Fréttablaðið - 22.11.2019, Page 18

Fréttablaðið - 22.11.2019, Page 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RBÓKAMESSA Hugmyndin að því að skrifa um mömmu mína kviknaði í dánarferli hennar. Hún lést með óvenjulegum hætti og í fram- haldinu þurfti ég að vinna mig út úr þeirri lífsreynslu. Ég byrjaði að skrifa fyrir sjálfa mig og það stóð ekki til að gefa það efni út enda fannst mér ég lengi vel svo hörð við mömmu og koma sjálf svo illa út að ég gæti ekki sýnt þetta nokkrum manni. Tilgangurinn var fyrst og fremst að fara í gegnum tilfinning- ar mínar og reyna að skilja dauða mömmu út frá lífi hennar, hvernig þessi 85 ár sem hún lifði leiddu til þeirra 45 daga sem það tók hana að deyja. Mamma var óvenjuleg manneskja, hún lifði og dó á sínum forsendum og eftir sínu höfði. Hún var mjög opinská með ákvörðun sína og síðustu dagarnir hennar voru ekki líkir neinu sem ég hef kynnst,“ segir Sæunn, sem er sálgreinir og notar reynslu sína og menntun til að skilja móður sína. „Mamma var litrík og skemmtileg en hún var líka ófyrirsjáanleg og erfið. Hún tók oft ákvarðanir sem komu okkur dætrum hennar úr jafnvægi, eins og til dæmis að fara frá okkur. Hún misnotaði áfengi og ég reyni að skilja ástæður þess. Ég er ekki þeirrar skoðunar að um sé að ræða líffræðilegan eða meðfæddan sjúkdóm heldur leita ég skýringa í lífsreynslu fólks á að það misnotar efni til að breyta skynjun sinni og líðan,“ segir hún. Móðir Sæunnar var níunda í röð fimmtán systkina og það hafði að mati Sæunnar áhrif á mótun per- sónu hennar. „Það er erfitt að setja sig í spor þeirra sem eignast svo mörg börn og líka þeirra sem eru í stórum systkinahópi. Við mamma vorum mjög nánar og ég skynjaði sterkt að þessi glæsilega og hæfi- leikaríka manneskja glímdi alla tíð við mikla höfnunartilfinningu sem ég rek til barnæsku hennar,“ segir Sæunn, sem áður hefur skrifað bækurnar Hvað gengur fólki til? Leit sálgreiningar að skilningi, Árin sem enginn man og Fyrstu 1000 dagarnir. Sterkar tilfinningar Þegar hún er spurð hvernig það hafi verið að opinbera líf sitt og tilfinningar með því að skrifa svona opinskáa bók segir hún það ekki hafa verið auðvelt. „Enda tók það mig tólf ár að koma bókinni frá mér. Auðvitað var það stór ákvörðun að birta þessi skrif en þegar öllu var á botninn hvolft fannst mér sagan áhugaverð. Hvort sem ég vinn með einstakl- inga eða foreldra og ung börn er ég alltaf að skoða áhrif barnæsk- unnar. Með sögu okkar mömmu langaði mig að setja fræðilegt efni í persónulegt samhengi,“ segir Sæunn. Hún segir að sem barn hafi hún oft skammast sín fyrir móður sína því að hún hafi verið svo öðru- vísi en hún geri það ekki lengur. „Ég var oft sár og reið út í mömmu, en mér fannst líka undurvænt um hana og þeim tilfinningum fann ég sterkt fyrir þegar ég fór að rýna í og rifja upp söguna hennar.“ Bókin hefur vakið verðskuldaða athygli, enda er ekkert dregið undan. „Ég hef fengið rosalega sterk viðbrögð, jafnvel frá blá- ókunnugu fólki, sem segir að eftir lesturinn skilji það sína eigin foreldra og sjálft sig betur. Ég geng mjög nærri mömmu í bókinni en líka sjálfri mér, öðruvísi hefði ekki haft neinn tilgang með að skrifa hana.