Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2016, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 28.09.2016, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016 15 Slátur tíð Egilsholti 1 Verslun, sími: 430 5500 Opið virka daga 8-18 Laugardaga 10-14 www.kb.is, verslun@kb.is Gervivambir, bjúgnaplast, pylsuplast Sláturgarn og sláturnælur Kjötnet og kjötkrókar Gott úrval hnífa Vakúmpökkunarvélar og vakúmpokar Kjötfarsblanda, rúllupylsu- krydd og nítrítsalt Pinnabyssur og skot í pinnabyssur SK ES SU H O R N 2 01 6 Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar Kosningar til Alþingis fara fram laugardaginn 29. október 2016. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin. Í umdæmi Sýslumannsins á Vesturlandi fer hún fram á eftirtöldum stöðum: Akranesi - skrifstofu sýslumanns, Stillholti 16-18, virka daga kl.10.00 til 15.00 Borgarnesi - skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2, virka daga kl.10.00 til 15.00 Búðardal - skrifstofu sýslumanns, Miðbraut 11, virka daga kl.12:30 til 15.30 Eyja- og Miklaholtshreppi - skrifstofu hreppsstjóra, Þverá, virka daga kl.12.00 til 13.00 Ólafsvík - skrifstofu sýslumanns, Bankastræti 1a á þriðjudögum og fimmtudögum kl.10.00 til 14.00 Stykkishólmi - skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2, virka daga kl.10.00 til 15.00 Grundarfirði – skrifstofu sýslumanns, Hrannarstíg 2, á mánudögum og miðvikudögum, kl.17.00 til 19.00 Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra. Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað. Stykkishólmi, 23. september 2016 Sýslumaðurinn á Vesturlandi SK ES SU H O R N 2 01 6 Bókin Forystufé eftir Ásgeir frá Gottorp er nú komin út í ann- arri útgáfu, með margskonar ítar- efni og bókarauka. Bókin er í sama broti og frumútgáfan en 468 síður og prentuð í fjórlit. Bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi gefur út. Á bókarkápu segir að Forystufé eftir Ásgeir frá Gottorp sé leiðar- steinn innan íslenskra búvísinda og þjóðfræði. Höfundur safnaði saman sögum af þessum merku skepnum alls staðar að af landinu. Elstu sögurnar eru yfir aldargaml- ar þegar þær eru skráðar en aðrar samtímafrásagnir höfundar. Fylgt er almennri reglu íslenskra sagna- menningar við skrásetningu og jafnan leitast við að leyfa sagnalist- inni að njóta sín samhliða því að halda ætíð því fram sem sannast reynist. Sögur Ásgeirs eru hetju- sögur af sauðfé og draga fram ótrúlega vitsmuni og náttúru- greind þessarar dularfullu skepnu. mm Bókin Forystufé er kominn út Um þessar mundir er verið að tæma geymslu sem Búvélasafnið gamla á Hvanneyri hafði fyrir gripi sem það safnaði og að því söfnuðust, þar sem eigandi geymslunnar (LbhÍ) hefur ráðstafað henni til annarra nota. „Búið er að fara yfir þennan söfnuð og taka til framtíðargeymslu þá gripi sem Landbúnaðarsafn tek- ur til skráningar og varðveislu og ræður við að varðveita. Mikið af því sem eftir er eru gripir og hlutar gripa í lélegu ástandi, en gætu samt orðið áhugasömum til einhvers gagns og gamans,“ segir í tilkynn- ingu frá safninu. Áður en annað verður gert hefur því verið ákveð- ið að gefa hugsanlegum lysthafend- um kost á að kynna sér þann söfn- uð sem eftir er. Einkum er um er að ræða leifar dráttarvéla eða hluta af þeim og má þar nefna IHC W4, Allis Chalmers, Massey Harris auk verkfæra- og verkfærahluta (véla- og hesta). Almennar reglur fyrir þennan fornvélamarkað eru þær að fyrstu kemur - fyrstur fær, en sanngjarnt gjald komi fyrir þá gripi sem látn- ir verða af hendi. Andvirðið fer upp í kostnað við frágang gripanna og varðveislu þeirra sem geymdir verða á safninu. Afhending nokk- urra gripa úr samsafni þessu er þó háð skilyrðum um varðveislu þeirra. Þá eiga kaupendur sjálfir að annast flutning viðkomandi gripa af svæðinu og þurfa að hafa lokið honum fyrir 8. október næstkom- andi nema samið verði um annað. „Verði spurn mikil eftir gripunum mun hér á síðunni verða tilkynnt- ur sérstakur tími þar sem lysthaf- endum gefst kostur á að kynna sér gripina og ástand þeirra. Nán- ari upplýsingar veitir Bjarni Guð- mundsson í síma 894 6368, klukk- an 9-12 á virkum dögum.“ Nánar á landbunadarsafn.is mm/ Ljósm. landbunadarsafn.is Búvélasafnið afsetur fornvélar og varahluti

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.