Fréttablaðið - 08.11.2019, Qupperneq 2
Veður
Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s
og dálítil. Frostlaust að deginum
við suður- og vesturströndina, ann-
ars frost 0 til 10 stig. Hiti 0 til 5 stig
sunnan- og vestan til. SJÁ SÍÐU 18
Gengið milli gámanna
REYKJAVÍK Kostnaður við Friðar-
súlu Yoko Ono í ár nemur um 5,8
milljónum króna. Það þykir frekar
mikið enda hefur heildarkostnaður
við verkið, síðan það var vígt árið
2007 til ársins 2018, numið rúmlega
40 milljónum króna.
Hinn hái kostnaður orsakast af
því að setja þurfti upp nýja spegla í
verkinu sem mun gera súluna enn
bjartari og fallegri en fyrr að sögn
Sigurðar Trausta Traustasonar,
deildarstjóra safneigna og rann-
sókna hjá Listasafni Reykjavíkur.
Friðarsúlan er langflóknasta úti-
listaverk höfuðborgarinnar og því
fer fjarri að bara sé kveikt á ljós-
rofa þann 9. október ár hvert þegar
kveikt er á súlunni með viðhöfn.
„Á hverju ári fer hópur út í Viðey til
að stilla ljóssúluna af. Það eru níu
kastarar sem mynda súluna og þeir
þurfa að vera beinir,“ segir Sigurður
Trausti. Þetta er framkvæmt þannig
að fimm manna teymi fer út í eyju.
Einn starfsmaður fær það hlut-
verk að kveikja á fyrsta kastaranum
og hinir fjórir leggja síðan mat á
hvort ljósgeislinn sé beinn eða ekki.
„Þetta er hægara sagt en gert þar sem
verkið stendur á berangri og ekkert
til að miða við. Það er sambærilegt
stærra verk í New York, þar sem
Tvíbura turnarnir stóðu áður, og þar
hafa þeir öll þessu beinu háhýsi til að
miða sig við,“ segir Sigurður Trausti.
Hann bætir því við að iðulega sé ein-
hver kunningi til taks á höfuðborgar-
svæðinu sem hægt er að hringja í og
fá álit á því hvort geislinn sé beinn.
Að hans mati hefur nokkuð vel
tekist til í gegnum árin við að hafa
súluna beina. „Það þurfti ekkert að
stilla hana af í ár þegar við kveikt-
um á súlunni. Það hefur einu sinni
komið fyrir að við töldum okkur
hafa klárað verkefnið en þegar við
vorum komnir í smá fjarlægð sáum
við að geislinn var ansi skakkur. Þá
var klukkan bara orðin of margt
þannig að við þurftum að fara aftur
út í eyju daginn eftir og laga verkið,“
segir Sigurður Trausti kíminn.
Hróður Friðarsúlunnar eykst
ár frá ári og má með sanni segja að
listaverkið sé að verða eitt af ein-
kennistáknum höfuðborgarinnar.
Sigurður Trausti segir starfsfólk
Listasafns Reykjavíkur tvímæla-
laust verða vart við þennan áhuga.
„Í ár voru tæplega 1.800 manns sem
nýttu sér boð Yoko Ono um ókeypis
siglingu út í Viðey til þess að verða
vitni að tendrun súlunnar. Það er
mesti fjöldi sem hefur mætt á þenn-
an viðburð,“ segir Sigurður Trausti.
gar@frettabladid.is
bjornth@frettabladid.is
Friðarsúlan ekki skökk
Kostnaður við Friðarsúlu Yoko Ono nemur 5,8 milljónum í ár. Fimm manna
teymi stillir súluna af á hverju ári og er vandasamt að stilla ljósgeislan beinan.
Þetta er hægara sagt
en gert þar sem
verkið stendur á berangri og
ekkert til að miða við.
