Skessuhorn - 28.09.2016, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 20162
Við minnum á Sauðamessu sem haldin
verður í Borgarnesi næstkomandi laug-
ardag. Þar verður fjölbreytt hátíðardag-
skrá í Skallagrímsgarði frá kl. 13 - 17 og
hið árlega Sauðamessuball verður hald-
ið í Hjálmakletti um kvöldið. Sjá nánar
auglýsingu hér í Skessuhorni.
Norðanátt verður á fimmtudag, víða 5 til
10 m/s og skýjað með köflum eða létt-
skýjað sunnan- og vestan til en norð-
vestlæg átt 8-13 og slydda eða rigning
með köflum norðan- og norðaustan-
lands. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast suðaust-
an til. Á föstudag spáir norðlægri átt 3
- 8, víða skýjað með köflum eða bjart-
viðri en stöku skúrir eða slydduél með
norðurströndinni og dálítil rigning suð-
austan til síðdegis. Hiti breytist lítið. Á
laugardag er útlit fyrir austlæga átt og
skýjað norðaustanlands en annars rign-
ing með köflum. Hiti 2 til 7 stig, mild-
ast sunnan til. Vaxandi suðaustan átt er
spáð á sunnudag og fer að rigna sunn-
an til en lengst af bjartviðri um landið
norðanvert. Hiti 3 til 9 stig. Á mánudag
eru líkur á ákveðinni suðaustan átt með
rigningu en þurrt að mestu norðan
jökla. Hiti 4 til 10 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hversu mikið gos drekkur þú
á viku?“ Flestir lesenda Skessuhorns
drekka aldrei gos, eða 44%. „Svona hálf-
an til einn lítra“ svöruðu 30% og 15%
svarenda sögðust drekka einn til fimm
lítra af gosi á viku. Fimm til tíu lítra
drekka 8% lesenda en einungis 3%
drekka meira en tíu lítra af gosi á viku.
Í næstu viku er spurt
„Hvert er eftirlætis millimálið þitt?“
Jóhann Oddsson leitarmaður og bóndi
hefur farið 156 sinnum í leitir á Holta-
vörðuheiði frá árinu 1960. Jóhann er
Vestlendingur vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Slóu út til að ná
sambandi við
tónleikahaldara
ÓLAFSVÍK: Lögreglan á Vest-
urlandi var kölluð til vegna tón-
listarhávaða frá íbúð í Ólafsvík
að næturlagi um liðna helgi. Ekki
reyndist unnt að ná tali af heimil-
isfólkinu og var því brugðið á það
ráð að slá rafmagninu út af húsinu
tímabundið og dugði það til að slá
græjurnar út af laginu. Nágrannar
voru að vonum fegnir með að frá
svefnfrið það sem eftir lifði helg-
ar en þeim hafði lítið orðið svefn-
samt í nokkra sólarhringa vegna
hávaðans. -mm
LAGER-
SALA
ATH: Gjafakort og inneignir
gilda ekki á lagersölu.
70% AFSLÁTTUR
OG MEIRA
AF DÖMU- OG
HERRAFATNAÐI!
1Kalmansvöllum
Hefst fimmtudaginn
29. sept. kl. 13 að
Kalmansvöllum 1
Opnunartími:
Virka daga 13 - 18
Laugardaga 11 - 15
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála kvað síðastliðinn
föstudag upp þann úrskurð að
breytt deiliskipulag fyrir nýbygg-
ingar við Borgarbraut 57-59 í
Borgarnesi væri ekki í samræmi við
aðalskipulag og felldi skipulagið úr
gildi. Framkvæmdir á bygging-
arstað voru samdægurs stöðvað-
ar meðan menn áttuðu sig á áhrif-
um úrskurðarins. Nú tekur við
hjá Borgarbyggð vinna við breyt-
ingu á aðal- og deiliskipulagi sem
vafalítið mun taka nokkra mánuði.
„Ákvörðun sveitarstjórnar Borgar-
byggðar frá 14. apríl 2016 um að
samþykkja breytt deiliskipulag fyr-
ir lóðirnar 55-59 er felld úr gildi,“
segir orðrétt í úrskurði nefndar-
innar. Úrskurðarnefndin tók hins
vegar ekki afstöðu til ákvörðunar
byggingarfulltrúa Borgarbyggðar
frá 26. apríl og 8. júlí sl. að veita
leyfi fyrir jarðvegsvinnu og sökkul-
vinnu á lóðunum, en framkvæmd-
ir við byggingar á lóðinni hóf-
ust í sumar og byrjað var að reisa
þar húseiningar fimmtudaginn
15. september, eins og fram hef-
ur komið í Skessuhorni. Bygging-
araðilar íhuga nú stöðuna og hvort
gamla skipulagið, sem nú öðl-
ast aftur gildi, útiloki nokkuð að
byggingaframkvæmdir geti haldið
áfram á Borgarbraut 59.
