Fréttablaðið - 15.11.2019, Side 22

Fréttablaðið - 15.11.2019, Side 22
 6 KYNNINGARBLAÐ 1 5 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RVISTVÆNIR BÍLAR Það gerist ekki oft á hverri öld að við upplifum miklar breyt-ingar eins og nú eru að verða í bílaheiminum. Þar eru að eiga sér stað skipti á orkugjafa sem eiga sér ekki hliðstæðu í sögu bílafram- leiðslu síðustu 130 árin eða svo. Ein- mitt á þessum tímapunkti eru að koma á markað fjölmargir nýir raf- bílar og ekki síður tengiltvinnbílar og því skjóta skökku við áform yfirvalda um að hætta ívilnunum á þeirri gerð bíla með nýju frum- varpi. Flestir nýrra tengiltvinnbíla eru einmitt að koma á markað núna eða á næstu mánuðum og frá flestum framleiðendum, en hingað til hafa sum umboð verið betur í stakk búin en önnur til að svara þessum þörfum markaðarins. Við skulum aðeins skoða hvaða tengilt- vinnbílar eru á leiðinni á markað hérlendis á næstunni. Fjöldi hjá Öskju og Brimborg Um 15 gerðir tengiltvinnbíla eru væntanlegar næsta árið hjá Merce- des-Benz, bílar eins og C 300e, E 300e og S 560e eru þegar komnir og GLC 300e er væntanlegur í janúar. Strax í kjölfarið koma A 250e og B 250e í mars og svo GLA 250e, CLA 250e og GLC 300de í júlí. GLE 350e kemur svo í september. Þrír tengiltvinnbílar eru væntan- legir frá Kia á næsta ári, Ceed Sportwagon á fyrsta ársfjórðungi, Xceed á öðrum ársfjórðungi og svo Sorento í lok árs. Fjöldi tengiltvinnbíla er væntan- legur frá Brimborg strax á fyrri hluta næsta árs. Nægir þar að nefna XC40, 60 og 90 PHEV, S og V90 PHEV og S og V60 PHEV hjá Volvo-deildinni. Hjá Ford koma Kuga, Explorer, Custom og Tour- neo allir í PHEV-útfærslum. Peu- geot 3008 PHEV er strax kominn í forsölu og er handan við hornið og sama má segja um Citroën C5 Aircross PHEV. Margt nýtt hjá BL og Heklu Listinn er líka langur hjá BL en BMW X5 PHEV er þar fyrstur í röðinni og verður kynntur í lok þessa mánaðar. Á næsta ári munum við einnig sjá BMW X1 og X3 í PHEV-útfærslum. Sama er uppi á teningnum hjá Land Rover- deildinni, en Evoque og Discovery Sport PHEV koma strax í apríl, en Velar og Defender PHEV eru einnig væntanlegir. Einnig eru Jagúar F-Pace og E-Pace tengiltvinnbílar væntanlegir haustið 2020. Hjá Renault er Captur PHEV einnig væntanlegur. Margs er að vænta hjá Heklu sem hefur mikla reynslu í sölu tengil- tvinnbíla. Audi Q5 TFSI PHEV er nýkominn á markað en fleiri eru á leiðinni, eins og tengiltvinnútgáfa af Q7 sem kynnt verður í apríl. Skoda-línan er óðum að rafvæðast og næst á dagskrá er PHEV-útgáfa Superb sem kemur í mars. Octavia verður kynnt hérlendis í septem- ber og þá líka sem tengiltvinnbíll og Skoda Kamiq PHEV er handan við hornið. VW mun svo kynna tvær PHEV-útgáfur Golf næsta haust og von er á nýjum Mitsubishi PHEV jepplingi seinni hluta 2020. Fleiri umboð í startholunum Hjá öðrum umboðum eru einnig nokkrir tengiltvinnbílar á döfinni. Suzuki er líkt og aðrir framleið- endur að rafvæða framleiðslulínu sína og sýndi nýjan tengiltvinnbíl í Tókýó. Flestar gerðir þeirra verða boðnar sem tengiltvinnbílar þótt ekki sé vitað hvenær nákvæmlega það gerist. Alfa Romeo Tonale er nýr jepplingur frá framleiðand- anum sem einnig verður tengil- tvinnbíll. Toyota RAV4 PHEV verður frumsýndur í næstu viku á Bíla- sýningunni í Los Angeles og verður eflaust í boði seint á næsta ári hér- lendis. Opel Grandland X Hybrid4 er tengiltvinnbíll sem frumsýndur var í Frankfurt og verður boðinn á næsta ári. Fleiri tengiltvinnútgáfur af Cayenne-sportjeppanum eru á leiðinni en lengra er í að SsangYong komi með slíka útgáfu á markað þótt gefið hafi verið út að það sé á teikniborðinu. Þótt listinn hér sé kannski ekki alveg tæmandi nær hann nokkuð vel yfir þá tengiltvinnbíla sem í boði verða hér á landi næsta ár. Þá er ótalinn annar eins fjöldi mildra tvinnbíla (HEV) sem ekki eru með hleðslutengi eins og PHEV-bílarnir, heldur sjá bílarnir sjálfir um að hlaða talsvert minni rafhlöðu sem er þá aðeins notuð til akstursaðstoðar. Sama má segja um 100% raf bíla sem eru margir í deiglunni eða jafnvel væntanlegir strax á næsta ári. Ívilnanir þeirra munu þó duga eitthvað lengur ef frumvarpið nær óbreytt fram að ganga. Fjöldi tengiltvinnbíla 2020 Skoda Superb iV er tengiltvinnútgáfa flaggskips Skoda og er væntanlegur með vorinu. Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is Margir þeirra fá aðeins nokkra mánuði í sölu áður en verðið hækkar aftur. 410 4000landsbankinn.isLandsbankinn Lægra lántökugjald við kaup á vistvænum bílum Viðskiptavinir Landsbankans greiða ekkert lántökugjald við fjármögnun rafbíla og fá 50% afslátt af lántökugjaldi við fjármögnun bíla sem skil greindir eru sem vistvænir. 1 5 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 3 E -1 2 D 8 2 4 3 E -1 1 9 C 2 4 3 E -1 0 6 0 2 4 3 E -0 F 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.