Fréttablaðið - 08.11.2019, Qupperneq 20
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Ég ákvað að flytja til Mallorca eftir að hafa verið þar í 15 daga í júní í fjölskylduferð,
en við fórum 13 saman á æðislega
skemmtilegt fjölskylduhótel í
Santa Ponsa, Pirates Village, og þar
eignaðist ég góða vini sem vinna
á hótelinu,“ segir Jóhanna Kristín,
en hún á tvö börn, þau Katrínu
Rosönnu sem er átta ára og Daniel
Antonio, fjögurra ára.
Vill að börnin læri spænsku
„Það hefur lengi verið draumur að
flytja til spænskumælandi lands
í einhvern tíma svo krakkarnir
mínir læri spænsku almennilega,
en pabbi þeirra er frá Dóminíska
lýðveldinu. Ég kynntist honum
þegar ég var skiptinemi þar frá
2009 til 2010.“
Jóhanna, sem talar reiprennandi
spænsku, segist leggja ríka áherslu
á að börnin læri spænsku. „Ég hef
talað spænsku dagsdaglega síðan
þá og við töluðum alltaf spænsku
heima þegar við bjuggum saman,
en krakkarnir hafa ekki alveg náð
nógu góðum tökum á tungumál-
inu, þá aðallega sá yngri. Planið
var alltaf að fara til Dóminíska
lýðveldisins einhvern tíma í þessa
vegferð en eftir utanlandsferðina í
júní leist mér svo vel á Mallorca.“
Því er gjarnan fleygt fram að
þegar einar dyr lokist, opnist aðrar
og á það sannarlega við í tilfelli
Jóhönnu. „Þar sem ég var flugfreyja
hjá WOW air í tæplega tvö ár og
missti vinnuna í lok mars við fall
flugfélagsins þá fannst mér þetta
tilvalið tækifæri til að láta draum-
inn rætast. Svo er svo auðvelt fyrir
krakkana að læra tungumál meðan
þau eru svona ung þannig að ég
ákvað bara að skella mér.“
Brösug byrjun en þess virði
„Ég fór ein út tvisvar sinnum í júlí
til að sækja um NIE-númer, sem
gefur þér leyfi til að vinna á Spáni
og redda alls konar öðrum papp-
írum, skoða skóla, fara í atvinnu-
viðtöl og alls konar sem þurfti að
vera tilbúið áður en við ákvæðum
að flytja út,“ útskýrir Jóhanna. „Ég
fékk viðtal hjá TUI, sem er ferða-
skrifstofa, og þau vildu ráða mig í
vinnu í júlí en þar sem ég var ekki
komin með NIE-númerið þá gat ég
ekki byrjað strax. Það tók tæplega
þrjá mánuði að fá þetta blessaða
númer þar sem öll pappírsvinna
tekur mjög langan tíma á Spáni.“
Það gekk á ýmsu. „Þetta hefur
gengið upp og niður hjá okkur.
