Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2016, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 28.09.2016, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016 11 569 6900 08:00–16:00www.ils.is Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta húsnæðis- öryggi fjölskyldna og einstaklinga, sem eru undir tekju– og eignamörkum við upphaf leigu, með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda. Stofnframlög eru veitt til byggingar og kaupa á almennum íbúðum til að stuðla að því að í boði verði leiguíbúðir á viðráðan- legu verði fyrir þá sem þurfa á því að halda, þ.m.t. fyrir námsmenn, ungt fólk, aldraða 0g fatlaða. Við mat á umsóknum er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi: • Nýbyggingar og fjölgun leiguíbúða • Íbúðir á svæðum þar sem þörf er fyrir leiguíbúðir fyrir leigjendur undir tekju– og eignamörkum Auk þess verður lögð áhersla á: • Hagkvæmar aðferðir við íbúðabyggingar í því skyni að lækka byggingarkostnað • Skapandi og hugvitsamlegar lausnir og góða hönnun • Íbúðir sem uppfylla þarfir íbúa á hverju svæði • Íbúðir sem uppfylla mismunandi þarfir ólíkra hópa • Að stuðla að fjölbreyttri samsetningu íbúa og félagslegri blöndun Almennar íbúðir Opið fyrir umsóknir um stofnframlög Eftirtaldir aðilar geta sótt um stofnframlög: a. Húsnæðissjálfseignarstofnanir b. Sveitarfélög og lögaðilar í eigu þeirra c. Lögaðilar sem störfuðu við gildistöku laga um almennar íbúðir og uppfylltu skilyrði til að fá lán skv. 37. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998. Fjárhæð til úthlutunar í stofnframlög ríkisins á árinu 2016 er að hámarki einn og hálfur milljarður kr. Stofnframlög ríkisins nema 18% af stofnvirði almennrar íbúðar. Nauðsynlegt er að sækja jafnframt um stofnframlag hjá því sveitarfélagi þar sem viðkomandi íbúð er staðsett, og er samþykki sveitarfélagsins eitt af skilyrðum fyrir veitingu stofnframlags ríksins. Umsóknum skal skila á rafrænu formi á heimsíðu sjóðsins. Umsóknarferlið er tvískipt. Fyrri umsóknarfrestur er til og með 15. október 2016. Síðari fresturinn er til og með 30. nóvember 2016. Er þá til úthlutunar það sem óráðstafað er af fjárheimild ársins. Í báðum tilvikum er 30 daga frestur til viðbótar til að skila inn staðfestingu á samþykki sveitarfélags. Umsókn sem berst eftir að umsóknarfrestur rennur út verður ekki tekin til umfjöllunar. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs, www.ils.is. Fyrri umsóknarfrestur: 15. október 2016 Síðari umsóknarfrestur: 30. nóvember 2016 Auglýst er eftir umsóknum um stofnframlög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum skv. lögum nr. 52/2016 og reglugerð nr. 555/2016. Gestir streymdu að Landnáms- setri Íslands í Borgarnesi rétt fyrir átta síðastliðið föstudagskvöld til að njóta nýrrar sýningar á Söguloftinu. Þar sagði Guðmundur Andri Thors- son frá langafa sínum og langömmu, Thor Jensen og Margréti Þorbjörgu Kristjánsdóttur. Þau hjón voru bú- sett í Borgarnesi í nærfellt áratug frá árinu 1886 og starfaði Thor sem faktor þann tíma. Í pakkhúsinu sem hann lét byggja árið 1889 er nú ein- mitt Söguloftið til húsa. Ennfrem- ur bjó fjölskyldan í Kaupangi sem er næsta hús við Landnámssetur í dag og er jafnframt elsta húsið í Borgar- nesi (byggt 1778). Þar voru fjögur af börnum hjónanna fædd. Sterk stað- artenging sýningarinnar er því fyr- ir hendi. Saga Thors og Margrétar var hluti af sögu landsins á miklum breytinga- tímum enda Thor mikill athafna- maður og afkomendur hans ekki síður. Það var því víða farið í frásögn Guðmundar Andra og áheyrendur fylgdust með af athygli og klöppuðu honum lof í lófa að verkinu loknu. Sýningin er að mestu án leikmuna, en þó átti gamalt ófullgert málverk talsverðan þátt í að gefa nærveru að- alpersónunnar til kynna. Fram kom í máli Guðmundar Andra að sýning- in væri komin til vegna beiðni Kjart- ans Ragnarssonar um að hann setti á svið verk sem hann ætti í raun eftir að skrifa í bókarformi. Sjálfur kvaðst hann oft hafa verið spurður að því hvenær hann myndi rita sögu Thors Jensen og Thorsaranna, en það hefði hann ekki í hyggju, alla vega ekki að sinni. Hins vegar væri hægt að hugsa sér að nálgun hans í frá- sögninni í Landnámssetri gæti falið í sér mögulegar leiðir að slíku verki – en tíminn yrði að leiða í ljós hvort það yrði einhvern tímann skrifað. Fjölmörg verk hafa verið flutt á Sögulofti Landnámsseturs síðan fyritækið hóf starfsemi árið 2006 og öll hafa þau einkennst af áherslu á frásagnarlist og sagnamenningu. Upplýsingar um næstu sýningar Thors sögu Jensen má finna á www. landnam.is. gj Thors saga Jensen frumsýnd á Söguloftinu Guðmundur Andri Thorsson á pakk- húsloftinu sem langafi hans byggði. Gamalt ófullgert málverk af Thor Jensen hékk uppi og færði gesti nær umfjöllunarefninu. Það var að beiðni Kjartans Ragnarssonar að Guðmundur Andri segir nú sögu langafa síns. FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Stykkishólmur 2016 Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu Dekk & Smur, Nesvegi 5 Fimmtudaginn 6. október Föstudaginn 7. október Tímapantanir í síma 438 – 1385 Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 S K E S S U H O R N 2 01 6 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.