Fréttablaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 21
Fólk deyr alveg hægri og vinstri með hugvitssömum hætti, en mér finnst hún samt skemmtilega skrít- in og rosalega falleg. Blær Guðmundsdóttir er höf-undur bókarinnar Sipp, Sipp-sippanipp og Sippsippanipp- sippsúrumsipp – systurnar sem ætluðu sko ekki að giftast prins- um, en hún er ætluð lesendum á aldrinum 5 til rúmlega 100 ára. Þetta er fyrsta bók Blævar. Hún hefur reyndar brotið um, hannað og myndskreytt bækur annarra höfunda, sem grafískur hönnuður, þar á meðal bækur föður síns. „Pabbi minn var Guðmundur Páll Ólafsson rithöfundur og ég byrjaði í umbroti með honum þegar hann gerði bókina Hálendið í náttúru Íslands árið 2000,“ segir Blær. „Síðast gerðum við Vatnið í náttúru Íslands, síðustu bókina hans. Árið 2016 fór ég í teikni- og myndskreytingarnám í Mynd- listaskóla Reykjavíkur og þar fæddist bókin,“ segir Blær. „Þetta byrjaði sem verkefni þar sem ég var að búa til persónur í ævintýri, en ég byggði á gömlu ævintýri sem amma og mamma sögðu mér og mér þykir mjög vænt um. Þetta varð svo að útskriftarverkefni og nú er þetta orðið að alvöru bók. Ævintýrið fjallar um þrjár systur sem eru prinsessur og heita Sipp, Sippsippanipp og Sippsippa- nippsippsúrumsipp. Í öðru ríki búa svo þrír prinsar, sem heita Skrat, Skratskratarat og Skrat- skrat aratskratskúrumskrat og þau giftast öll hvort öðru,“ segir Blær. „Ég hef heyrt ævintýrið margoft en alltaf velt fyrir mér af hverju þau giftust og sagan fjallar um það. Ég set þetta í hendurnar á stelpunum og er að leika mér með kynjahlutverkin,“ segir Blær. „Þær eru ungar konur á framabraut og og hafa engan tíma fyrir prinsa eða áhuga á að giftast þeim, en svo taka örlögin í taumana. Inn í þetta blandast jafnréttis- hugsun og sú hugsun að allir geti verið eins og þeir vilja og þurfi ekki að passa í staðlaða ímynd. Ein prinsessan er til dæmis lögga,“ segir Blær. „Allar persónurnar eru sterkar á sinn hátt og það eru ekki alltaf prinsarnir sem eiga að koma á hvítum hesti og bjarga prins- essunum. Eftir að þau giftast heldur lífið líka bara áfram að ganga sinn vanagang. Þann- ig að þetta er nútímaleg saga í klassískum gamaldags ævin- týraaðstæðum og ég leik mér með formið. Myndskreytingarnar, sem eru eftir mig, segja svo líka sína eigin sögu sem bætist við textann sjálfan. Þú getur lesið helling af sögunni úr þeim og þar er alls konar húmor,“ segir Blær. „Kímnin í myndunum og textanum höfða vonandi einnig til fullorðinna sem lesa með barninu. Ég teiknaði myndirnar líka með það í huga að þú getur lesið söguna oft en samt fundið ný smáatriði í þeim sem þú sást kannski ekki fyrst.“ Á Bókamessunni ætlar Blær að lesa upp úr bókinni sinni í sögu- stund fyrir yngstu lesendurna sem verður á laugardaginn milli klukkan 14 og 15.30. Leikur sér með prinsessuformið Blær Guðmundsdóttir gaf nýlega út sína fyrstu bók, sem er barnabók sem byggir á ævintýri sem henni var sagt sem barn. Hún setur það í nýjan búning og leikur sér með kynjahlutverk og húmor. Blær hefur starfað sem grafískur hönnuður árum saman, en þetta er fyrsta bókin hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hilmar Örn Óskarsson hefur skrifað nokkrar barna-bækur en Húsið í september er hans fyrsta ungmennabók. Hún er mun myrkari en fyrri verk hans. „Ég hef skrifað fjórar barna- bækur um Kamillu Vindmyllu, sem eru fyrir um það bil 8 til 12 ára krakka og svo skrifaði ég líka eina litla bók, ásamt unnustu minni, Helgu Þóru Ármann, sem heitir Funi og Alda falda og er fyrir 6-9 ára börn. Ég hef líka unnið verðlaun fyrir glæpasmásögur,“ segir Hilmar. „Auk þess hef ég þýtt tvær bækur fyrir Bókabeituna, en allt sem ég skrifa kemur út undir þeirra merkjum. Það er alveg glænýtt fyrir mig að skrifa fyrir eldri hóp, en þessi nýja bók er frekar myrk fantasía, gufu- pönkuð og hryllileg,“ segir Hilmar. „Í raun er hún forljót miðað við það sem ég hef skrifað áður, fólk deyr alveg hægri og vinstri með hug- vitssömum hætti, en mér finnst hún samt skemmtilega skrítin og rosalega falleg á sama tíma. Ég vil ekki gefa of mikið upp varðandi söguþráðinn til að spilla honum ekki, en upphaflega hug- myndin sem ég hafði var í rauninni bara einhent stelpa sem þarf að fá nýjan handlegg og svo hlóð ég í kringum hana,“ segir Hilmar. Ég myndi segja að lesendur ættu að vera orðnir að minnsta kosti 13 ára,“ segir Hilmar. „Kannski er ég svona mikil tepra eftir að hafa komið úr krúttlegu umhverfi Kamillu, því mér finnst þetta gróft, en þeir sem hafa lesið fullvissa mig um að þetta sé alveg við hæfi eldri barna.“ Gaman að breyta til „Mig langaði mikið til að gera eitt- hvað nýtt, í staðinn fyrir að halda mig við alltaf við það sama. Ég held líka að ég hafi viljað fá smá mold á hendurnar eftir að hafa verið svona lengi í krúttlegum hlutum,“ segir Hilmar. „Það var í raun hvatinn að því að ég skrifaði svona myrka sögu, það er gott að breyta til. Svona eins og að komast í jarð- vegsvinnu annað slagið ef maður vinnur á skrifstofu allan daginn.“ Hilmar segir að það hafi verið allt öðruvísi að skrifa bók fyrir ungmenni en börn. „Ekki síst af því að þetta er svo ólíkt því sem ég hef gert. Í bókun- um um Kamillu voru þrír brand- arar á blaðsíðu en þessar persónur hafa ekki sérstaklega mikinn húmor og þetta er allt mun alvar- legra,“ segir hann. „Það hefur verið minn styrkleiki að vera fyndinn, en ég gat ekki hlaupið í það skjól í þessu verkefni, heldur þurfti ég að finna nýjar leiðir til að vera skemmtilegur og áhugaverður.“ Á Bókamessunni tekur Hilmar þátt í umræðu um ungmennabækur með öðrum höfundum. Umræðan fer fram á sunnudag milli 15-16. Gott að fá smá mold á hendurnar Hilmar Örn Óskarsson hefur skrifað fremur krúttlegar barnabækur fram að þessu, en nýja bókin hans er fyrir ungmenni. Að sögn Hilmars er bókin myrk fantasía og forljót miðað við fyrri verk. Hilmar segir að það hafi verið allt öðruvísi að skrifa nýju bókina en barnabækurnar sem hann hefur skrifað hingað til. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 2 2 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 BÓKAMESSA 2 2 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 4 B -8 9 3 8 2 4 4 B -8 7 F C 2 4 4 B -8 6 C 0 2 4 4 B -8 5 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.