Fréttablaðið - 04.11.2019, Blaðsíða 12
Við höfum brennandi áhuga á nýsköpun og norrænum lífsstíl. Þar stendur Fibo
undir nafni og sameinar hið
náttúrulega og stílhreina,“ segir
Sváfnir Hermannsson, sölumaður
hjá Þ. Þorgrímssyni, um norska
gæðamerkið Fibo sem býður hag-
kvæmar og snjallar lausnir með
nútímalegri hönnun.
„Fjölbreytt hönnun, litir og
form einkenna Fibo og þar hefur
áhersla á nýsköpun verið helsti
drif krafturinn. Hjá fyrirtækinu
er lögð aðaláhersla á að finna
bestu lausnirnar fyrir erfiðustu
verkefnin, eins og votrými, þar
sem engin mistök má gera, og þess
vegna er Fibo oft valið þar sem
mestu kröfur eru gerðar,“ upplýsir
Sváfnir.
Ný, norræn hönnun
Hjá Þ. Þorgrímssyni er leikur einn
að fá nýjar og skapandi hugmynd-
ir til að innrétta heimkynnin
samkvæmt því nýjasta í norrænni
hönnun.
„Fibo vinnur að stöðugri vöru-
þróun og leggur mikla áherslu á
að laga framleiðsluna að óskum
og þörfum viðskiptavina til
framtíðar litið. Hægt er að blanda
saman einingum að vild og þar
haldast í hendur framúrskarandi
hönnun og gæði,“ segir Sváfnir um
veggjakerfi Fibo sem er vottað í
samræmi við viðmið um votrými
og með fimmtán ára ábyrgð.
„Því þarf ekki lengur að hugsa
um að leggja gifs, rakasperru eða
f lísar. Þiljurnar eru skrúfaðar eða
límdar beint á vegg eða grind sem
fyrir er. Jafnframt er einfalt að
sníða þær til og fella þær að vegg
eftir óskum. Allar þiljur Fibo eru
af hentar með sérstöku Aqua-
lock-kerfi sem er mjög auðvelt í
uppsetningu. Yfirborðið er slétt
og sterkt, þolir bæði miklar hita-
sveif lur og að vatni sé sprautað
á þær. Það er f ljótlegt að þurrka
af þeim og auðvelt að halda þeim
hreinum, og sé farið eftir ein-
földum leiðbeiningum um upp-
setningu má treysta því að kerfið
haldi um ókomna tíð,“ upplýsir
Sváfnir.
Umhverfisvænn kostur
Viðmið Fibo um sjálf bærni slær
f lestum f lísum við.
„Eigendur Fibo eru sann-
færðir um að skynsamlegt sé
að stunda viðskipti á ábyrgum
og sjálf bærum grundvelli. Þess
vegna er miðað við sem allra
minnstu losun í umhverfið og
þess vandlega gætt að birgjar Fibo
hlíti ströngum kröfum á öllum
þrepum,“ upplýsir Sváfnir um
veggþiljur Fibo sem eru PEFC-
vottaðar í samræmi við markmið
um sjálf bæra nýtingu skóga. „Tré
geyma kolefni sótt í gufuhvolfið
allan sinn líftíma en það er
mikilvægur kostur þess að nota
timburvörur,“ segir Sváfnir.
Mæta mismunandi smekk
Vörulínur Fibo eru heillandi, fjöl-
breyttar og mæta ólíkum smekk
og þörfum viðskiptavina.
„Marcato er stærsta og fjöl-
breyttasta vörulína Fibo. Þar má
finna viðaráferð, marmara- og
steinsteypuyfirborð og margs
konar áhrifaríka áferð. Í Marc-
ato er einnig að finna þiljur með
margvíslegum útlitseinkennum
sem nota má til að fá fjölbreytni
í rýmið,“ útskýrir Sváfnir um
Marcato sem fæst í ýmsum f lísa-
stærðum og með mismunandi
mynstrum og yfirborðsáferð.
„Hægt er að velja um náttúru-
tóna sem sóttir eru í við, mold
og grjót og á fibo.no er hægt að
notfæra sér Fibo Visulizer sem
gefur færi á að prófa öll blæbrigði
og mismunandi samsetningar til
að finna hvaða þiljur henta best,“
upplýsir Sváfnir.
Dæmi um Marcato-þiljur er
nútímalegur marmari.
„Marmari fer aldrei úr tísku
og hægt er að velja úr fjórum
tilbrigðum með óhefðbundnu
marmaramynstri sem og mynst-
urþiljur án fúgu eða með stórum
fræstum mynstrum í samræmi
við það sem er vinsælast í baðher-
bergjum,“ segir Sváfnir.
Í Marcato-línunni er einnig
hægt að velja hrjúfa steinsteypu-
áferð.
„Cracked Cement selst eins og
heitar lummur og passar við f lest
og fyrir f lesta. Hægt er að velja
úr miklu úrvali blæbrigða og
mynstra sem geta endurspeglað
persónulegan stíl hvers og eins,
og það er gaman að segja frá því
að Marcato-þiljurnar fást í lengri
lengdum fyrir húsnæði þar sem
hátt er til lofts,“ upplýsir Sváfnir.
Helstu einkenni norræna
stílsins hafa alltaf verið stórir
f letir og hreinar línur.
„Fibo færir norræna náttúru
inn með því að nota þiljur með
viðaráferð sem veita algjört frelsi
við val á innréttingum og einstakt
að geta mótað þægilegt andrými
með mjúkum litatónum og ljósum
þiljum,“ segir Sváfnir.
Hið einstaka Crescendo
Crescendo-vörulínan er einstök á
alla lund.