Sigurður Trausti
Traustason,
deildastjóri
safneigna og
rannsókna hjá
Listasafni Íslands
Frá tendrun Friðarsúlunnar í síðasta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
VÍKINGUR
OG DANÍEL
FÖSTUDAGUR
8. NÓVEMBER 19:30
AUKATÓNLEIKAR
ÖRFÁ SÆTI LAUS
TÓNLEIKUNUM ER STREYMT
BEINT Í MYND Á SINFONIA.IS
VÍSINDI Kári Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar, fékk
í gær af hent hin alþjóðlegu KFJ-
verðlaun sem veitt eru af Ríkis-
spítalanum í Kaupmannahöfn. Í til-
kynningu frá Ríkisspítalanum segir
að Kári og teymi hans hjá deCODE
hafi gegnt lykilhlutverki í vinnu
spítalans við þróun einstaklings-
bundinna lyfja.
Henrik Ullum, prófessor í ónæm-
isfræðum við spítalann, var einn
þeirra sem tilnefndu Kára til verð-
launanna. „Það þarf bara að horfa á
yfirlit yfir þær vísindagreinar sem
Kári hefur skrifað til að átta þig á
hversu mikill brautryðjandi hann
hefur verið á sviði erfðavísinda,“ er
haft eftir Ullum.
Samstarf deCODE og spítalans
hefur leitt til fjölmargra rannsókn-
arverkefna. Fyrirtækið hefur meðal
annars greint sýni 200 þúsund
sjúklinga úr lífsýnabanka spítalans
auk 110 þúsund sýna úr Dönsku
blóðgjafarannsókninni. – sar
Kári Stefánsson
verðlaunaður
K JARAMÁL „Þetta eru auðvitað
blendnar tilfinningar og eitthvað
sem maður hefur engan sérstakan
áhuga á að fara í en blaðamenn
verða auðvitað að standa með
sjálfum sér. Það liggur alveg fyrir
að laun þeirra eru ömurleg,“ segir
Hjálmar Jónsson, formaður Blaða-
mannafélags Íslands (BÍ).
Í dag hefst fyrsta verkfall blaða-
manna síðan 1978 en það nær til
Fréttablaðsins, Morgunblaðsins,
Sýnar og RÚV. Klukkan 10 leggja
ljósmyndarar, myndatökumenn
og fréttamenn á vefmiðlum þess-
ara miðla sem eru í BÍ niður störf í
fjórar klukkustundir.
Náist ekki samningar munu
sömu hópar leggja niður störf
næstu tvo föstudaga, fyrst í átta
tíma og svo í tólf tíma. Hafi enn
ekki verið samið munu blaðamenn
á prentmiðlum leggja niður störf
fimmtudaginn 28. nóvember.
Eng ir for mleg ir samninga-
fundir hafa verið boðaðir milli
Blaðamannafélagsins og Sam-
taka atvinnulífsins (SA) sem fer
með samningsumboð miðlanna
fjögurra. Hjálmar segist hafa átt í
óformlegum samræðum við SA en
ekkert hafi komið út úr þeim.
Samningur náðist í gær milli
Blaðamannafélagsins og Útgáfu-
félags Stundarinnar sem er í aðal-
atriðum samhljóma þeim samn-
ingum sem hafa verið gerðir við
Birtíng og Kjarnann. – sar
Blaðamenn og ljósmyndarar á rit-
stjórn Fréttablaðsins eru félagar í
Blaðamannafélaginu.
Fyrsta
verkfallið
síðan 1978
Í dag hefst fyrsta
verkfall blaðamanna
síðan árið 1978.
Þessi drengur virtist njóta dagsins áhyggjulaus á leið sinni um Hafnarfjörð í gær. Fallegt veður var í höfuðborginni og búast má við svipuðu veðri í
dag , hita á bilinu 0-5 stig. Sólsetur í Reykjavík verður klukkan ellefu mínútum fyrir fimm og tunglið rís sautján mínútum síðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
F
-D
3
4
4
2
4
2
F
-D
2
0
8
2
4
2
F
-D
0
C
C
2
4
2
F
-C
F
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K