Fréttablaðið - 15.11.2019, Qupperneq 4
– við Laugalæk
Ekkert hveiti
Ekkert soyja
Enginn sykur
Ekkert MSG
Íslenskt kjöt
Íslensk
framleiðsla
Sveita-
sæla
á góðri
stund.
Eins og ég hef stundum nefnt, bjó ég og starfaði lengi erlend-is. Tók þátt í og stundaði
alþjóðleg viðskipti um langt skeið;
reyndar í hálfa öld. Ég er einn þeirra
mörgu, sem fylgdust með Kveik á
þriðjudagskvöld, þar sem fjallað
var um meinta spillingu og brot
Samherja í Namibíu. Auðvitað var
það óskemmtileg mynd, sem þarna
var dregin upp, svo að ekki sé meira
sagt, en ýmislegt kom mér þar þó
kunnuglega fyrir sjónir.
Uppljóstrun eða hefnd?
Ole Anton
Bieltvedt
alþjóðlegur
kaupsýslumaður
Af vefnum
Lestu greinina í heild á
frettabladid.is/skodun
SJÁVARÚTVEGUR Laxar Fiskeldi
fá aðstöðu við Hjálmeyri fyrir
sex til átta eldiskvíar. Þetta var
ákveðið á fundi bæjarráðs Fjarða-
byg gðar í vikunni. Sk ily rðin
eru að það muni ekki hafa nein
áhrif á efnistöku við Eyri, hvorki
hindra siglingu dæluskipsins til
og frá Eyri, né siglingu annarra
skipa eftir siglingaleið fjarðarins.
Öryggissvæði hafnarinnar við
Mjóeyri skal haft í fyrirrúmi þegar
eldiskvíar verða settar út og farið
verður yfir öryggismál hafnarsvæð-
isins á Mjóeyri með starfsmönnum
Laxa áður en framkvæmdir við
útsetningu kvía hefjast.
Fara verður eftir þessum skilyrðum
í öllum tilvikum, segir í fundargerð
bæjarráðs.
Jens Garðar Helgason, fram-
kvæmdastjóri Laxa Fiskeldis ehf.,
kom á bæjarráðsfundinn þar sem
málefni fyrirtækisins og hugmynd-
ir um hafnaraðstöðu við norðan-
verðan Reyðarfjörð voru reifaðar.
Verkefnastjóra hafna var falið að
skoða frekari forsendur og leggja
fyrir hafnarstjórn að nýju. – bb, bdj
Laxar fá nýja
eldisaðstöðu
VELFERÐARMÁL Málefni NPA-lög-
gjafarinnar hafa verið rædd víða
í bæjarstjórnum landsins undan-
farna daga. Nýlega greindi Frétta-
blaðið frá því að pottur væri
brotinn varðandi innleiðingu lög-
gjafarinnar og samræming á milli
sveitarfélaga engin. Skapar þetta
ójöfn búsetuskilyrði fyrir fatlaða
en jafnframt hefur verið lítið sam-
ráð við NPA-miðstöðina eða önnur
hagsmunasamtök fatlaðra.
Niðurstaða velferðarráðs Kópa-
vogs var afgreidd af bæjarráði í
gær og vísað til samþykktar bæjar-
stjórnar. Minnihlutafulltrúar Sam-
fylkingar, Pírata, Viðreisnar/BF og
Miðflokks gerðu athugasemdir við
næturtaxta aðstoðarfólks og að
hann uppfylli ekki ákvæði kjara-
samninga. Fulltrúar meirihluta Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
sögðu að Kópavogur muni uppfylla
kjarasamninga og Kópavogur greiði
nú þegar næsthæstu NPA-greiðslur
allra sveitarfélaga. „Hins ber að gæta
að fjármagn það sem ríkið leggur til
málaflokksins er föst upphæð og
hækkun á tímagjaldi þýðir einfald-
lega færri tímar og færri samningar,“
segir í bókun meirihlutans.
Í Hafnarfirði fór Guðlaug Krist-
jánsdóttir, oddviti Bæjarlistans,
fram á að samráð yrði haft við hags-
munasamtök fatlaðra og könnun
yrði gerð um hvort bærinn uppfyllti
upplýsingaskyldu sína. Var sam-
þykkt í fjölskylduráði að fulltrúi
fatlaðra yrði í starfshópi.
Þá voru nýjar reglur um NPA
kynntar í velferðarráði Reykjanes-
bæjar á miðvikudag og hefur þeim
verið vísað til samþykktar í bæjar-
ráði. – khg
NPA-mál komin á rekspöl í bæjarstjórnum
Guðlaug
Kristjánsdóttir,
oddviti
Bæjarlistans í
Hafnarfirði.
Hins ber að gæta að
fjármagn það sem
ríkið leggur til málaflokks-
ins er föst upphæð og
hækkun á tímagjaldi þýðir
einfaldlega færri tímar og
færri samningar.
Bókun meirihlutans í Kópavogi
V I N N U M A R K A Ð U R Sa mk væmt
nýbirtum tölum Hagstofu Íslands
sést að í fyrsta sinn frá árinu 2011
fer launþegum í landinu fækkandi.
En á þeim tíma var þjóðfélagið enn
að jafna sig eftir áfall bankahruns-
ins og mikið atvinnuleysi. Samfara
þessu hefur atvinnuleysi aukist
umtalsvert, úr rúmlega 4.000 í rúm-
lega 7.000 á einu ári.
Sigrún Halldórsdóttir, sérfræð-
ingur á sviði fyrirtækjatölfræði
hjá Hagstofunni, telur líklegt að
atvinnulausum haldi áfram að
fjölga miðað við þá niðursveif lu
sem orðið hefur. Hún setur jafn-
framt þann fyrirvara að sumar
tölurnar séu ekki 100 prósent
nákvæmar en að heildarmyndin
gefi góða mynd af stöðunni.