„Með Crescendo-vörulínunni er
hægt að móta notalegt umhverfi
á baðherbergjum með mynstur-
þiljum en þar er einnig að finna
það sem við erum stoltust af: 100
prósent þrívíddarþiljur,“ segir
Sváfnir.
Yfirborð Crescendo er sumsé
með þrívíddarmynstri.
„Baðherbergi geta fengið ein-
staka áferð með skrautlegum
mynsturþiljum sem hægt er að
setja saman með 600 mm breiðum
þiljum til að móta alveg nýtt útlit.
Crescendo-þiljurnar hafa mis-
munandi yfirborð hvað varðar
hæð og áferð og yfirbragðið er
náttúrulegt. Crescendo er svo sér-
hannað fyrir mjög náttúrulegar
fúgur en þær eru ekki fræstar
heldur hluti samræmds yfirborðs
þiljanna,“ útskýrir Sváfnir.
Litir gleðja og fegra
Það er auðvelt að fegra heimilið
með litum frá Colour Collection.
„Við vitum að litir gleðja og
bjóðum upp á fjölbreytt úrval
nýtískulegra lita með ýmist
háglans eða mattri áferð. Þann-
ig verður úr mörgu að velja og
margir samsetningarkostir bjóð-
ast. Nýkomnir eru þrír nýir litir
til viðbótar við litaf lóru Colour
Collection: Dusty Blue og Smokey
Blue með mjög möttu yfirborði
sem færa öllum rýmum notalegan
blæ. Nýjasti háglans liturinn er
svo Midnight Blue en skapandi
fólk sem þorir að tjá sig kröftug-
lega heillast af háglans litum,“
segir Sváfnir og bendir enn og
aftur á Fibo Visulizer á fibo.no til
að prófa öll mynstrin í raunveru-
legu baðherbergi eða eldhúsi til
að sjá hvernig hinar ýmsu þiljur
virka saman.
Virðulegt og sígilt
Vörulínan Fortissimo er sígildur
og stílhreinn kostur sem kemur vel
út á f lestum heimilum.
„Í boði er fjölbreytt úrval
mynstra og hægt að velja úr mis-
munandi breidd og litum á fúgum.
Mörg Fortissimo-munstur fást
einnig á sérlega löngum þiljum
fyrir nútímahús þar sem hátt er til
lofts,“ segir Sváfnir.
Frá Fibo fæst einnig vörulínan
Legato.
„Hún einkennist af stílhreinum
mynstrum án fúgu og með sléttum
yfirborðsflötum. Þiljurnar eru
ljósar eða grátóna og koma vel út
á f lestum heimilum með sígildum
litatónum. Hægt er að velja silki-
áferð sem einkennist af naum-
hyggju eða stáláferð á yfirborði
Titan,“ upplýsir Sváfnir.
Topplok á salerniskassa
Fibo býður upp á frábærar lausnir
fyrir upphengda salerniskassa.
„Tilsniðin topplok með Fibo-
þiljum auðvelda klæðningu á skol-
Seiðandi fögur útkoma í eldhúsinu.
Marmari fer
aldrei úr tísku
og fæst í einkar
glæsilegu úrvali
frá Fibo.
Stórar flísar eru vinsælar á baðið.
Flott er að blanda saman stærðum.
Dökkar marmaraþiljur með mjórri fúgu eru afar smart.
Veggþiljur með
viðaráferð
veita þægilegt
andrúmsloft og
frelsi við val á
innréttingum.
Steinsteypu-
áferð selst
eins og heitar
lummur í dag
enda hæst-
móðins.
Fibo veit að litir
gleðja og býður
fjölbreytt úrval
nýtískulegra
lita með mattri
eða háglans
áferð.
Dökk og hvítt saman er vinsælt nú.
Eldhúsið fær heillandi útlit með Kitchen Board þiljum.
Nútímalegar
útfærslur og
falleg hönnun
eru aðalsmerki
Fibo.
Hægt er að velja
um sígilda og
stílhreina kosti
með mörgum
samsetningar-
möguleikum.
kassa,“ segir Sváfnir um plöturnar
sem eru hluti af klæðningakerfi
Fibo.
„Topplokin eru límd eða fest
ofan á salerniskassann á ein-
faldan hátt og fást í þrenns konar
útgáfum: svörtu með steináferð,
hlutlausu hvítu með sléttu yfir-
borði og Sawcut-eik,“ segir Sváfnir.
Kitchen Board í flott eldhús
Eldhúsið fær nýtískulegt útlit með
Kitchen Board-þiljunum frá Fibo.
„Samkvæmt tímaútreikningi er
að lágmarki fimm sinnum fljót-
legra að setja upp Fibo-veggþiljur
en flísar. Mestur tími sparast við
undirbúningsvinnuna því hægt er
að setja Fibo beint á ýmsar gerðir
veggja og vegggrindur,“ upplýsir
Sváfnir um Kitchen Board sem
hefur slegið í gegn.
„Hægt er að velja á milli glans-
andi málmáferðar sem með jarðar-
litum úr náttúrunni gefur flott eld-
hús sem vekja mun mikla athygli;
steináferð sem gerir eldhúsveggina
einkar smart, og nútímalegum
marmara sem gerir andrúmsloftið
í eldhúsinu alveg einstakt. Þá er
hægt að fegra eldhúsið með eða án
lita, en hvert sem valið verður er
tryggt að þrifin verða auðveldari
því Fibo Kitchen Board þolir bæði
vatnsskvettur og hitasveiflur,“
upplýsir Sváfnir.
Farðu inn á fibo.is eða korkur.is
til að afla þér meiri upplýsinga og
innblásturs. Þ. Þorgrímsson er í
Ármúla 29. Sími 512 3360.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U R
0
4
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
5
-2
0
3
0
2
4
2
5
-1
E
F
4
2
4
2
5
-1
D
B
8
2
4
2
5
-1
C
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K