Fréttablaðið - 22.11.2019, Side 6
Tryggðu þér áskrift
DOMINO’S DEILD KVENNA
Í KVÖLD 17:50
DOMINO’S DEILD KARLA
Í KVÖLD 20:10
KAUPTU STAKAN LEIK:
DOMINO’S
KÖRFUBOLTAKVÖLD
Í KVÖLD 22:10
STJÓRNMÁL Átta þingmenn Við-
reisnar, Samfylkingar, Pírata og
Vinstri grænna hafa lagt fram
þingsályktunartillögu um hrað-
ari málsmeðferð hjónaskilnaða og
bætta réttarstöðu þolenda heimil-
isof beldis.
Í vikunni gaf Þjóðskrá út tölur
yfir hjónavígslur og skilnaði á
árinu. Vígslurnar voru alls 3.150 og
skilnaðir 1.099, eða um 35 prósent.
Of beldi í samböndum er algeng
ástæða fyrir skilnaði. Í rannsókn
frá árinu 2008 kom í ljós að 20 pró-
sent kvenna sögðust hafa orðið fyrir
of beldi af hálfu maka eða fyrrver-
andi maka á lífsleiðinni.
Jón Steindór Valdimarsson, fyrsti
f lutningsmaður tillögunnar, segir
að núverandi hjúskaparlöggjöf
sé tafsöm og ekki til þess fallin að
hjálpa þolendum. Í tillögunni eru
nefnd nokkur atriði sem þyrfti að
kanna og breyta. Þá vanti einnig
mannaf la til að mál af þessu tagi
geti gengið hraðar fyrir sig í kerfinu.
Jón Steindór hefur áður lagt fram
frumvarp um bætt réttindi fyrir
þolendur við hjónaskilnað.
„Nú virkar kerfið þannig að sá
sem beitir of beldinu þarf að játa
það, jafnvel þó að hann hafi hlotið
dóm,“ segir hann og telur að ferlið
sjálft geti verið kúgunartæki. „Þegar
um er að ræða of beldissambönd,
líkamleg eða andleg, þá hættir
of beldið ekki þegar þolandi reynir
að losna undan því með skilnaði.
Gerendur halda tökunum á þolanda
með því að tefja og nýta alla mögu-
leika til þess.“
Skilyrði um sáttaumleitanir eru
nú í lögum en Jón Steindór telur að
báðir aðilar verði að vera sammála
um að reyna þær leiðir. Nauðung sé
fyrir þolendur að taka þátt í þessu
og oft tilgangslaust. Sáttameðferð
og sáttavottorð eru annaðhvort
gefin út af trúfélögum eða sýslu-
mönnum.
Árið 2011 undirritaði Ísland
Istanbúlsamning Evrópuráðsins
um forvarnir gegn of beldi gagn-
vart konum og heimilisof beldi og
var hann fullgiltur á síðasta ári.
Í honum er bann lagt við skyldu-
bundinni málsmeðferð, svo sem
sáttameðferðum.
Í þingsályktunartillögu þing-
mannanna átta er einnig lagt til að
gjafsóknarskilyrði verði rýmkuð.
Samkvæmt Jóni Steindóri er það
vegna þess að fólk sem stendur í
skilnaði sé í millibilsástandi og oft
ekki aflögufært. Sérstaklega á þetta
við um þolendur heimilisof beldis,
sem séu í mörgum tilvikum konur
sem eiga engan annan kost en að
flýja í Kvennaathvarfið.
„Grunnhugsunin er sú að fólk
gangi í hjónaband af fúsum og
frjálsum vilja og ef fólk vill slíta hjú-
skap á að leggja sem fæsta steina í
þá götu,“ segir hann og segist jafn-
framt eiga von á breiðum stuðningi
í þinginu.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Vilja einfalda ferli
hjónaskilnaðar fyrir
þolendur ofbeldis
Átta þingmenn fjögurra flokka hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að
einfalda og hraða meðferð hjónaskilnaða. Tillagan er í þágu þolenda heim-
ilisofbeldis því í mörgum tilfellum heldur ofbeldið áfram í skilnaðarferlinu
sjálfu. Er meðal annars farið fram á að skylda til sáttaumleitana verði afnumin.
Jón Steindór segir sáttameðferð við skilnað getta oft verið tilgangslausa nauðung. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Nú virkar kerfið
þannig að sá sem
beitir ofbeldinu þarf að játa
það, jafnvel þó að hann hafi
hlotið dóm.
Jón Steindór Valdimarsson,
þingmaður Viðreisnar
K JARAMÁL BSRB hefur náð sam-
komulagi við alla viðsemjendur
sína, það er ríki, Reykjavíkurborg
og Samband íslenskra sveitarfélaga,
um útfærslu styttingu vinnuvik-
unnar hjá dagvinnufólki.
Í tilkynningu frá BSRB kemur
fram að vegna trúnaðar í kjaravið-
ræðunum sé ekki á þessari stundu
hægt að greina nánar frá útfærsl-
unni.
„Sú útfærsla sem sátt hefur náðst
um varðandi styttingu vinnutíma
dagvinnufólks hefur verið sam-
þykkt með fyrirvara um að banda-
lagið nái ásættanlegri niðurstöðu í
öðrum málum sem eftir er að leysa
úr í kjaraviðræðunum,“ er haft eftir
Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanni
BSRB.
Sonja segir að það sé skýr krafa
að lengra verði gengið í styttingu
vinnuviku hjá vaktavinnufólki.
Verkefnið fram undan sé að útfæra
þá styttingu.
Í stefnu BSRB sem samþykkt var
á þingi sambandsins í október á síð-
asta ári segir að lögfesta þurfi stytt-
ingu vinnuvikunnar í 35 stundir
án kjaraskerðingar. Þá verði vinnu-
vika vaktavinnufólks 80 prósent af
vinnuviku dagvinnufólks. – sar
Samkomulag um styttingu vinnuviku
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
D A G U R6 2 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U -
2
2
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
B
-9
3
1
8
2
4
4
B
-9
1
D
C
2
4
4
B
-9
0
A
0
2
4
4
B
-8
F
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K