Fréttablaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 14
Það er verið að vinna af þó nokkr­ um krafti, fundað vikulega og stefnt að því að ljúka þeirri vinnu á næsta ári og þá er kominn tími til að taka ákvörðun í málinu –þótt fyrr hefði verið. Guðni Bergsson, formaður KSÍ Alltaf nóg til af humri hjá Norðanfiski... STÓRUM HUMRI!! Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu á úrvals sjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa. Einnig má finna vörur Norðanfisks í neytendapakkningum í verslunum Bónus um land allt. Hafið samband á nordanfiskur@nordanfiskur.is eða í síma 430 1700 FÓTBOLTI Dregið verður í dag í umspil um fjögur laus sæti í loka- keppni Evrópumótsins í knatt- spyrnu karla. Ísland er í potti A  í drættinum en fyrst verður dregið um það hvort íslenska liðið mætir Rúmeníu eða Ungverjalandi í und- anúrslitum umspilsins en auk þess liðs sem mætir ekki Íslandi í und- anúrslitunum koma Búlgaría og Ísrael til greina sem mögulegir and- stæðingar í úrslitaleiknum um laust sæti í lokakeppninni. Rúmenía er hærra skrifað sé litið til styrkleikalista FIFA en þar situr liðið í 29. sæti eins og sakir standa. Rúmenar höfnuðu í fjórða sæti í F-riðli undankeppninnar en Spánn og Svíþjóð fóru beint áfram úr þeim riðli og Lars Lägerback og lærisveinar hans hjá Noregi voru í sætinu fyrir ofan Rúmeníu. Claudiu Keserü sem mætti Val með búlgarska liðinu Ludogorets í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í sumar var markahæsti leikmaður Rúmeníu í undankeppninni en hann skoraði sex mörk. George Puscas sem leikur með enska B-deildarliðinu Reading skoraði einu marki minna en Keserü. Keserü er markahæsti leikmað- urinn í núverandi leikmannahópi Rúmena með 13 mörk fyrir liðið en Nicolae Stanciu, leikmaður Slavia Prag, kemur næstur með sín 10 mörk. Rúmenía fékk á sig 15 mörk í 10 leikjum í undankeppninni en þar af voru fimm í 5-0 tapi á móti Spáni í leik sem skipti ekki máli fyrir þróun mála í riðlinum í lokaumferð riðla- keppninnar. Ungverjaland er hins vegar í 50. sæti á styrkleikalista en liðið laut í lægra haldi fyrir Wales í úrslitaleik um sæti í lokakeppninni í E-riðli undankeppninnar. Ungverjar skoruðu átta mörk í jafn mörgum leikjum í undan- keppninni en mörkin dreifðust jafnt á milli leikmanna liðsins. Máté Pátkai og Willi Orban, sem er fyrir- liði þýska liðsins RB Leipzig, voru markahæstir hjá liðinu í riðlinum með tvö mörk. Balázs Dzsudzsák, fyrirliði ung- verska liðsins, og Ádám Szalai, vara- fyrirliði liðsins, eru markahæstu leikmennirnir í leikmannahópnum með 21 mark hvor fyrir landsliðið. Þeir eru einu leikmennirnir í hópn- um sem hafa skorað meira en fjög- ur mörk á landsliðsferli sínum. – hó Kemur í ljós hverjum Ísland mætir  Íslenska liðið mætir annaðhvort Rúmeníu eða Ungverjalandi í undan­ úrslitum umspilsins. FÓTBOLTI Skýrsla starfshóps um nýtt knattspyrnuhús Hauka var tekin fyrir í bæjarráði Hafnar- fjarðar í gær en bærinn hyggst reisa veglegt knattspyrnuhús á Ásvöllum. Mikil uppbygging er víða um land þegar kemur að knattspyrnu og íþróttum. Þann- ig var Skessan tekin í notkun í Kaplakrika fyrir skemmstu, Afturelding tók nýverið í notkun sitt hús, Ísafjörður