Við nánari greiningu á tölunum
sést að fækkunin er áberandi mest í
ferðaþjónustunni, 2.500 manns eða
8,2 prósent á einu ári. Sigrún segir
f lugið eiga þar stóran þátt. Fækkun
er í f lestum öðrum einkareknum
greinum um eitt til tæplega fjögur
prósent.
Það sem spyrnir á móti er umtals-
verð fjölgun starfsmanna sem að
stærstum hluta starfa hjá hinu
opinbera. Þeim sem starfa í fræðslu-
greinum og opinberri stjórnsýslu
hefur fjölgað um nærri 3.000 á
einu ári, eða um tæplega sjö pró-
sent. Þetta er umtalsverð breyting
þar sem á árunum 2015 til 2017 var
fækkun í þeim geira. Þá hefur fólki
í heilbrigðisþjónustu og umönn-
unarstörfum fjölgað um 800 eða
rúmlega fjögur prósent. Að sögn
Sigrúnar gætu tölurnar þó verið
örlítið ofreiknaðar.
Aukið atvinnuleysi leggst mis-
hart á landshlutana. Harðast bítur
það á Suðurnesjum en á aðeins einu
ári hefur atvinnulausum þar fjölgað
um meira en helming, úr 511 í 1.146.
Næstþyngst leggst það á höfuð-
borgarsvæðið en minna á lands-
byggðina. Í öllum landshlutum er
þó fjölgun í hópi atvinnulausra. Þá
leggst atvinnuleysi, nær línulega,
þyngst á yngra fólk.
Atvinnuleysi er hins vegar ekki
eina ástæðan fyrir fækkun laun-
þega í landinu. Öryrkjum fjölgar,
til dæmis vegna slits og geðrænna
kvilla. Samkvæmt nýrri skýrslu
félagsfræðingsins Kolbeins Stefáns-
sonar hefur hægt á fjölgun öryrkja
á undanförnum árum en hún hefur
þó verið viðvarandi undanfarna
áratugi.
Önnur breyta er öldrun þjóðar-
innar. Rétt eins og í öðrum vest-
rænum ríkjum hefur hlutfall líf-
eyrisþega farið hækkandi. Í dag
eru rúmlega 12 prósent lands-
manna ellilífeyrisþegar en fyrir
tíu árum voru þeir tæplega ellefu
prósent.
Þá eru ótaldir þeir sem eru í
skóla, fæðingarorlofi eða hafa f lutt
úr landi. Sigrún segir að þrátt fyrir
að starfandi Íslendingum fækki
þá fjölgi starfandi útlendingum í
staðinn. Það vegur hins vegar ekki
nægilega upp á móti heildarfækkun
launþega í landinu.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Launþegum í landinu fækkar
nú í fyrsta sinn í nærri áratug
Samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar fækkar launþegum í landinu og miðað við sveiflu undanfarinna
ára mun fækkunin halda áfram. Fækkunin kemur fyrst og fremst fram í einkageiranum á meðan opin-
berum starfsmönnum fjölgar. Atvinnulausum hefur fjölgað, sömuleiðis öryrkjum og ellilífeyrisþegum.
Atvinnuleysi leggst þyngst á yngra fólk. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Á einu ári hefur atvinnu-
lausum á Suðurnesjum
fjölgað úr 511 í 1.146.
15.000
10.000
5.000
-5.000
-10.000
-15.000
-20.000
2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
0
✿ Breyting á fjölda launþega milli ára
Allt hagkefið
n Breyting frá sama mánuði árið áður
n Ársbreyting á hlaupandi meðaltali
ALÞINGI Annarri umræðu um fjár-
lagafrumvarp næsta árs lauk á
Alþingi í gær. Mun frumvarpið aftur
ganga til fjárlaganefndar fyrir þriðju
umræðu sem samkvæmt starfs-
áætlun þingsins verður 26. nóvem-
ber næstkomandi.
Ágúst Ólafur Ágústsson, fulltrúi
Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd,
lýsti við lok atkvæðagreiðslu um
breytingartillögur yfir vonbrigðum
með stjórnarmeirihlutann.
„Enn eitt árið hafa allar breyting-
artillögur stjórnarandstöðuflokk-
anna verið felldar. Ég furða mig á
þessum vinnubrögðum,“ sagði Ágúst
Ólafur.
Það væru ótrúlega sérkennileg
vinnubrögð þar sem boðað hafi verið
í stjórnarsáttmála að önnur vinnu-
brögð yrðu tekin upp á Alþingi. „Svo
sjáum við bara gamaldags skotgrafa-
hernaðarpólitíkina endurspeglast í
afgreiðslu fjárlaga hér.“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra lagði áherslu á að með fjár-
lagafrumvarpinu væri verið að láta
ríkisfjármálin vinna með peninga-
stefnu og stefnu í vinnumarkaðs-
málum.
„Á sama tíma og við erum að
tryggja efnahagslegan stöðugleika
erum við að tryggja félagslegan stöð-
ugleika. Markmið sem við höfum
oft talað um en ekki oft náð,“ sagði
Katrín. – sar
Allar tillögur minnihlutans felldar
Öryggissvæði hafnar-
innar við Mjóeyri skal haft í
fyrirrúmi þegar eldiskvíar
verða settar út.
Fjárlagafrumvarpið gengur nú til fjárlaganefndar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
5
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
E
-0
8
F
8
2
4
3
E
-0
7
B
C
2
4
3
E
-0
6
8
0
2
4
3
E
-0
5
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K