Fréttablaðið - 04.11.2019, Side 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Sími: 558 1100
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður Skeiði 1
Allir sófar á taxfree tilboði*
SÓFAR
TAXFREE
www.husgagnahollin.is
V
E F
V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
* Taxfree tilboðið gildir á sófum, sófa borðum og púðum
og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði.
Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
CLEVELAND
Hornsófi með tungu. Hægri eða vinstri
tunga. Dökk- eða ljósgrátt slitsterkt áklæði.
Stærð: 308 × 140/203 × 81 cm
145.153 kr. 179.990 kr.
FRIDAY
Þéttur, þægilegur og rúmgóður sófi með háu baki og
góðum bakstuðningi. Tungan er færanleg frá vinstri til
hægri. Grátt Danny áklæði. Stærð: 252 x 175 x 91 cm
145.153 kr. 179.990 kr.
EASY
Rúmgóður og þéttur tungusófi í dökkgráu slitgóðu
áklæði. Ljósir viðarfætur. Tungan er færanleg og getur
verið beggja vegna. Stærð: 233 x 147 x 86 cm
145.153 kr. 179.990 kr.
Björn Ingi Baldvinsson er nítján ára gamall nemandi á fjórða ári á félagsfræðibraut við Menntaskólann við Hamrahlíð þar sem
hann þekkir hvern krók og kima
eftir að hafa „byggt“ nákvæma eftir-
líkingu af skólanum í tölvuleiknum
Minecraft.
Skólabyggingin var nokkur þol-
inmæðisvinna enda hugaði hann að
ótal smáatriðum auk þess sem segja
má að hann hafi verið í lífshættu á
meðan hann stóð í stafrænni bygg-
ingarvinnunni þar sem hann vann
í stillingu sem gerir hann berskjald-
aðan fyrir árásum annarra spilara.
„Ég var að þessu í rúmlega tvo
og hálfan mánuð,“ segir Björn Ingi
og bætir við að hann hafi verið að
vinna í sumar. „Þannig að ég var
bara að gera þetta þegar mér leidd-
ist.“
Kláraði grunnskólann fyrst
„Ég byggði Árbæjarskóla í fyrra en
man nú ekki af hverju mér datt í
hug að reisa grunnskólann minn í
Minecraft,“ segir Björn Ingi þegar
hann er spurður hvað varð til þess
að hann réðist í það þolinmæðis-
verk að byggja MH. „Ég gerði það
allavegana og síðan langaði mig líka
að byggja MH.“
Hann segir Minecraft vera þess
eðlis að stundum langi hann til
þess að gera eitthvað þar en viti ekki
nákvæmlega hvað. „Og þá finnst
mér voða gaman að byggja eitthvað
úr raunveruleikanum vegna þess að
þá er maður með alveg fast plan um
hvað maður ætlar sér að gera.“
Byggt á busakorti
Björn Ingi hófst handa við smíðina
í lok júlí þegar skólinn var lokaður
en „það er kort af skólanum inni á
heimasíðu MH sem allir busar fá
og ég man eftir að hafa fengið þetta
kort af báðum hæðunum,“ segir
Björn Ingi sem studdist við kortið
þar til hann komst inn í bygginguna
sjálfa á ný.
Í kortinu eru þó eyður sem hann
fyllti upp í eftir minni og lagfærði
enn meira þegar skólinn byrjaði.
„Þá fór ég og fullvissaði mig um að
allt væri á sínum stað,“ segir Björn
Ingi sem lagði reglustiku á kortið
til þess að allir kvarðar og hlutföll
væru rétt.
Hættuspil?
Björn Ingi lauk við byggingu MH í
því sem kallað er „survival mode“ í
Minecraft en það felur í sér að spil-
arar geta ekki athafnað sig óáreittir
ólíkt „creative mode“ þar sem leik-
menn eru almáttugir í leiknum og
geta gert hvað sem þeim dettur í
hug og notast við allt sem leikurinn
býður upp á.
„Í „survival mode“ snýst þetta
um að þú ert í raun leikmaður inni
í heiminum og þú þarft að lifa. Sjá
fyrir þér og passa að enginn komi
og drepi þig,“ segir Björn Ingi og
hlær þegar hann er spurður hvort
hann hafi verið í „lífshættu“ við hús-
bygginguna. Hann gerir ekki mikið
úr háskanum, truflunum og áreiti
þar sem hann var kominn vel á veg í
leiknum og hafði komið sér vel fyrir
þar áður en hann hófst handa.
Mikil ánægja með MH í MH
Björn Ingi segir aðspurður að staf-
ræn eftirlíking hans af skólanum
hafi strax vakið mikla athygli og
ánægju innan steinsteyptra veggja
MH, bæði hjá nemendum og kenn-
urum.
Hann byrjaði á að vekja athygli
á þessu í Facebook-hópi nemenda-
félagsins sem telur um 800 manns
sem létu um 300 „lækum“ rigna
yf ir skólabygginguna. „Öllum
fannst þetta ótrúlega flott og nem-
endafélagið bað meira að segja um
eintak af heiminum á USB-lykli til
varðveislu í skjalasafni nemenda-
félagsins.“
Björn Ingi opnaði aðgang að skól-
anum á sérstökum netþjóni þar sem
talsverður gestagangur hefur verið í
skólanum. „Það hafa samt ekki allir
tök á að fara inn á Minecraft-serv-
era,“ segir Björn Ingi sem býður
alla sem við slíkt ráða velkomna á:
s21.hosthorde.com:26367.
toti@frettabladid.is
Byggði MH í háskalegum
Minecraft-heimi
Björn Ingi Baldvinsson er 19 ára MH-ingur sem stundar skólann
bæði í raunheimum og sýndarveruleika þar sem hann hefur reist
nákvæma eftirmynd Menntaskólans við Hamrahlíð í Minecraft.
Björn Ingi vistar MH meðal annars á sérstaklega vörðum netþjóni þar sem hægt er að skoða skólann. „Þar sem það
er ekki hægt að eyðileggja neitt eða þannig,“ segir Björn Ingi sem hér er settur inn á eigin tölvumynd af MH.
ÖLLUM FANNST ÞETTA
ÓTRÚLEGA FLOTT OG
NEMENDAFÉLAGIÐ BAÐ MEIRA
AÐ SEGJA UM EINTAK AF
HEIMINUM Á USB-LYKLI TIL
VARÐVEISLU Í SKJALASAFNI
NEMENDAFÉLAGSINS.
4 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
2
5
-2
5
2
0
2
4
2
5
-2
3
E
4
2
4
2
5
-2
2
A
8
2
4
2
5
-2
1
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K