Þegar við komum til landsins
höfðum við fundið íbúð sem við
ætluðum að flytja inn í sem reynd-
ist svo vera svindl. Við gistum svo
nokkrar nætur hjá vini okkar frá
hótelinu en fundum svo litla íbúð
sem var hugsuð til bráðabirgða
þar til við myndum finna aðra sem
hentaði okkur.“
Börnin hafi blómstrað í skól-
anum. „Krakkarnir byrjuðu í skól-
anum í september og þeim gengur
mjög vel og eru búin að eignast fullt
af vinum. Katrín talar miklu betri
spænsku núna eftir þrjá mánuði
og er einnig að læra katalónsku
og ensku, Daníel segir nýtt orð
á hverjum degi og skilur meira
og meira.“ Biðin eftir tilskildum
pappírum og leitin að húsnæði hafi
þó tekið á taugarnar. „Fyrir mig er
þetta búið að vera svolítið stress-
andi, þessir fyrstu mánuðir þar
sem ég þurfti að bíða svo lengi eftir
NIE-númerinu og það gekk ekkert
að finna nýja íbúð.“
Fjöltyngd og náin fjölskylda
En öll él birtir upp um síðir og
framtíðin er björt. „Núna loksins,
þrem mánuðum síðar, er ég komin
með númerið, er að byrja að vinna
hjá TUI, krakkarnir í skólanum,
við kynntumst yndislegri konu
frá Brasilíu sem nær í krakkana
úr skólanum, æfum capoeira öll
saman tvisvar í viku og erum núna
loksins, eftir alls konar vesen, að
fara að flytja í góða íbúð.“
„Við komum heim talandi fimm
tungumál reiprennandi með þessu
áframhaldi. Íslenskuna tölum við
okkar á milli, spænskuna tölum
við við alla aðra, í skólunum er
kennt á katalónsku, enskan er svo
kennd í skólanum og svo lærum
við portúgölsku í capoeira, en „sjó-
ræningja“-vinir okkar eru allir frá
Brasilíu.“
Jóhanna segir fjölskyldu og vini
hafa verið skilningsrík. „Ég held
að fjölskyldunni og vinum finnist
ég vera ansi mikil draumórakona
með aðeins of mikla ævintýraþrá.
En þau hafa verið ekkert annað en
hjálpsöm og þau eru alltaf til staðar
fyrir mig. Ég held að þau skilji samt
af hverju mig langaði til að gera
þetta og þau styðja ákvarðanir
mínar.“
Þó sé mikill söknuður eftir
ástvinum, bæði mennskum og
úr dýraríkinu. „Ég sakna fjöl-
skyldunnar og vina minna mikið.
Og kattanna minna, en ég á þrjár
kisur. Það hjálpar þó mikið að
hugsa að þetta sé bara tímabundið.
Svo langar mig afskaplega mikið í
hrískúlur frá Freyju.“.
Jóhanna segir að framtíðin sé
óráðin og það sé viss huggun fólgin
Tækifæri til að láta drauminn rætast
Jóhanna Kristín var flugfreyja hjá WOW þegar ósköpin dundu yfir. Eftir að hafa kynnst
góðum vinum í fríi á Mallorca síðasta sumar ákvað hún að flytjast búferlum til eyjarinnar.
Jóhanna Kristín
er hér ásamt
börnunum sín-
um, Daníel Ant-
onio og Katrínu
Rosanna.
Fjölskyldan nýtur sín á Mallorca og hefur í nógu að snúast.
Jóhanna Kristín er óhrædd við að takast á við nýjar og krefjandi áskoranir.
í þeirri hugsun að þetta þurfi ekki
að vera varanlegt. „Ég er ekki búin
að ákveða hvenær ég kem heim.
Þetta var upphaflega hugsað sem
tímabundin lífsreynsla. Það er
samt voða gott að vita það að við
getum alltaf farið aftur heim. Sú
hugsun er búin að hjálpa mér
mikið í gegnum þá erfiðleika sem
við höfum þurft að glíma við. Ég
hef oft verið við það að fara heim
en ég veit að ef ég geri það áður en
þetta er fullreynt mun ég sjá eftir
því. Núna fyrst er allt loksins að
smella saman og lítur út fyrir að
þetta muni ganga vel, ég er samt
ekki viss um hversu lengi við
munum vera hér þar sem ég sé alls
konar önnur tækifæri. Þetta kemur
allt í ljós.“
Jólablað Fréttablaðsins
Kemur út þriðjudaginn 26. nóvember.
Vilt þú auglýsa í mest lesna
jólablaði landsins?
Hafðu þá samband við auglýsingadeild Fréttablaðsins.
sími 550 5077 – serblod@frettabladid.is
Skemmtilegt blað sem kemur inn á allar hliðar jólaundirbúningsins.
Uppflettirit sem lesendur leita í aftur og aftur.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt auk blað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
0
8
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
F
-E
B
F
4
2
4
2
F
-E
A
B
8
2
4
2
F
-E
9
7
C
2
4
2
F
-E
8
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K