“ Opinská saga á persónulegum nótum Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir skrifar um móður sína, líf hennar og samband þeirra í bókinni Óstýriláta mamma mín … og ég. Bókin er opinská, en það tók Sæunni 12 ár að koma henni frá sér. Sæunn Kjartansdóttir rithöfundur hefur skrifað áhugaverða bók um móður sína sem var lengi í vinnslu. Síldarárin 1867-1969 eftir Pál Baldvin Baldvinsson, bókmenntafræðing og menningarrýni, kemur út núna um helgina. Um er að ræða yfir- gripsmikið tímamótaverk um þetta tímabil í sögu þjóðarinnar. Bókin er afrakstur áralangrar vinnu Páls við söfnun ljósmynda, endurminninga og annarra heim- ilda um síldarævintýrið í sögu íslensku þjóðarinnar. „Ég hafði áhuga á að fjalla um síldarárin út frá persónulegri reynslu og lífi þess fólks sem vann við síldina, hvort sem það stóð á síldarplaninu að salta síld í tunnur eða sótti sjóinn að veiða silfur hafsins. Í bókinni eru meðal annars frásagnir karla og kvenna, úr öllum stéttum samfélagsins,“ segi Páll, en hann hefur áður skrifað metsölubókina Stríðsárin 1938-1945. „Þegar ég skoðaði heimildir rakst ég óneitanlega á margar frásagnir af karlmönnum en mig langaði að skoða sögu síldar- kvenna og barna sérstaklega. Þær unnu mikla erfiðisvinnu við að salta síldina og ráku um leið heimili. Mér fannst líka áhuga- vert að varpa ljósi á líf barna sem ólust upp þegar þessar ofsaveiðar stóðu yfir og hvaða áhrif það hafði á þau,“ segir Páll og bætir við að það hafi verið feikilega gaman að kynna sér þessa merki- legu sögu sem hafði mikil áhrif á líf og efnahag þjóðarinnar. „Inn í þetta allt f léttast svo örlaga- saga auðkýfinga og hvernig fór fyrir þeim. Sumir þeirra voru ríkir einn daginn en öreigar þann næsta. Einnig segi ég frá skemmtilegum síldarspekúl- öntum,“ nefnir Páll. Elti síldina í gegnum Íslandssöguna Hann leitaði heimilda bæði hérlendis og erlendis og segist hafa elt síldina í gegnum Íslands- söguna. „Síldin átti sinn þátt í að Ísland breyttist úr örsnauðu landi í tæknivætt velferðarríki. Ósennilegt er að lífskjör væru hér sem raun ber vitni ef hennar hefði ekki notið við,“ segir hann. Þetta ævin- týralega skeið Íslands- sögunnar hófst með síldveiðum Norðmanna undan Austur- landi á síðari hluta 19. aldar. „Í fyrstu höfðum við Íslend- ingar hvorki skip, síldartunnur, salt né verksmiðjur til að vinna úr síldinni og bræða úr henni lýsi en það átti eftir að breytast. Sumir þéttbýlisstaðir breyttust úr kaup- stöðum í útgerðarbæi, söltunar- bryggjur risu víða um land og sömuleiðis stórvirkar síldarverk- smiðjur. Á þeim tíma voru þetta stærstu verksmiðjur landsins og þótt víðar væri leitað. Á Siglufirði og Djúpavík voru reistar gríðar- stórar og fullkomnar verksmiðjur sem voru starfræktar í nokkur ár en þegar síldin hvarf stóðu þær tómar og eru nú orðnar rústir einar,“ bendir Páll á. Síldin varð líka til þess að stór- kostlegir fólksf lutningar urðu landshorna á milli í hundrað ár, þar sem fólk fór tugum og jafnvel hundruðum saman, frá suður-, og suðvesturhorni landsins og austur á firði eða norður í land og settist þar að. Bókin er prýdd fjölda mynda og hafa margar þeirra ekki áður sést á prenti. „Ég leitaði að myndum hér heima og úti, á héraðssöfnum, borgarsöfnum og þjóðminja- söfnum og tengi þær saman við textann,“ segir Páll að lokum en Forlagið gefur bókina út. Páll Baldvin leitaði heimilda bæði hérlendis og erlendis og segist hafa elt síldina í gegnum Íslandssöguna. 2 2 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 B -9 C F 8 2 4 4 B -9 B B C 2 4 4 B -9 A 8 0 2 4 4 B -9 9 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.