Fréttablaðið - 15.11.2019, Page 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Ljósafossinn er hugmynd eins manns, Þorsteins Jakobssonar, sem stóð á fjalli ári áður en
fyrsti Ljósafossinn var genginn og
fékk hugmynd um árlega fjallgöngu
þar sem myrkrið væri lýst upp fyrir
gott málefni. Gangan er nú orðin
árviss viðburður og árlega taka
hundruð manna þátt.
Þær Þórunn Egilsdóttir, þing-
maður og þingflokksformaður
Framsóknarflokksins, og Guðný
Ragnarsdóttir hjúkrunarfræðingur
eru meðal þeirra sem ætla að taka
þátt í göngunni á morgun en báðar
hafa þær þurft að nýta þá þjónustu
sem Ljósið býður upp á. Þórunn er
að taka þátt í fyrsta sinn en Guðný í
þriðja sinn.
„Ég kom fyrst inn í Ljósið fyrir
nokkrum árum, þá með Willum
Þór félaga mínum sem kynnti
starfið fyrir mér. Hann hafði lengi
verið mikill talsmaður Ljóssins og
stutt það í sínum störfum. En nú
er ég að kynnast því á eigin skinni
því ég þarf á þjónustu Ljóssins að
halda. Ég er þar í endurhæfingu og
nýt þess mjög að fá allan þennan
stuðning og leiðsögn og hafa
aðgang að þeirri þekkingu og
kunnáttu sem fólkið í Ljósinu býr
yfir. Ljósagangan er hluti af endur-
hæfingunni hjá mér,“ segir Þórunn.
Fer eins langt og hún kemst
Þórunn segist vera vön að ganga
fjöll enda ólst hún upp við það og
hefur farið í göngur eftir að hún
flutti upp í sveit. „Ég komst ekki í
göngur í haust vegna þess að ég var
í minni meðferð og ég er ekkert viss
um að ég komist upp að Steini, en
ég hef ekki tölu á því hversu oft ég
hef labbað þangað. Ég ætla bara að
fara eins langt og ég treysti mér til
núna en markmiðið inn í fram-
tíðina er að komast aftur alla leið.“
Þórunn segir að þjónustan sem
Ljósið býður upp á sé afskaplega
mikilvæg. „Það hefur sannað sig
og verið sýnt fram á að öll endur-
hæfing og allt það sem er í boði
í Ljósinu er mikilvægt fyrir fólk
sem er að byggja sig upp eftir hörð
veikindi. Öll líkamleg hreyfing og
útivera er líka mikilvæg.“
Þórunn reiknar með að eitthvað
af hennar stuðningsfólki komi
með henni í gönguna. „Ég veit að
formaður flokksins ætlar að fara
með mér, bæði til að sýna mér og
Ljósinu og starfinu þar stuðning.
Ég býst við að einhverjir úr mínum
vinahópi og fjölskyldu komi líka.
Það er dásamlegt að taka þátt í
þessum viðburði núna. Hann er
svo lýsandi, þetta er svo táknrænt
núna í skammdeginu að lýsa upp
skammdegið og minna á að það er
ljós í myrkrinu.“
Eitt skref í einu
Guðný greindist með krabba-
mein árið 2016 og tók fyrst þátt í
Ljósafossinum árið 2017. Strax og
hún greindist fór hún í ráðgjafar-
þjónustuna og fékk að vita hvaða
þjónusta væri í boði fyrir hana. „Ég
fór þá líka beint inn í Ljósið, eigin-
lega bara sama dag og ég greindist
en ég bjó þá úti á landi og gat ekki
nýtt mér þjónustuna fyrr en ég
ákvað að flytja í bæinn.“
Guðný nýtir sér enn sjúkra-
þjálfun og líkamsrækt hjá Ljósinu
en fyrstu tvö árin eftir að hún
greindist nýtti hún sér líka iðju-
þjálfun, myndlist, leir og ýmsa aðra
þjónustu. „Þetta er mjög sérhæfð
þjónusta fyrir alla hópa, strák-
arnir mínir voru 5 og 9 ára þegar ég
greindist og þeir fóru á námskeið
ætlað þeirra aldurshópi. Ég og fyrr-
verandi maðurinn minn fórum líka
á paranámskeið. Það er mjög fag-
mannlega staðið að allri starfsemi
í Ljósinu og tekið mið af þörfum
þeirra sem sækja þjónustuna,“ segir
Guðný.
