Fréttablaðið - 22.11.2019, Page 8
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Nánar á
kronan.is/
jolahladbord
ÍSRAEL Benny Gantz, leiðtoga Bláa
og hvíta bandalagsins, tókst ekki að
mynda nýja ríkisstjórn í Ísrael frekar
en Benjamin Netanyahu, leiðtoga
Likudflokksins. Ísraelsk stjórnmál
halda því áfram að vera í algerum
hnút.
„Frá og með deginum í dag og í 21
dag til viðbótar mun ég veita þjóð-
þinginu, Knesset, frest til þess að
mynda nýja ríkisstjórn,“ sagði Reu-
vin Rivlin, forseti landsins, í gær. Ef
ekki tekst að mynda stjórn fyrir 12.
desember mun hann því boða til enn
einna kosninga, snemma á næsta ári.
Þegar hefur verið kosið tvisvar til
þings á þessu ári, í apríl og septem-
ber. Röðuðust sætin þannig upp að
illmögulegt var að mynda 61 manns
meirihluta sem til þarf.
Er þetta í fyrsta skipti í sögu
landsins sem forseti biður þingið
sjálft um að mynda stjórn. „Pólitísk
örlög ykkar eru ekki jafn mikilvæg
og örlög gamallar konu á spítala,“
sagði Rivlin og reyndi að höfða til
ábyrgðar þingsins.
Gantz og Netanyahu, sem fengu
nánast sama fylgið í kosningunum,
hafa báðir sagt að þeir muni halda
viðræðum áfram næstu vikur. Helsti
ásteytingarsteinninn er forsætisráð-
herraembættið sjálft, en til tals hefur
komið að þeir skiptist á. Báðir vilja
hins vegar hefja kjörtímabilið sem
forsætisráðherra. – khg
Fól þinginu
að mynda
nýja stjórn
Rivlin reyndi að höfða til samvisku
þingmanna. NORDICPHOTOS/GETTY
Pólitísk örlög ykkar
eru ekki jafn
mikilvæg og örlög gamallar
konu á spítala.
Reuvin Rivlin forseti Ísrael
ÞÝSKALAND Pípuhattur Adolfs Hitl-
er, með upphafsstöfunum A.H., var
á meðal þeirra muna sem boðnir
voru upp hjá uppboðsfyrirtækinu
Hermann Historica í München á
miðvikudag. Var hatturinn sleginn
á 50 þúsund evrur, eða tæpar 7 millj-
ónir króna. Leigusamningur Hitl-
ers, frá þeim tíma þegar hann bjó í
München , var einnig boðinn upp.
Dýrasti hluturinn var hins vegar
silfurslegin útgáfa af Mein Kampf,
bókinni sem Hitler gaf út árið 1925,
með merki arnarins og hakakrossin-
um á. Bókin, sem eitt sinn var í eigu
Hermanns Göring yfirmanns þýska
f lughersins, seldist á 130 þúsund
evrur, eða tæpar 18 milljónir króna.
Margir f leiri hlutir úr eigu hátt
settra nasista voru boðnir upp,
svo sem Heinrichs Himmler, leið-
toga SS-sveitanna, og Rudolfs Hess
varakanslara. Einn af þeim munum
sem vöktu hvað mesta eftirtekt var
kvöldverðarkjóll Evu Braun, sam-
býliskonu Hitlers, sem bandarískir
hermenn fundu árið 1945 í Salzburg.
Ekki voru aðeins boðnir upp
munir frá þriðja ríkinu heldur mörg-
um mismunandi tímabilum í mann-
kynssögunni. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem Hermann Historica býður
upp muni úr eigu nasistaforingja.
Fyrir þremur árum voru buxur af
Hitler boðnar þar upp.
Bernhard Pacher, framkvæmda-
stjóri Hermann Historica, sagði að
uppboðsfyrirtækið hefði fengið
ótal tölvupósta vegna uppboðsins
og að langf lestir hefðu gagnrýnt
það harðlega. „Við fengum samt
einn vinalegan póst frá manneskju
sem sagðist styðja uppboðið. Þetta
væru sögulegir munir,“ sagði Pacher.
