Fréttablaðið - 08.11.2019, Page 30

Fréttablaðið - 08.11.2019, Page 30
KREPPA NÚTÍMANS ER SKORTUR Á PÓESÍU OG PÓESÍAN ER BARÁTTA GEGN TÓMLEIKANUM OG ÞAR MEÐ EITT RÓTTÆKASTA AFLIÐ SEM NÚ ER Á SVEIMI.Til þeirra sem málið varðar er ný ljóðabók eftir Einar Má Guð-mundsson. „Á næsta ári, 2020, verð ég búinn að skrifa og gefa út í fjörutíu ár. Þegar ég horfi til baka þá eru ákveðnir tímar sem eru ljóðatímar. Í byrjun sendi ég frá mér þrjár ljóðabækur, 1980 og 1981. Tíu árum seinna komu tvær ljóðabækur með fimm ára millibili, árin 1991 og 1995, og áratug síðar, árið 2006, rann upp annað ljóðatímabil með einni ljóðabók, og svo núna góðum áratug síðar kemur þessi ljóðabók, Til þeirra sem málið varðar. Þetta er svona stutta útgáfan,“ segir Einar Már. „Ljóðin eru auðvitað sjálfstæð og heimur út af fyrir sig en tengjast oft leit að nýjum efnivið og nýrri stemmingu. Maður er alltaf að yrkja sig inn í heiminn. Og þetta hefur eitthvað með tungumálið að gera, stílinn, hinn innri heim orðanna. Ég hóf ljóðagerðina með mikilli yfir- lýsingagleði og sannfæringarkrafti. Maður byrjar á Nei-inu. Síðan koma spurningarmerkin og stemming- arnar.“ Hallur undir einfaldleikann Til þeirra sem málið varðar er ljóða- bálkur sem skiptist í sjö hluta og inniheldur 32 erindi. Um yrkisefnin segir Einar Már: „Einhvers staðar í bókinni er talað um stöðuna, til- veruna sem er f lóknari en lífið og f lækir það stöðugt. Samt er ég nú frekar hallur undir einfaldleikann í þessari bók. Ég vil nú ekki segja margt því ég vil að ljóðin komi til lesandans án leiðbeininga frá mér. Ég get þó sagt að þarna er margt á sveimi, ekki bara fuglar heldur margt annað í alheiminum, fegurð- in, ástin, efinn og óttinn. Svo er auð- vitað hægt að lesa sögu, ólíkir tímar skjóta upp kollinum, en ég þori ekki að fara nánar út í þá sálma.“ Spurður hvort hann hafi unnið að bókinni í langan tíma segir Einar Már: „Þetta verður til á löngum tíma en gerist stundum allt í einu. Setningar og brot lenda í hausnum. Svo kemur einhver rödd og segir: Nú ert þú að skrifa ljóð, nú ert þú að að yrkja, og þá er ekkert annað í stöðunni.“ Lífsspeki ljóðsins Einhver sérstök áhrif? „Aðallega brennandi spurningar. Og stemm- ingar. Staða okkar í heiminum. Leit. Það rekur alltaf eitthvað nýtt á fjörurnar en sum ljóð og sum skáld les maður aftur og aftur. Sig- fús Daðason hefur alltaf fylgt mér og Tomas Tranströmer er góður félagsskapur. Þeir búa báðir yfir einfaldleika og dýpt. Bara svo dæmi sé tekið. Þegar ég var unglingur var mikil ljóðlist í loftinu. Bókin Erlend nútímaljóð skipti miklu máli, þýðingar íslenskra skálda á ljóðum frá ýmsum löndum. Skáld- skapurinn kom til manns úr öllum áttum. Svo hélt maður bara áfram að pæla. Það er oft talað um það að á þessum tíma hafi ekkert verið að gerast og Ísland hafi verið óskaplega einangrað en það var alveg þveröf- ugt. Áhrifin komu úr öllum áttum og Ísland var kraumandi pottur eins og alltaf. „There was music in the cafés at night and revolution in the air,“ eins og Bob Dylan orðaði það. Nokkuð svipað og núna þó að allt sé meira inni í hausnum og stafrænna og skrýtnara og meira feik og mikil yfirborðsmennska.