Eftir að Guðný hafði mætt í Ljósið
reglulega í ár tók hún þá ákvörðun
að ganga Laugaveginn. „Ég ákvað
að fara ein á hraða snigilsins því
ég treysti mér ekki með hópi út
af minni skerðingu. Ég ætlaði að
stoppa í öllum skálum á leiðinni en
endaði á að stoppa bara eina nótt í
Hvammsgili. Þegar ég var komin í
Þórsmörk daginn eftir áttaði ég mig
á að ég hafði bara tekið eitt skref í
einu en það skilaði mér alla leið.“
250 kílómetrar eftir
Eftir Laugavegsgönguna setti
Guðný sig í samband við göngu-
hóp. Þar var fólk sem hafði þverað
landið og lét hana fá kort af göngu-
leiðinni. „Ég prófaði í nóvember
2018 að ganga fyrsta legginn. Ég
gekk frá Reykjanestánni að Heið-
mörk á einni helgi frá föstudegi til
sunnudags þetta voru 66 kílómetr-
ar. Þá var ég farin að teikna línu yfir
landakort. Þetta var þá ekki lengur
bara eitt skref í einu heldur var ég
farin að sjá þetta raunverulega á
stóru landakorti sem ég hengdi upp
á vegg heima, þá hljóp kapp í mína,“
segir Guðný.
Eins og áður fór hún á sínum
hraða og sínum forsendum.
„Stefnan var að klára þverunina
núna í nóvember en ég þarf frekar
sérhæfða aðstoð til að komast yfir
Þjórsárverin. Besti tíminn til að fara
yfir var í júlí en þá var ég að klára
legg yfir hálendið. Ég mun vonandi
klára þetta á næsta ári. Ég geri ráð
fyrir að þverunin sé um 700 kíló-
metrar og ég á 250 kílómetra eftir.“
Guðný segir að rannsóknir sýni
að fjallamennska og útivist sé það
besta sem hægt er að gera fyrir
hjartavöðvann. „Hjartavöðvinn
hjá mér laskaðist töluvert í þessari
háskammtameðferð sem ég fór í.
Fjallamennskan hefur verið besta
mögulega aðferð fyrir mig til að fá
hjartavöðvann til að verða betri.“
Guðný segist halda að hún sé
búin að ná líkamlegri heilsu á ný.
Hún segir það að stórum hluta
Ljósinu að þakka. „Starfið sem er
unnið þar er alveg einstakt. Ljósa-
fossgangan er mjög táknræn, fólk
labbar eins langt og það kemst og
kveikir svo á Ljósinu á leið niður.
Þá sér maður ljós á hreyfingu niður
göngustíginn sem er ljós í myrkrinu
líkt og Ljósið er.“
Ljósafossviðburðurinn hefst á
morgun klukkan 15 við Esjustofu
með upphitun en gangan hefst
klukkan 16.
Guðný og Þórunn eru sammála um að þjónustan í Ljósinu sé einstök og Ljósafossinn sé afar táknrænn og fallegur viðburður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þórunn segir að stefnan í fram-
tíðinni sé að komast aftur upp að
Steini. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Fjallamennskan
hefur verið besta
mögulega aðferð fyrir
mig til að fá hjartavöðv-
ann til að verða betri.
Guðný Ragnarsdóttir
KEMUR HEILSUNNI Í LAG
EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
1
5
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
E
-2
6
9
8
2
4
3
E
-2
5
5
C
2
4
3
E
-2
4
2
0
2
4
3
E
-2
2
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K