fyrir nútímahús þar sem hátt er til lofts,“ segir Sváfnir. Frá Fibo fæst einnig vörulínan Legato. „Hún einkennist af stílhreinum mynstrum án fúgu og með sléttum yfirborðsflötum. Þiljurnar eru ljósar eða grátóna og koma vel út á f lestum heimilum með sígildum litatónum. Hægt er að velja silki- áferð sem einkennist af naum- hyggju eða stáláferð á yfirborði Titan,“ upplýsir Sváfnir. Topplok á salerniskassa Fibo býður upp á frábærar lausnir fyrir upphengda salerniskassa. „Tilsniðin topplok með Fibo- þiljum auðvelda klæðningu á skol- Seiðandi fögur útkoma í eldhúsinu. Marmari fer aldrei úr tísku og fæst í einkar glæsilegu úrvali frá Fibo. Stórar flísar eru vinsælar á baðið. Flott er að blanda saman stærðum. Dökkar marmaraþiljur með mjórri fúgu eru afar smart. Veggþiljur með viðaráferð veita þægilegt andrúmsloft og frelsi við val á innréttingum. Steinsteypu- áferð selst eins og heitar lummur í dag enda hæst- móðins. Fibo veit að litir gleðja og býður fjölbreytt úrval nýtískulegra lita með mattri eða háglans áferð. Dökk og hvítt saman er vinsælt nú. Eldhúsið fær heillandi útlit með Kitchen Board þiljum. Nútímalegar útfærslur og falleg hönnun eru aðalsmerki Fibo. Hægt er að velja um sígilda og stílhreina kosti með mörgum samsetningar- möguleikum. kassa,“ segir Sváfnir um plöturnar sem eru hluti af klæðningakerfi Fibo. „Topplokin eru límd eða fest ofan á salerniskassann á ein- faldan hátt og fást í þrenns konar útgáfum: svörtu með steináferð, hlutlausu hvítu með sléttu yfir- borði og Sawcut-eik,“ segir Sváfnir. Kitchen Board í flott eldhús Eldhúsið fær nýtískulegt útlit með Kitchen Board-þiljunum frá Fibo. „Samkvæmt tímaútreikningi er að lágmarki fimm sinnum fljót- legra að setja upp Fibo-veggþiljur en flísar. Mestur tími sparast við undirbúningsvinnuna því hægt er að setja Fibo beint á ýmsar gerðir veggja og vegggrindur,“ upplýsir Sváfnir um Kitchen Board sem hefur slegið í gegn. „Hægt er að velja á milli glans- andi málmáferðar sem með jarðar- litum úr náttúrunni gefur flott eld- hús sem vekja mun mikla athygli; steináferð sem gerir eldhúsveggina einkar smart, og nútímalegum marmara sem gerir andrúmsloftið í eldhúsinu alveg einstakt. Þá er hægt að fegra eldhúsið með eða án lita, en hvert sem valið verður er tryggt að þrifin verða auðveldari því Fibo Kitchen Board þolir bæði vatnsskvettur og hitasveiflur,“ upplýsir Sváfnir. Farðu inn á fibo.is eða korkur.is til að afla þér meiri upplýsinga og innblásturs. Þ. Þorgrímsson er í Ármúla 29. Sími 512 3360. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U R 0 4 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 5 -2 0 3 0 2 4 2 5 -1 E F 4 2 4 2 5 -1 D B 8 2 4 2 5 -1 C 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 3 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.