Fréttablaðið - 15.11.2019, Side 28

Fréttablaðið - 15.11.2019, Side 28
En allan tímann hefur Hús- freyjan fylgt mér sem segir sína sögu um hve skemmti- leg hún er. Hún er vandað, prentað tímarit sem kemur út fjórum sinnum á ári. Innilegar þakkir fyrir stuðninginn í veikindum okkar ástkæru Lydíu Jónsdóttur og sýnda samúð og hlýhug við andlát og útför hennar. Einar Skaftason Jón Arinbjörn Einarsson Bryndís Jenný Kjærbo Edda Anika Einarsdóttir Elmar Ingvi Haraldsson Jón Arinbjörn Ásgeirsson Hjalti Hávarðsson og barnabörn. Ástkær bróðir okkar og frændi, Björgólfur Stefánsson Björgólfsson Háholti 13, Keflavík, er látinn. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 19. nóvember kl. 13.00. Oddný Björgólfsdóttir Jóhann Björgólfsson Þórólfur Beck Vilborg Einarsdóttir Ólöf Oddný Beck Eiríkur Beck Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Alfreð Eyjólfsson kennari og skólastjóri, Marteinslaug 1, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut 31. október. Hann verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 19. nóvember kl. 15.00. Guðjónía Bjarnadóttir Kristín Alfreðsdóttir Eyjólfur Bjarni Alfreðsson Þóra B. Valdimarsdóttir Alfreð Jóhannes Alfreðsson barnabörn og barnabarnabarn. Það er ágætt að opna þessa sýningu núna þegar jóla­brjálæðið er að byrja,“ segir Inga Jónsdóttir, safnstjóri Lista­ safns Árnesinga í Hveragerði, og á við sýninguna Tilvist og Thor­ eau sem verður opnuð í safninu á morgun, laugardag. „Þær Hildur, Eva og Elín eru allar með vísanir í náttúruna,“ segir Inga og á við þær Hildi Hákonardóttur og Evu Bjarnadóttur myndlistar­ menn og Elínu Gunnlaugsdóttur tónskáld. Þær hafa, hver um sig, unnið verk sem eiga uppsprettu sína í bókinni Walden: Lífið í skóg­ inum eftir H.D. Thoreau. Bókin byggir á hans eigin reynslu frá því þegar hann yfirgaf borgarsam­ félagið og f lutti einn inn í skóg. Í sýningarstjórn Ingu mynda verk kvennanna þriggja eina inn­ setningu sem nær yfir gólf og veggi og vekur hugrenningar og tengsl við viðfangsefni samtímans. Hún lýsir þeim í stuttu máli svo: „Hildur blandar saman texta og textíl og leggur til vídeóverk. Hennar boðskapur gengur út á að hægja á neysluhjólinu, í anda Thor eau, og freistast ekki til að viða að okkur einhverju sem við höfum enga raunverulega þörf fyrir. Eva vinnur með samtengingar í bók­ inni sem segja lítið hver og ein en eru samt nauðsynlegar brýr. Hún málar orð á gólfið, eins og gárur á vatni og notar til þess jarðefni. Elín er með hljóðverk sem hún tengir bókinni, meðal annars hanagal. Þær spila allar bæði á gaman og alvöru í sinni list.“ – gun Spila bæði á gaman og alvöru í sinni list sem sýnd er í Hveragerði Konur þriggja kynslóða sýna í Listasafni Árnesinga en það eru þær Hildur Hákonardóttir, Elín Gunnlaugsdóttir og Eva Bjarnadóttir. LJÓSMYND/INGA JÓNS Kristín Linda hefur átt drjúga samleið með Húsfreyjunni og verið ritstjóri hennar lengst allra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kristín Linda Jónsdótt­ir sálfræðingur hefur ritstýrt tímaritinu Húsfreyjunni í sex­tán ár. Þar með hefur hún slegið metið, því engin hefur verið lengur í því emb­ ætti, þó Húsfreyjan sé 70 ára. „Þegar ég byrjaði var ég kúabóndi í Miðhvammi í Aðaldal í Þingeyjar­ sýslu og dagurinn snérist um kýr, kálfa, aðra nautgripi og dráttar­ vélar. Svo venti ég mínu kvæði í kross, lauk sálfræðinámi og er nú með eigin sálfræðistofu, í Reykja­ vík, Huglind ehf. í Kringlunni. Ég vinn bæði með einstaklingum að því að bæta líðan þeirra og heilsu og er með námskeið og fyrirlestra bæði hér á landi og fyrir Íslendinga á Spáni. En allan tímann hefur Hús­ freyjan fylgt mér sem segir sína sögu um hve skemmtileg hún er. Hún er vandað, prentað tímarit sem kemur út fjórum sinnum á ári.