Fréttablaðið - 15.11.2019, Side 8
BRETLAND „Það sem er í gangi núna
er fyrir neðan allar hellur,“ sagði
Farage í hnefaleikaklúbbi í Lund-
únum. „Á meðan ég tala núna er
í gangi herferð til að fá menn og
konur, frjálst fólk, til þess að hætta
við að bjóða sig fram. Mætti halda
að við værum í Venesúela.“
Þrátt fyrir þessar ásakanir nefndi
Farage engin ákveðin dæmi máli
sínu til stuðnings. Einungis að fram-
bjóðendur hans fengju stanslaus
símtöl og tölvupóst þar sem óhróðri
væri hellt yfir þá.
Hratt hefur fjarað undan Brexit-
flokknum á undanförnum vikum.
Mælist hann einungis með fjögra
til sjö prósenta fylgi en var með allt
að 17 prósenta fylgi í könnunum í
haust. Ekki er nema hálft ár síðan
flokkurinn fékk flest atkvæði allra
breskra flokka í kosningum til Evr-
ópuþingsins, 30,5 prósent, en þá
var hann nýstofnaður. Bjuggust
margir við að Brexit f lokkurinn
myndi rjúka upp í könnunum þegar
ljóst væri að Bretland myndi ekki
yfirgefa Evrópusambandið þann
31. október eins og forsætisráðherr-
ann Boris Johnson hafði lofað.
Á mánudag tilkynnti Farage að
Brexit-flokkurinn myndi ekki bjóða
fram í þeim kjördæmum þar sem
Íhaldsf lokkurinn væri sterkastur
heldur beina afli sínu að kjördæm-
um þar sem Verkamannaflokkur-
inn væri sterkur. Farage hefur boðið
Johnson kosningabandalag en því
var hafnað. Ákvörðunin kom flatt
upp á marga, og var talin niðurlægj-
andi, enda hafði Farage tilkynnt
að f lokkurinn myndi bjóða fram í
öllum kjördæmum og að hann teldi
útgöngusamning Johnsons ómögu-
legan. Farage sjálfur lét hafa það
eftir sér að hann myndi hugsanlega
kjósa Íhaldsflokkinn sjálfur, frekar
en eigin flokk.
Spennan magnast nú með hverj-
um deginum og stóru f lokkarnir
tveir hafa báðir verið að sækja í
sig veðrið fyrir þingkosningarnar
þann 12. desember. Íhaldsflokkur-
inn mælist nú í kringum 40 pró-
sentin og Verkamannaflokkurinn í
kringum 30. Báðir hafa þeir hagnast
á dvínandi fylgi Brexit-flokksins, en
Frjálslyndir demókratar hafa einn-
ig gefið eftir. Þeir mælast nú með í
kringum 15 prósent en höfðu vel
yfir 20 í haust. Ein helsta ástæðan
fyrir því að bæði Brexit-f lokkur-
inn og Frjálslyndir demókratar
hafa gefið eftir er sú staðreynd að
kosningarnar munu ekki snúast
algerlega um útgöngumálin, heldur
efnahagsmál, niðurskurð, umhverf-
ismál, heilbrigðiskerfið, löggæslu og
fleiri mál.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Segir að Íhaldsmenn ofsæki
frambjóðendur Brexit-flokks
Farage var reiður í hnefaleikahringnum. Flokkur hans mælist með hluta þess fylgis sem áður var.NORDICPHOTOS/EPA
Nigel Farage, leið-
togi Brexit-flokksins,
segir Íhaldsmenn beita
óheiðarlegum að-
ferðum til að fá fram-
bjóðendur flokksins til
að stíga til hliðar. Þing-
kosningar í landinu
fara fram 12. desember.
Á meðan ég tala
núna er í gangi
herferð til að fá menn og
konur, frjálst fólk, til að
hætta við að bjóða sig fram.
Mætti halda að við værum í
Venesúela.
Nigel Farage, leiðtogi
Brexit-flokksins
Bólusetningar
gegn mislingum
orðnar skylda
ÞÝSKALAND Þýsk stjórnvöld hafa
gert bólusetningar gegn mislingum
að skyldu. Foreldrar sem ekki láta
bólusetja börn sín verða sektaðir.
Löggjöf um mislingavarnir var
samþykkt á ríkisþingi Þýskalands í
gær með stuðningi beggja stjórnar-
flokkanna, Kristilegra demókrata
og Sósíaldemókrata. Flokkarnir
höfðu sammælst um að koma lög-
gjöfinni í gegn síðasta vor. Frum-
varpið var einnig stutt af frjálslynda
miðjuf lokknum Frjálsum demó-
krötum.
Eini f lokkurinn sem kaus alfarið
gegn frumvarpinu var hinn þjóð-
ernispopúlíski Valkostur fyrir
Þýskaland en minni f lokkar á
vinstri vængnum voru klofnir í
málinu.
„Þetta er barnaverndarlöggjöf
í sinni tærustu mynd,“ sagði heil-
brigðisráðherrann Jens Spahn
þegar hann talaði fyrir frumvarp-
inu í þinginu.
Löggjöfin tekur gildi í mars á
næsta ári og þá þurfa foreldrar í
Þýskalandi að sýna fram á að börn
þeirra séu bólusett fyrir mislingum
áður en þau hefja leikskólavist. Ef
svo er ekki fá börnin ekki vistina
og foreldrar í kjölfarið sektaðir um
2.500 evrur, eða um 350 þúsund
krónur. Starfsfólki grunnskóla, dag-
gæslu, heilsugæslustöðva og f leiri
stofnana verður einnig gert skylt að
hafa eftirlit með bólusetningunum.
Mislingatilfellum hefur fjölgað
mikið í Evrópu á undanförnum
árum í takti við fækkun bólusetn-
inga. Á þessu ári hafa þegar komið
upp 500 tilfelli í Þýskalandi. – khg
Þetta er barna-
verndarlöggjöf í
sinni tærustu mynd.
Jens Spahn heilbrigðisráðherra
Heilbrigðisráðherrann bólusettur
gegn inflúensu. NORDICPOTOS/GETTY
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Sjá nánar á
kronan.is/
jolahlaðborð
4-7%
Er fylgi flokks Farage sam-
kvæmt nýjum könnunum.
1 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
5
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
E
-1
7
C
8
2
4
3
E
-1
6
8
C
2
4
3
E
-1
5
5
0
2
4
3
E
-1
4
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K