Fréttablaðið - 15.11.2019, Síða 24
Áhugavert málþing
verður á mánudag
um umferðaröryggi.
8 KYNNINGARBLAÐ 1 5 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RVISTVÆNIR BÍLAR
Notum umhverfsivottuð hreinsi-
efni þegar við þvoum bílinn.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Kostir umhverfisvænni bíla eru ótvíræðir en þeim fylgir bæði fjárhagslegur
og umhverfislegur ávinningur.
Orkan sem þeir nota er ódýrari og
hefur minni neikvæð umhverfis
áhrif í för með sér. Þess má geta
að virðisaukaskattur á rafmagns
bifreiðar hefur verið lagður niður
í nokkur ár og vörugjald af öku
tækjum er breytilegt eftir skráðri
losun koltvísýrings ökutækisins.
Upphæð bifreiðagjalds fer einnig
eftir þyngd bifreiðar og losun
koltvísýrings (CO2).
Mest öll efnisnotkun er
almennt óæskileg þegar við
skoðum hana út frá umhverfis
málum. Bæði efnin sjálf geta verið
skaðleg ef þau fara út í náttúruna
óhreinsuð og svo er það líka
framleiðsla efnanna sem hefur
umhverfisáhrif. Reglurnar eru
almennt þessar:
Þvoum bílinn á bílaþvotta
stöð þar sem frárennslisvatn er
að einhverju leyti hreinsað eða
efni af bílum skolast frá og eru
meðhöndluð sem spilliefni. Það
er betra að óæskileg efni fari í
frárennsli þar en í afrennsli heima
á bílaplaninu sem fer beint í ofan
vatn án hreinsunar.
Sleppum hreinsiefnum eins
og hægt er eða fáum umhverfis
vottuð hreinsiefni, bón og aðrar
vörur til þvotta á bílnum.
Heimild: Umhverfisstofnun, ust.is
Vistvæn
bílaumhirða
Samgönguráðuneytið stendur fyrir
málþingi um börn og umferð.
Málþing um börn og samgöngur verður haldið á mánudaginn kl. 12.30
til 16.30 á vegum samgöngu og
sveitarstjórnarráðuneytisins í
samvinnu við Samgöngustofu,
Vegagerðina og Samband íslenskra
sveitarfélaga. Málþingið verður
haldið í Sveinatungu á Garðatorgi
(Ráðhúsi Garðabæjar).
Á þinginu munu bæði ungir sem
aldnir taka til máls og ræða stöðu
barna í samgöngum í víðu sam
hengi. Í kjölfar fyrirlestra verða
pallborðsumræður. Málþingið er
öllum opið en nauðsynlegt er að
skrá sig. Fundinum verður streymt
í beinni útsendingu á vef Stjórnar
ráðsins
Sigurður Ingi Jóhannsson,
samgöngu og sveitarstjórnar
ráðherra, og Þórunn Egilsdóttir,
formaður samgönguráðs, f lytja
ávörp auk annarra. Rætt verður
um umferðaröryggi vítt og breitt,
þar má til dæmis nefna hagnýt
ingu sálfræðilegrar þekkingar til
að breyta ferðavenjum og öryggi
barna í Reykjavík.
Dagskrána má skoða á vef sam-
gönguráðuneytisins.
Öryggi barna í umferðinni
Tesla Model S er langdrægasti
bílinn. NORDICPHOTOS/GETTY
Þegar keyptur er rafbíll er drægnin oft það fyrsta sem kaupandinn hugsar um. Nú
til dags eru komnar þó nokkuð
margar tegundir rafbíla sem geta
keyrt 400 kílómetra á einni hleðslu.
Samkvæmt mælingum á rafbílum
er Tesla Model S Long Range lang
drægasti rafbíllinn á markaðnum
í dag en hann á að geta keyrt allt
að 600 kílómetra á einni hleðslu.
Þegar drægni rafbíla er mæld er
oftast miðað við bestu aðstæður og
um það bil 20°C hita. Hér á landi er
meðalhitastigið töluvert lægra en
það og því má reikna með að upp
gefin drægni sé styttri hérlendis.
Langdrægasti
rafbíllinn
1
5
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
3
E
-2
6
9
8
2
4
3
E
-2
5
5
C
2
4
3
E
-2
4
2
0
2
4
3
E
-2
2
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K