Fréttablaðið - 08.11.2019, Qupperneq 22
Unglingunum er
bent á að nota
ilmefnalausan svita-
lyktareyði.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Norðurljósin myndast vegna þess að hlaðnar agnir frá sólinni komast inn í loft-
hjúp jarðarinnar. Ljósin sjást við
segulskaut jarðarinnar við norður-
pólinn. Sams konar ljós sjást við
suðurpólinn og kallast suðurljós.
Samheiti yfir norður- og suður-
ljósin er segulljós.
Þegar agnirnar frá sólinni
fara inn í segulsvið jarðarinnar
streyma þær í átt að pólunum og
rekast þar í lofthjúpinn. Við það
myndast orka sem framkallar
ljósin.
Ljósin geta verið í ýmsum litum
þó oftast séu þau græn eða bleik.
Einnig geta ljósin tekið á sig ýmis
form. Fjölbreytileiki litanna stafar
af ólíkum tegundum efnasam-
banda í lofthjúpi jarðarinnar.
Græni og gulgræni litur norður-
ljósanna stafar af súrefni, bleiki
liturinn stafar aftur á móti af nitri.
Grunurinn um tengingu milli
norður- og suðurljósanna og
sólarinnar kviknaði í kringum
1880. Þökk sé rannsóknum sem
framkvæmdar hafa verið síðan
á sjötta áratug síðustu aldar er nú
vitað að sólarvindur blæs raf-
eindum og róteindum að jörðinni
og áðurnefndar agnir komast inn
fyrir lofthjúp jarðar. Áður en þessi
þekking var til staðar voru uppi
hinar ýmsu þjóðsögur um tilvist
þessara heillandi ljósa.
Norðurljósin eru einnig þekkt
undir nafninu aurora borealis og
suðurljósin kallast aurora aust-
ralis. Áróra var gyðja dögunar í
rómverskri goðafræði, en aurora
borealis þýðir dögun í norðri og
aurora australis þýðir dögun í
suðri.
Rómverjar til forna tengdu
norðurljósin við upphaf nýs dags
og töldu að ljósin væru gyðjan
Áróra að birtast þeim á himninum.
Það er mjög sjaldgæft að norður-
ljósin sjáist sunnarlega í Evrópu, ef
þau birtast á þeim slóðum eru þau
oft rauð að lit. Ef svo ólíklega vildi
til að norðurljós sæjust svo sunnar-
lega á norðurhvelinu á öldum áður
ollu þau talsverðum usla og ótta
meðal almennings.
Á Ítalíu og Frakklandi taldi fólk
að ljósin væru fyrirboði um yfir-
vofandi stríð eða hungursneyð.
Sögur segja að rauð norðurljós hafi
litað himininn yfir Skotlandi og
Englandi nokkrum vikum fyrir
frönsku byltinguna og síðar var
talið að það hefði verið fyrirboði
um átökin hjá nágrönnunum í
Frakklandi.
Hér á Íslandi var talið að ef ólétt
kona horfði á norðurljósin gæti
það minnkað verki við fæðinguna.
Þó varð hún að passa sig að horfa
ekki á ljósin á meðan á fæðingunni
sjálfri stóð því þá myndi barnið
verða rangeygt.
Á Grænlandi voru norðurljósin
líka tengd barnsfæðingum en þar
var talið að þau væru sálir andvana
fæddra barna.
Á Nýja-Sjálandi og einnig víða
á norðurhveli hélt fólk lengi vel að
segulljósin stöfuðu af endurspegl-
un frá kyndlum eða brennum.
Indjánar í Wisconsin í Banda-
ríkjunum trúðu því að ljósin
sýndu staðsetningu risa sem þeir
trúðu að væru andar merkra
veiðimanna. Inúítar í Alaska héldu
aftur á móti að norðurljósin væru
andar dýranna sem þeir veiddu,
sela, laxa, dádýra og hvala.
Dularfull græn ljós á himni
Norðurljósin hafa lengi vakið áhuga fólks og erlendir ferðamenn flykkjast til Íslands yfir vetrar-
mánuðina í von um að geta barið þau augum. Áður fyrr voru uppi ólíkar tilgátur um orsök þeirra.
Á öldum áður hafði fólk ýmsar skýringar á tilvist norður- og suðurljósanna. NORDICPHOTOS/GETTY
Ilmefni geta verið varasöm fyrir viðkvæma húð og orsakað vont ofnæmi.
Samkvæmt nýrri rannsókn þjást
180 þúsund Danir af ofnæmi
sem stafar af ilmvatni eða öðrum
ilmvörum. Umhverfisstofnun
Danmerkur hefur nú hrundið af
stað herferð á samfélagsmiðlum til
að fá ungt fólk til að forðast vörur
með ilmefnum en velja í staðinn
snyrtivörur án þeirra. Sérstaklega
er bent á vörur eins og svitalyktar-
eyði sem ætti að vera án ilmefna.
Herferðinni er beint að ungling-
um á aldrinum 13-16 ára en á þeim
aldri byrja þau að nota snyrtivörur
ýmiss konar. Ilmefnaofnæmi
lýsir sér sem exem, rauðir f lekkir,
blöðrur eða jafnvel sár. Ofnæmið
brýst fram í húðinni við notkun
á ilmefnum. Ilmvötn eru þarna
engin undantekning. Það geta
liðið nokkur ár áður en ofnæmið
brýst fram í húðinni svo best er að
sleppa því alveg að nota ilmefni, að
því er segir í frétt á Jyllands Posten.
Unglingunum er bent á að nota
ilmefnalausan svitalyktareyði og
ef notað er ilmvatn að sprauta því
beint á fatnað í stað húðarinnar.
Sagt er að alls kyns ofnæmi hjá
fólki vegna efna í iðnaðarvörum
kosti Dani yfir níu milljarða króna
á ári hverju.
Danir í herferð
gegn ilmefnum
Ert þú með 4 - 8 manna hóp?Villt þú
bóka fyrir staffagleði? Saumaklúbb?
Gæsun? Bókaðu tíma inná
www.malumogskalum.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
0
8
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
2
F
-F
0
E
4
2
4
2
F
-E
F
A
8
2
4
2
F
-E
E
6
C
2
4
2
F
-E
D
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K