Fréttablaðið - 08.11.2019, Page 20

Fréttablaðið - 08.11.2019, Page 20
Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Ég ákvað að flytja til Mallorca eftir að hafa verið þar í 15 daga í júní í fjölskylduferð, en við fórum 13 saman á æðislega skemmtilegt fjölskylduhótel í Santa Ponsa, Pirates Village, og þar eignaðist ég góða vini sem vinna á hótelinu,“ segir Jóhanna Kristín, en hún á tvö börn, þau Katrínu Rosönnu sem er átta ára og Daniel Antonio, fjögurra ára. Vill að börnin læri spænsku „Það hefur lengi verið draumur að flytja til spænskumælandi lands í einhvern tíma svo krakkarnir mínir læri spænsku almennilega, en pabbi þeirra er frá Dóminíska lýðveldinu. Ég kynntist honum þegar ég var skiptinemi þar frá 2009 til 2010.“ Jóhanna, sem talar reiprennandi spænsku, segist leggja ríka áherslu á að börnin læri spænsku. „Ég hef talað spænsku dagsdaglega síðan þá og við töluðum alltaf spænsku heima þegar við bjuggum saman, en krakkarnir hafa ekki alveg náð nógu góðum tökum á tungumál- inu, þá aðallega sá yngri. Planið var alltaf að fara til Dóminíska lýðveldisins einhvern tíma í þessa vegferð en eftir utanlandsferðina í júní leist mér svo vel á Mallorca.“ Því er gjarnan fleygt fram að þegar einar dyr lokist, opnist aðrar og á það sannarlega við í tilfelli Jóhönnu. „Þar sem ég var flugfreyja hjá WOW air í tæplega tvö ár og missti vinnuna í lok mars við fall flugfélagsins þá fannst mér þetta tilvalið tækifæri til að láta draum- inn rætast. Svo er svo auðvelt fyrir krakkana að læra tungumál meðan þau eru svona ung þannig að ég ákvað bara að skella mér.“ Brösug byrjun en þess virði „Ég fór ein út tvisvar sinnum í júlí til að sækja um NIE-númer, sem gefur þér leyfi til að vinna á Spáni og redda alls konar öðrum papp- írum, skoða skóla, fara í atvinnu- viðtöl og alls konar sem þurfti að vera tilbúið áður en við ákvæðum að flytja út,“ útskýrir Jóhanna. „Ég fékk viðtal hjá TUI, sem er ferða- skrifstofa, og þau vildu ráða mig í vinnu í júlí en þar sem ég var ekki komin með NIE-númerið þá gat ég ekki byrjað strax. Það tók tæplega þrjá mánuði að fá þetta blessaða númer þar sem öll pappírsvinna tekur mjög langan tíma á Spáni.“ Það gekk á ýmsu. „Þetta hefur gengið upp og niður hjá okkur. Þegar við komum til landsins höfðum við fundið íbúð sem við ætluðum að flytja inn í sem reynd- ist svo vera svindl. Við gistum svo nokkrar nætur hjá vini okkar frá hótelinu en fundum svo litla íbúð sem var hugsuð til bráðabirgða þar til við myndum finna aðra sem hentaði okkur.“ Börnin hafi blómstrað í skól- anum. „Krakkarnir byrjuðu í skól- anum í september og þeim gengur mjög vel og eru búin að eignast fullt af vinum. Katrín talar miklu betri spænsku núna eftir þrjá mánuði og er einnig að læra katalónsku og ensku, Daníel segir nýtt orð á hverjum degi og skilur meira og meira.“ Biðin eftir tilskildum pappírum og leitin að húsnæði hafi þó tekið á taugarnar. „Fyrir mig er þetta búið að vera svolítið stress- andi, þessir fyrstu mánuðir þar sem ég þurfti að bíða svo lengi eftir NIE-númerinu og það gekk ekkert að finna nýja íbúð.“ Fjöltyngd og náin fjölskylda En öll él birtir upp um síðir og framtíðin er björt. „Núna loksins, þrem mánuðum síðar, er ég komin með númerið, er að byrja að vinna hjá TUI, krakkarnir í skólanum, við kynntumst yndislegri konu frá Brasilíu sem nær í krakkana úr skólanum, æfum capoeira öll saman tvisvar í viku og erum núna loksins, eftir alls konar vesen, að fara að flytja í góða íbúð.“ „Við komum heim talandi fimm tungumál reiprennandi með þessu áframhaldi. Íslenskuna tölum við okkar á milli, spænskuna tölum við við alla aðra, í skólunum er kennt á katalónsku, enskan er svo kennd í skólanum og svo lærum við portúgölsku í capoeira, en „sjó- ræningja“-vinir okkar eru allir frá Brasilíu.“ Jóhanna segir fjölskyldu og vini hafa verið skilningsrík. „Ég held að fjölskyldunni og vinum finnist ég vera ansi mikil draumórakona með aðeins of mikla ævintýraþrá. En þau hafa verið ekkert annað en hjálpsöm og þau eru alltaf til staðar fyrir mig. Ég held að þau skilji samt af hverju mig langaði til að gera þetta og þau styðja ákvarðanir mínar.“ Þó sé mikill söknuður eftir ástvinum, bæði mennskum og úr dýraríkinu. „Ég sakna fjöl- skyldunnar og vina minna mikið. Og kattanna minna, en ég á þrjár kisur. Það hjálpar þó mikið að hugsa að þetta sé bara tímabundið. Svo langar mig afskaplega mikið í hrískúlur frá Freyju.“. Jóhanna segir að framtíðin sé óráðin og það sé viss huggun fólgin Tækifæri til að láta drauminn rætast Jóhanna Kristín var flugfreyja hjá WOW þegar ósköpin dundu yfir. Eftir að hafa kynnst góðum vinum í fríi á Mallorca síðasta sumar ákvað hún að flytjast búferlum til eyjarinnar. Jóhanna Kristín er hér ásamt börnunum sín- um, Daníel Ant- onio og Katrínu Rosanna. Fjölskyldan nýtur sín á Mallorca og hefur í nógu að snúast. Jóhanna Kristín er óhrædd við að takast á við nýjar og krefjandi áskoranir. í þeirri hugsun að þetta þurfi ekki að vera varanlegt. „Ég er ekki búin að ákveða hvenær ég kem heim. Þetta var upphaflega hugsað sem tímabundin lífsreynsla. Það er samt voða gott að vita það að við getum alltaf farið aftur heim. Sú hugsun er búin að hjálpa mér mikið í gegnum þá erfiðleika sem við höfum þurft að glíma við. Ég hef oft verið við það að fara heim en ég veit að ef ég geri það áður en þetta er fullreynt mun ég sjá eftir því. Núna fyrst er allt loksins að smella saman og lítur út fyrir að þetta muni ganga vel, ég er samt ekki viss um hversu lengi við munum vera hér þar sem ég sé alls konar önnur tækifæri. Þetta kemur allt í ljós.“ Jólablað Fréttablaðsins Kemur út þriðjudaginn 26. nóvember. Vilt þú auglýsa í mest lesna jólablaði landsins? Hafðu þá samband við auglýsingadeild Fréttablaðsins. sími 550 5077 – serblod@frettabladid.is Skemmtilegt blað sem kemur inn á allar hliðar jólaundirbúningsins. Uppflettirit sem lesendur leita í aftur og aftur. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt auk blað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 0 8 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 F -E B F 4 2 4 2 F -E A B 8 2 4 2 F -E 9 7 C 2 4 2 F -E 8 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.