ætlar að bjóða út upphitað hús og í Reykjavík eru framkvæmdir að hefjast við svæði Fram og ÍR. Valsmenn eru komnir langleiðina með sitt svæði og KR er í startholunum. Svona mætti lengi telja. Flest sveitarfélögin standa sig gríðarlega vel í uppbyggingu á íþróttamannvirkjum og saman- lagður kostnaður við þessa mann- virkjagerð nemur mörgum millj- örðum króna. Það er þó aðra sögu að segja í Laugardal. Þar standa mannvirki fornra tíma með úrelta íþrótta- höll og leikvang með ónýta frjáls- íþróttabraut. Uppbygging þar er á ábyrgð ríkisins og þó það sé að þokast í rétta átt er enn langt í land. Á f járaukalögum er búið að koma á fót hlutafélagi vegna Þjóðarleikvangs í Laugardal og leggja því til fimm milljónir króna í stofnfé. Guðni Bergsson, formað- ur KSÍ, segir að fundað sé stíft og vandað sé til verka. Guðni er ekki í öfundsverðu hlutverki en ber sig vel þegar rætt er um uppbygging- una sem vonandi verður. „Starfshópur skilaði af sér vinnu á síðasta ári og í kjölfarið var sam- komulag um að fara í nánari grein- ingarvinnu og úttekt á mögulegum sviðsmyndum hvað varðar völlinn. Þetta nýjasta skref er stigið af hálfu ríkisvaldsins til að hafa fjármagns- heimildir fyrir það verkefni. Það er verið að vinna af þó nokkrum krafti, fundað vikulega og stefnt að því að ljúka þeirri vinnu á næsta ári og þá er kominn tími til að taka ákvörðun í málinu – þótt fyrr hefði verið,“ segir Guðni. Hann bætir við að það sé gangur í þeirri vinnu sem nú sé unnin þó skrefin séu stundum stutt og hæg. „Miðað við mínar upplýsingar hefur varla verið unnin svona ítarleg vinna eins og þessi á evrópskan mæli- kvarða hvað varðar uppbyggingu íþróttamannvirkis. Það er verið að rýna ítarlega í hlutina.“ Mikið hefur verið rætt og ritað um Laugardalsvöll. Sérstaklega í aðdraganda þess að Ísland er að fara að spila leik og jafnvel tvo í mars. Guðni segir að sveitarfélögin hafi staðið sig vel eftir að málaflokkur- inn færðist frá ríkinu yfir á sveitar- félögin. „En manni finnst að ríkið eigi að koma að þessu – sérstak- lega þegar rætt er um þjóðarleik- vang. Það má auðvitað líka ræða hvernig ríkið styrkir íþróttalífið. Það mætti gera betur þar. Ríkið styrkir rekstur íþróttasambanda og UMFÍ og ferðasjóð og afreks- sjóð en miðað við skatttekjur sem ríkið fær af íþróttum mættu fram- lög til íþróttamála tvímælalaust vera meiri og kannski meira í takt við það sem gerist á Norðurlönd- unum.“ benediktboas@frettabladid.is Mikil uppbygging nema í Laugardal Laugardalsvöllur er rúmlega 60 ára gamall. Miðað við mannvirkjagerð hjá sveitarfélögum landsins er ríkið að draga lappirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Aðstaða leikmanna er langt frá því að uppfylla kröfur nútímans. Sveitarfélögin í landinu eru dugleg að byggja upp íþróttamannvirki. Fjallað var um kom- andi knatthús Hauka í bæjarráði í gær en mikil uppbygging er fram undan í Reykjavík, á Ísafirði og í fleiri sveit- arfélögum. Alls staðar nema í Laugardal. 2 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 2 2 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 B -7 5 7 8 2 4 4 B -7 4 3 C 2 4 4 B -7 3 0 0 2 4 4 B -7 1 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.