“ Er ljóðið þá pólitík? „Já, andleg pólitík. Ljóðið er hvorki tilfinning né viska heldur eitthvað þar á milli. Þess vegna getur ljóðið orðað það sem ekki verður orðað. Sumt stend- ur bara í ljóðum og hvergi annars staðar. Þetta hefur verið ljóst alveg síðan í fornöld. Ljóðið er lífsspeki út af fyrir sig eða eins og skáldið sagði: „Það er fátt að frétta í ljóðum, en engu að síður deyja margir á ömur- legan hátt vegna skorts á því sem þar er að finna.“ Kreppa nútímans er skortur á póesíu og póesían er barátta gegn tómleikanum og þar með eitt róttækasta aflið sem nú er á sveimi. Krafa hennar um innihald, raunverulegt innihald, þýðir miklar breytingar, mikinn söngleik.“ Brennandi spurningar og stemningar Einar Már Guðmundsson sendir frá sér nýja ljóðabók. Fegurðin, ástin, efinn og ótt- inn koma þar meðal annars við sögu. Segist alltaf vera að yrkja sig inn í heiminn. Sumt stendur bara í ljóðum og hvergi annars staðar, segir Einar Már. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hvað? Hvenær? Hvar? Föstudagur hvar@frettabladid.is 8. NÓVEMBER 2019 Dans Hvað? Tangó praktika og milonga Hvenær? 21.00-24.00 Hvar? Kramhúsið, Skólavörðustíg Dj er Svanhildur og gestgjafar Jóhanna&Hallur. Orðsins list Hvað? Eftir afplánun Hvenær? 8.15 Hvar? Háholt í Gerðubergi Velferðarráð Reykjavíkur býður í morgunkaffi og umræður um málefni fanga. Hvað? Argentína í efnahagskreppu Hvenær? 12.00-13.00 Hvar? Oddi, Háskóla Íslands Javier Díaz Bay lektor f lytur erindi á ensku. Hvað? Andri Snær Magnason með opinn fyrirlestur- ÞOLMÖRK 2 Hvenær? 12.15-13.00 Hvar? Listaháskóli Íslands, Þver- holti Hvað? 100 ára afmæli Zonta Hvenær? 15.30 Hvar? Borgir – HA Málþing um verkefni Zonta, innanlands og á alþjóðavettvangi. Tónlist og veitingar. Hvað? Innsæi í myndlist Hvenær? 17.00-19. 00 Hvar? Gerðarsafn, Kópavogsi Edward de Boer, rithöfundur og þjálfari fjallar um innsæi í tengslum við verk Rudolfs Steiner og Joseph Beuys. Tónlist Hvað? Nordic Sound Waves Hvenær? 15.00-18.45 Hvar? Norræna húsið Ungt norrænt tónlistarfólk tekur gesti með í afslappað ferðalag. Hvað? Bjarni Sveinbjörnsson og hljómsveit Hvenær? 21.00 Hvar? Múlinn Björtuloftum, Hörpu Bráðhressandi fönk-skotinn bræðingur. Miðaverð 2.500, en 1.500 kr. f. nema og eldri borgara. Aðrir viðburðir Hvað? Opið hús Hvenær? 13.00 -16.00 Hvar? Listaháskóli Íslands, Þver- holti 11, Laugarnesvegi 91 og Skip- holti 31 Hvað? Verslunin Brynja 100 ára Hvenær? 14.00-18.00 Hvar? Brynja, Laugavegi 29 Allir velkomnir í kaffi og kökur. Hvað? Ítölsk gamanmynd Hvenær? 19.00 Hvar? Veröld – Hús Vigdísar Ráðherrann eftir Giorgio Amato sýnd ókeypis í boði Salento kvik- myndahátíðarinnar. Leikstjórinn svarar spurningum á eftir. Mynd- in er sýnd með enskum texta. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R22 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 8 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 F -D 8 3 4 2 4 2 F -D 6 F 8 2 4 2 F -D 5 B C 2 4 2 F -D 4 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.