„99 prósent af tölvupóstunum voru
neikvæð og innihéldu miklar sví-
virðingar. Til dæmis að við værum
aðeins gráðugir nýnasistar.“
Menachem Margolin, rabbíni og
leiðtogi Samtaka evrópskra gyðinga,
er einn af þeim sem hafa harðlega
gagnrýnt uppboðið og hvatti hann
Hermann Historica til að hætta við
það. Óvíst væri í hvaða höndum
munirnir myndu enda og hætt við
því að þeir yrðu notaðir til þess að
upphefja nasismann. „Það sem þið
eruð að gera er ekki ólöglegt, en það
er rangt,“ sagði Margolin. „Ég biðla
ekki til ykkar af lagalegum ástæðum
heldur siðferðilegum.“
Samkvæmt Pacher eru f lestir
munir á slíkum uppboðum seldir
til safna. Í Bandaríkjunum og Asíu
hafa mörg söfn úr miklum fjár-
munum að spila. Aðeins 20 prósent
væru seld til einkasafnara. Hann
gat þó ekki gefið upp hverjir hefðu
keypt munina því það væri andstætt
þýskum lögum.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Pípuhattur Hitlers boðinn upp
Hundruð þúsunda evra söfnuðust í uppboði á eigum Adolfs Hitler og annarra nasistaleiðtoga. Uppboð-
inu hafði verið harðlega mótmælt þar sem munirnir yrðu hugsanlega notaðir til að upphefja nasismann.
Rabbíninn Menachem Margolin segir uppboð nasistamuna löglegt en siðlaust. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Það sem þið eruð að
gera er ekki löglegt,
en það er rangt
Menachem Margolin leiðtogi Sam-
taka evrópskra gyðinga
BRETLAND Jeremy Corbyn, leið-
togi Verkamannaflokksins, kynnti
stefnuskrá fyrir þingkosningarnar
sem fram fara þann 12. desember.
Er hún sögð mjög róttæk, jafnvel
róttækari en stefnuskráin frá 2017.
„Þessi stefnuskrá inniheldur mál
sem fólkið vill en stjórnmálakerfið
hefur komið í veg fyrir í áratugi,“
sagði Corbyn vígreifur á fundi í
Birmingham-háskóla. Stefnuskráin
ber heitið „Það er kominn tími á
raunverulegar breytingar“.
Eins og við var að búast er gert ráð
fyrir stórauknum fjárútlátum hins
opinbera til ýmissa málaflokka, svo
sem heilbrigðis- og skólakerfisins.
Byggja á upp innviði og hækka
laun opinberra starfsmanna um 5
prósent.
Þá er gert ráð fyrir þjóðnýtingu á
ýmsum sviðum, svo sem í samgöng-
um, póstkerfinu og fráveitukerfum.
Síma- og netfyrirtæki yrðu þjóðnýtt
og það tryggt að allir Bretar hefðu
aðgang að netinu.
Til að fjármagna útgjöldin hyggst
Corbyn skattleggja hina ríku, sem
hafa 80 þúsund pund í tekjur á ári,
eða tæplega 13 milljónir króna.
Myndu því 95 prósent Breta ekki
finna fyrir aukinni skattheimtu. Þá
verða skattar hækkaðir verulega á
fyrirtæki, sérstaklega mengandi
stóriðnað, svo sem olíu- og gasfyrir-
tæki, vegna loftslagsvárinnar. – khg
Corbyn kynnir róttækustu stefnuskrá flokksins í langan tíma
Þessi stefnuskrá
inniheldur mál sem
fólkið vill en stjórnmála-
kerfið hefur komið í veg
fyrir í áratugi.
Jeremy Corbyn, leiðtogi
Verkamannaflokksins
2 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
B
-8
E
2
8
2
4
4
B
-8
C
E
C
2
4
4
B
-8
B
B
0
2
4
4
B
-8
A
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K