Það voru tveir aðilar sem lögðu
inn kæru til úrskurðarnefndar-
innar vegna ákvörðunar sveitar-
stjórnar um að heimila byggingu
á lóðunum Borgarbraut 57-59 og
kærðu breytt deiliskipulag. Annars
vegar var það Borgarland, fyrirtæki
í eigu Kaupfélags Borgfirðinga og
eigandi lóðanna við Borgarbraut
56-60, og hins vegar Arinbjörn
Adlawan Hauksson Helgugötu 10,
en foreldrar hans eiga fasteignina
Kveldúlfsgötu 2a, næstu lóð norð-
an við byggingareitinn við Borg-
arbraut 57-59. Úrskurðarnefnd-
in vísaði frá kæru Arinbjarnar, en
ógilti eins og fyrr segir ákvörðun
sveitarstjórnar um breytt deili-
skipulag.
Skipulagsvinna unnin
eins hratt og auðið er
Gunnlaugur A. Júlíusson sveitar-
stjóri Borgarbyggðar harmar þessa
niðurstöðu Úrskurðarnefndar og
segir forsvarsmenn sveitarfélags-
ins ekki hafa búist við þessari nið-
urstöðu. „Breytingin á deiliskipu-
lagi svæðisins hefur verið staðfest
tvisvar en gerðar voru breytingar
á því með hliðsjón af athugasemd-
um sem bárust frá Skipulagsstofn-
unar. Því kom þessi niðurstaða
okkur á óvart,“ sagði Gunnlaug-
ur í samtali við Skessuhorn. Um
framvindu málsins í ljósi stöðunn-
ar sagði sveitarstjórinn að fram-
kvæmdum á byggingareitnum hafi
verið hætt á föstudaginn. „Nú tek-
ur gamla deiliskipulagið aftur gildi
og breytingin sem sveitarstjórn
var búin að samþykkja gengur til
baka.“ Gunnlaugur segir að heildar
byggingarmagn á lóðunum sé und-
ir leyfilegum mörkum, en bygg-
ingamagn er yfir mörkum á lóðum
57 og 59, en talsvert undir mörk-
um á lóð 55. „Við hjá sveitarfé-
laginu höfum nú þegar hist og far-
ið yfir stöðuna til að glöggva okkur
á framhaldinu, en okkar von er að
verkið tefjist sem minnst. „Nú tek-
ur við skipulagsleg yfirferð máls-
ins. Fara verður yfir hver er ástæð-
an fyrir að deiliskipulagið er fellt
úr gildi og hvernig bregðast skuli
við því. Fyrst og fremst er þetta
skipulagsvinna, yfirferð á aðal- og
deiliskipulagi sem augljóslega þarf
að gera breytingar á. Það allt mun
taka ákveðinn tíma í auglýsinga-
ferli en við reynum að flýta ferl-
ina eins og framast er unnt,“ seg-
ir Gunnlaugur. Aðspurður segist
hann ekki geta svarað því hvenær
framkvæmdir geti hugsanlega haf-
ist að nýju.
Óljóst um tafir við
hótelhluta
Samkvæmt heimildum Skessuhorns
fara lóðarhafar og byggingarað-
ilar við Borgarbraut 57-59 nú yfir
áhrif úrskurarins á framgang verks-
ins. Þar sem nú fellur úr gildi sú
breyting sem gerð var á deiliskipu-
lagi svæðisins fyrr á þessu ári, tek-
ur að nýju gildi fyrra deiliskipulag.
Það gerir ráð fyrir meira bygging-
armagni á lóðinni Borgarbraut 59
og gæti því niðurstaðan orðið sú að
framkvæmdir á henni haldi áfram
strax í þessari viku. Á þeirri lóð er
þjónusturými og hótel. Lóðarhaf-
ar og byggingaraðilar ætluðu ásamt
lögfræðingum sínum að funda um
málið síðdegis í gær, þriðjudag,
og lá niðurstaðan ekki fyrir þeg-
ar Skessuhorn var sent í prentun.
Ekki er því fullreynt hvort tafir
verði á byggingarframkvæmdum á
Borgarbraut 59. mm
Framvæmdir á lóðunum voru stöðvaðar á föstudaginn eftir að úrskurður ÚUA lá fyrir. Myndin er frá 15. september sl.
Ljós. kgk.
Úrskurðarnefnd fellir úr gildi breytt deiliskipulag