“ K ristín Linda er uppalin í Hjarðar holti í Fnjóskadal þar sem foreldrar hennar búa enn og hún ólst upp við Húsfreyjuna á heimil­ inu. En hvað heillaði hana við rit­ stjórastarfið? „Í fyrsta lagi finnst mér gaman að geta lagt mitt af mörkum til þess að þetta tímarit íslenskra kvenna blómstri og haldi velli. Það er dálítið einstakt að það hefur verið gefið út af sama eigenda, Kvenfélagasam­ bandi Íslands, í 70 ár. Það varðveitir hluta af sögu og menningu íslenskra kvenna og ég vil gjarnan leggja því lið. Svo er gaman að geta beint kast­ ljósinu að því sem vel er gert og til fyrirmyndar og vera með viðtöl við áhugaverðar konur og umfjöllunar­ efni sem mér finnst jákvæð og hvetj­ andi fyrir okkur hinar.“ Kristín Linda segir Húsfreyjuna alltaf vera í þróun, í takt við tímann, en ákveðin gildi hafi haldið sér alla tíð, eins og að vera með ýmiss konar fróðleik sem snúi að daglega lífinu, heimilinu og líðan og lífsgæðum fólks. Undanfarin ár hafi til dæmis verið fræðsla um matarsóun og fatasóun í Húsfreyjunni en á 6. ára­ tugnum hafi meira verið skrifað um hreinlæti á heimilum, ræktun græn­ metis og heimasaum á fötum. „Svo er þetta blað Kvenfélaga­ sambandsins og fréttir af kvenfélög­ unum eru fastur liður. Á Íslandi eru nú 154 kvenfélög, mörg í miklum blóma og tvö eru nýstofnuð. Ég var í öflugu kvenfélagi Aðaldæla þegar ég bjó þar og nú er ég í kvenfélagi Grindavíkur, þar eru yfir hundrað konur og mikið líf og fjör,“ tekur hún fram Kristín Linda skrifar mest í blaðið, enda er hún ritstjórinn og blaðamaðurinn en kveðst líka vera með þáttastjórnendur sem sjái til dæmis um handavinnu og matar­ umfjöllum – hvort tveggja vinsælt efni. „Í blaðinu sem kemur út í dag er forsíðuviðtal við Elizu Reid for­ setafrú, uppskrift að verðlaunasjali og spennandi uppskriftir að sykur­ litlum jólakökum, svona til dæmis.“ Hún segir þær sem verða með erindi á málþinginu hafa setið löngum stundum uppi á Þjóðarbók­ hlöðu að fara í gegnum alla þessa 70 árganga tímaritsins. „Þá sér maður hvernig blaðið hefur fjallað um málefni kvenna og birt tískuna og tíðarandann hverju sinni. Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur gerir úttekt á því hvaða konur völdust sem viðmælendur. Jóhanna Erla Pálmadóttir, fyrrverandi fram­ kvæmdastjóri Textílseturs Íslands, fer yfir hvernig Húsfreyjan hefur varðveitt hannyrðasögu þjóðar­ innar. Guðrún Hallgrímsdóttir fjallar um fæðuval og matarmenn­ ingu í Húsfreyjunni og hver þróunin hefur verið. Einu sinni voru upp­ skriftir til dæmis með litlum sykri vegna sykurskorts og nú erum við aftur að leita að slíkum uppskrift­ um vegna hollustuhátta. Svo fjallar Rakel Sigurðardóttir, sunnlensk kvenfélagskona, um Húsfreyjuna og horfir til framtíðar, úrslit verða birt í ljóðakeppni blaðsins og Þuríður Sigurðardóttir syngur fyrir gesti.“ gun@frettabladid.is Húsfreyjan sjötug og síung í eðli sínu Málþing og afmælishóf verður haldið í dag á Hallveigarstöðum við Túngötu í tilefni sjötíu ára afmælis Húsfreyj- unnar sem Kvenfélaga- samband Íslands hefur gefið út alla tíð. 1 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 5 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 3 E -0 D E 8 2 4 3 E -0 C A C 2 4 3 E -0 B 7 0 2 4 3 E -0 A 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.